Eimreiðin - 01.01.1918, Qupperneq 126
126
RITSJÁ
[.Eimreiðin
úr nágranna héruðunum, og hve nytsamt er að dreifa þeim sem viðast
um landið.
Skrá um skifting kenslunnar sýnir, að flestum timum hefir verið
varið til smiða, 240 stundum, þá búfjárfræði og búfjárlækningar, 167 st.,
þá jarðræktarfræði, garðyrkju og skógrækt, 163 st., þá dráttlist, 143 st.,
þá landmælingar, 120 st. Sýnir þetta, að mikil áhersla er með réttu lögð
á þær mentir, sem bændum mega að haldi koma. Tungumál eru engin
kend nema móðurmálið. Námsgreinar alls 20.
Þá eru töflur um próf.
Þá skýrt frá styttri námsskeiðum. Skólaárið 1914—T5 var bændanáms-
skeið haldið dagana 22.—24. mars. Um 50 manns var aðkomandi. Héldu
þar 7 menn samtals 27 fyrirlestra um ýms gagnleg efni. Þá voru og mál-
fundir á kvöldin. Dýrtið bannaði sams konar námsskeið síðari árin.
Stúdentafélagið á Akureyri veitti fé til fyrirlestrahalds við skólann tvo
siðastliðna vetur. Fyrri veturinn voru 2 fyrirlestrar haldnir, en síðari
veturinn 3.
Þá er skýrt frá verklegu námi, sem 12—18 piltar hafa tekið þátt í,
sumir 6—8 vikna tíma að vorinu, en aðrir sumarlangt. „Áhugi á verk-
lega náminu fer vaxandi. Mönnum skilst það, að á búnaðarskóla þarf
jafnt að læra að nota hönd og anda.“ Skýrslan öll sýnist og bera þess
vottinn, að skólinn stefni að þessu.
Þá er um „námsferðir", söfn skólans, sjóði og félagsskap nemenda,
Svo er skýrsla um skólabúið, framkvæmdir þess og tilhögun. Skóla-
stjóri hefir rekstur þess síðan 1914. Framkvæmdir furðu miklar á þessum
timum, bæði í byggingum, jarðabótum (sléttum, girðingum, áveitum
o. f 1.), garðrækt o. fl. „Heyaflinn hefir verið 800—1000 hestar af töðu
og 1000—1200 hestar útheys." — „Búpeningur er nú um 400 fjár, 20
nautgripir, 80 hross, 8 svín og 10 geitur." Kúakyn hefir verið bætt
svo, að kýrnar mjólka nú 2900 pt. að meðaltali um árið í stað 2000 pt.
árið 1914. Væri það laglegur tekjuauki á kúabúi hjer hjá Reykjavík.
Kynbætur hafa og verið reyndar á sauðfé og hrossum með góðum
árangri.
Loks eru reglur til athugunar fyrir þá, sem skólann vilja sækja.
Skýrslan öll ber vott um að hér muni vera skóli, sem bændaefni geti
haft ágæt not af og starfandi áhugamenn í fyrirrúmi. En nöfn þeirra
eru hvergi nefnd í skýrslunni. M. J.
RÉTTUR, tímarit um félagsmál og mannréttindi. III. ár, I. hefti.
Ritstjóri Þórólfur Sigurðsson. Gefið út á Akureyri.
Efni þessa heftis er þetta: Gamalt og nýtt eftir Benedikt Jónsson.
Skattamálin eftir Áskel Snorrason. Leó Tolstoj : Úrlausn Henry George
í jarðeignamálinu, Á. S. þýddi. Nýr landsmálagrundvöllur eftir Jónas
Jónsson. Neistar, eftir ýmsa. Verslunarmálin eftir ritstjórann.