Eimreiðin - 01.01.1918, Side 33
Éimreiðin] NÝJA SAMBANDSLAGAFRUMVARPIÐ
33
verður þó vora eign. Enda þó að það sé haft á oddinum
í 14. gr., að verja skuli (sennilega vöxtunum af) báðum
miljónunum, jafnt þeirri, sem íslendingum eru fengin
umráð yfir, sem hinni, er Danir ráða „í því skyni að efla
andlegt samhand milli Danmerkur og íslands“ o. s. frv.,
þá cr þó vonandi, að „andlega sambandið“ verði eigi þýtt
svo þröngt, að t. d. áframhald landmælinga herstjórnar-
ráðsins komist eigi þar að. Annars má geta þess, að það
lækkar töluvert í aski landssjóðs við þessa hagræðingu
bótafjárins, þar sem tekjur hans minka um „tillags“-upp-
hæðina, en gjöld hans aukast um Kaupmannahafnarskrif-
stofuhaldið. pó má búast við, að íslensku miljóninni verði
hagrætt svo, að eiíthvað af gjöldum landssjóðs falli niður
eða lækki.
pað er sjálfsagt nýmæli, að hvort ríkið um sig ráði
gæslu hagsmuna sinna í hinu ríkinu, enda svo um mælt
í 15. gr. En af því að heyrst hefir, að sumir núverandi
áhrifamenn hugsi til að hafa sendiherra i Kaupmanna-
höfn og þá sennilega meira eða minna fjölmenna sveit
með honum, mætti ef til vill orða það, hvort eigi mundi
mega fela manninunj um leið uppburð mála fyrir kon-
ungi, likt og ráðgjört var í 10 manna frumvarpinu á sín-
um tima. pað mundi verða nokkur sparnhður að því,
og manninum jafnframt síður leiðast.
Annað nýmæli, allþarflitið „frá almennu sjónarmiði“,
fer 16. gr. með, þar sem er stofnun 6 manna nefndar
(sennilega launaðrar?), 3 íslendinga og 3 Dana, til þess,
eigi að eins eftir kröfu stjórnanna heldur og „af eigin hvöt-
um“, að gæta hagsmuna hvors ríkis og þegna þess um
lagasetningu hins, sem og til að efla „samvinnu milli
rikjanna og samræmi í löggjöf þeirra“. Að vísu er sam-
ræmi milli lagasetningar viðskiftalanda æskileg á ýmsum
sviðum. En hins verður þó að gæta, að lögin verða að
laga sig eftir lífskjörunum, líkt og fatið eftir manninum,
sem á að bera það. Og nú mcð því að lífskjör þau, sem
þjóðirnar eiga við að búa, eru misjöfn, verður að sniða
3