Eimreiðin - 01.01.1918, Síða 80
80
HÉLJaRTÓK MIÐALÍJAVELDANNA [Eimreiðin
og á það vaðið reið Hinrík. Hann kom snögglega að borg-
inni. Mótstaða var lítil og lið hans streymdi inn. Pófinn
flýði og komst með naumindum inn i Engilsborgarkast-
alann. Sá kastali stendur hátt og er ákaflega rammger.
paðan gat svo páfinn horft á auðmjúka manninn frá Kan-
ossa með mótpáfann við hlið sér, þar sem þeir héldu í
sigurför til Péturskirkjunnar.
Um tveggja ára tíma gekk í þaufi. Ýmist réði Hinrik
öllu í borginni eða þá að hann varð að hafa sig á brott
þaðan. Ef rita ætti sögu Rómaborgar á miðöldunum, þá
yrði það ljóta stagliö, endalausar byltingar og umskifti.
Sá, sem mesta hafði peningana í það og það skiftið, var
hæstráðandi. En í marsmán. 1084 var Hinrik búinn að
koma ár sinni svo vel fyrir borð, að hann gat látið setja
Guibert inn í páfaembættið „formlega“ og kallaði hann
sig Clemens III. Að því loknu hugði hann að taka Engils-
borg og ná Gregoriusi á sitt vald hvað sem það kostaði.
Menn Gregoríusar sendu í ofboði til Róberts Guis-
karðs, og brá hann við snögglega. Hann vissi, sem var,
að gæti Hinrik brotið páfann algerlega undir sig, þá mundi
röðin koma að sér næst. Tók hann því 6 þúsund riddara
og 30 þúsund fótgönguliðs og hélt með skyndingu til
Rómaborgar. pegar Hinrik komu fregnir af ferð Róberts,
þorði hann ekki annað en hafa sig á brott úr Róm. Guis-
karð braut alla mótstöðu á bak aftur og tók borgina, og
hófust nú ógurlegustu hryðjuverk. það var engu líkara
en dagar Alariks og Genseriks væru komnir aftur. Hús
voru rænd og menn og konur drepið eða selt í ánauð
eða haft á braut, og mikill partur borgarinnar lá í ösku.
Slíkar hörmungar leiddi Gregorius yfir borgina með þráa
sínum og valdaæði. „Menn greinir á, hvort Neró hafi brent
Róm árið 64, en enginn er i efa um, að það var Gregoríus
VII sem átti sök á ráni og brennu Rómaborgar 1084.“
Eftir nokkra daga fór Guiskarð burtu úr Róm og hafði
Gregoríus með sér. pað var hörmuleg sjón, sem blasti
við honum, þegar hann í’endi tárvotum augum yfir borg-
ina í síðasta sinn. Svo lauk hans völdum.