Eimreiðin - 01.01.1918, Síða 20
20
NÝJA SAMBANDSLAGAFRUMVARPIÐ [Eimreiðin
M y n t höfum vér að vísu aldrei slegið hér, en vér
höfum upp á eigin spýtur löggilt myntarígildi, peninga-
seðla Landsbankans og „íslandsbanka“ og, þó nokkuð
ólíku sé saman að jafna, frímerki, sem ganga um útlönd.
Annars leiðir myntsláttuheimild af því, að verslun vor
innanlands og við önnur lönd er tvímælalaust sérmál.
Annað mál er það, að hvorki mynt vor né seðlar gætu,
fremur en annara ríkja peningar, verið lögmætur gjald-
eyrir erlendis án samþykkis viðskiftalandsins.
Hæstiréttur er að þvi leyti sameiginlegur að
þangað ganga islensk dómsmál, sem eigi sæta fullnaðar-
dómi innanlands. En þess verður vel að gæta, að vér get-
um* þó sjálfir skapað málum vorum úrshtalyktir innan-
lands. Og höfum þegar gert það að nokkru leyti, þar sem
t. d. landamerkjamálum og lögræðissviftingarmálum lýk-
ur i yfirdómi. * * Enda verður svo að vera. pað væri ekki
mikið leggjandi upp úr íslensku dómsvaldi, sem stjórnar-
skráin setur á bekk með löggjafarvaldi og framkvæmdar-
valdi, ef endir allra þræta ætti fortakslaust að sækja suður
til Kaupmannahafnar.
Siglingaflaggið danska hefir að vísu eigi verið
beinlínis löggilt hér á landi, en þó er gert ráð fyrir því,
bæði í eldri og yngri íslenskum lögum, að það taki og
til þar um ræddra íslenskra skipa. En siðan hefir kon-
ungur með atfylgi íslandsráðherrans eins*** löggilt sér-
stakt íslenskt flagg, bæði á landi og i landhelgi. Af því
einu út af fyrir sig leiðir, að hvorki gætum vér til lang-
frama unað, né Danir haldið að oss, svo óframkvæm-
anlega staðbundnu flaggi. pað verður eigi ætlast til þess,
* Sbr. þó E ina r Arnórsson: Andvari XXXVII, bls. 10-12.
** 12. gr. laga 1882, sbr. 8. gr. laga nr. 35 1914 og 6. gr. laga
nr. 60 1917. Á siðastniefdri grein hefir orðið sá meinlegi
misbrestur i dönsku þýðingu stjórnarráðsins, að orðin: „til
fullnaðarúrslita‘‘ teru látin óþýdd, en eigi allskostar ótvíræðu
orðið (,,endelig“) skotið inn í 10. gr. þýðingarinnar, þar sem
það átti ekki heima.
*** Konungsúrskurður 19. júni 1915, sbr. k.úrsk. 22. Nóv. 1913.