Eimreiðin - 01.01.1918, Page 113
Eimreiðin] ER ÍSLENSKT ÞJÓÐERNI í VEÐI? H3
og er það þó eigi liáttur konunghollra þjóða, að leggja
að óþörfu líf konunga sinna og drotninga í hættu. Og
margt fleira bendir á, að nú sé það að verða litlu eða
engu hættulegra að ferðast með þessum hætti en öðrum,
og stendur þó án efa til stórmikilla bóta um vegalengdir
og annað. Að ófriðnum loknum eru þvi likur til þess, að
farið verði að ferðast mjög mikið i loftinu, því að engin
ferðalög fá við það jafnast, sé það á annað borð hættu-
laust orðið og gerlegt.
En hvaða áhrif hefir þetta á ísland og Islendinga?
)?að hefir svipuð áhrif því, ef ísland væri dregið „yfir
þrjú hundruð mílna sjó“, eins og þar stendur. ísland er
með þessu sama sem flutt margfalt nær öðrum þjóðum.
Aðstaða þess verður svipuð og ef það hefði fram að þessu
verið, með sínar fáu þúsundir íbúa, einhversstaðar í miðj-
um Norðursjónum. j?ví að á flugi má komast á fáum
klukkutímum til annara landa. Til Englands mætti bregða
sér á svipuðum tíma eins og það tekur að ríða til Jhng-
valla eða austur að Ölvesárbrú.
Stenst íslenskt þjóðerni þctta nábýli ? það er spurningin.
Væri nokkur von til þess, að hólmi með 50—100 þús.
íbúum hefði getað varðveitt sérstaka tungu og þjóðemi
hjá íbúum sínum, svo sem 5—6 klukkutíma ferð frá Eng-
landi? Nei, það skyldi enginn ætla.
En hitt er annað mál, að sé ráð í tíma tekið, og gengið
gegn þessari lífshættu fyrir tungu vora og þjóðerni með
fullri meðvitund og einhuga vilja að verjast henni, að þá
má lengi verjast.
Rás tímans verður ekki stöðvuð héðan af. Vér höfum
i eitt skifti fyrir öll vikið út af þeirri stefnu, að vernda
þjóð vora sem eilífan forngrip, að skýla oss bak við kín-
verskan múr. Flugferðirnar koma. Vér komumst í nábýlið
innan skamms. J?að er gott og sjálfsagt úr því sem komið
er. pað er einn liður „framfaranna“.
En tekst oss að vernda þjóðernið og íslensku tunguna?
M. J.
8