Eimreiðin - 01.01.1918, Side 38
[Eimreiðin
Veislan í gryfjunni.
Eftir Patrick Mac Gill.
[Kafli þessi er tekinn úr bók P. Mc. Gill’s: The Red Horizon.]
-----— Sumar gryfjumar eru sæmilega útbúnar. Þar eru reglu-
leg rúm, borö, stólar, speglar á veggjunum og látúns-kertastjakai.
Eldavél er komiö fyrir í leirveggnum. Eina af þessum prýöilegu
gryfjum kölluöum við Savoju-gildaskálann, og þar var hún haldin
veislan, sem eg nú vil segja frá. Viö vorum heilan dag aö undir-
búa hana. Þaö var ekki svo lítil lífshætta að ná sér í mat og
vínföng. Okkar á milli sagt þá stalst Bill burt úr skotgryfjunni
nærri því fjóra kílómetra, til þess að ná í eina flösku af rauðvíni
og fékk í þjónustulaun sjö daga fangelsi.
Það var Mervin, sem átti hugmyndina að öllu saman. Það var
rétt í dögun. Hann sat og var að binda um fingurinn á sér, því
að hann hafði skorið sig á kjötdós, sem hann var að opna. Hann
rétti fingurinn upp í loftið og horfði á hann í mjög djúpum
þönkum.
„Og alt þetta fékk eg af einni forardós‘“ hvæsti hann illúðlega.
„Mér finst við ættum að fá okkur eina almennilega máltíð. Við
ættum nú að geta komið svo litlu i framkvæmd."
Stoner leit upp og augnaráðið leiftraði af ákafa.
„Eg veit um kartöflur og lauk og gulrófur," sagði hann. „Það
er nóg af því í garði bak við Belju-kastalann. Eg skal fara þangað.
Viltu koma með mér, Patrick?“
„O-já. Hvað gerið þið hinir, Bill?“
„Einhvern dropa verðum við að hafa,“ sagði hann. Við skuturn
strax saman fyrir víninu. Bill þrammaði af stað, með axlapok-