Eimreiðin - 01.01.1918, Qupperneq 127
Eimreiðin]
RITSJÁ
127
Kunnum vér eigi svo skyn á þeim málum, er hér er um fjallað, að
vér viljum leggja dóm á ritgerðir þessar. En ef til vill fær Eimreiðin
síðar einhvern góðan mann til þess að segja lesendum sínum nokkuð
frá riti þessu. M. J.
RÓBÍNSON KRÚSÓE, önnur útg. Reykjavík 1917, Bókaverslun Ár-
sæls Árnasonar.
Hér kemur ný útgáfa af þýðingarágripi Steingrims Thorsteinssonar
af Róbínson. Er útgáfa þessi vist orðrétt eins og sú fyrri, og allar sömu
myndirnar, en ofurlítið er hún öðru vísi í laginu. Hefir sonur frum-
þýðandans, Axel skáld Thorsteinson, annast um þessa útgáfu.
Róbínson þarfnast ekki meðmæla vorra. Hann mun í þessari útgáfu
fara sömu sigurförina til ungra og gamalla, eins og hann hefir farið
um öll lönd heimsins í 200 ár. Hann er í orðsins réttu merkingu „sí-
gilt“ rit. M. J.
ÚTILEGA, handbók útilegumanna, eftir N, Rvik 1918.
Hér birtast í bókarformi smágreinar nokkrar, er komu neðanmáls
í Morgunblaðinu. Eru þær um gönguferðir til heilsubótar og skemtunar.
Er tilgangurinn sá fyrst og fremst, að örfa menn til þess, að fara
slíkar ferðir, og svo sá, að kenna mönnum ýms holl ráð, ef þeir taki
sig upp og noti þetta heilræði.
Kver þetta er 32 litlar blaðsíður, en rúminu er ekki eytt til óþarfa.
Þar er öllu saman þjappað sem mest má verða, og er því kverið sjálft
ágætt dæmi þess, hvernig allur útbúningur göngumannsins á að vera.
Enda ekki nema sjálfsagt að stinga því í vasann, þegar að heiman
er farið.
Óskandi væri að allir heilbrigðir menn notuðu sér heilræði „útilegu-
mannanna", að ferðast fótgangandi. Fáir munu geta gert sér hugmynd
um, hve yndislegt slíkt ferðalag er. Og þá er ágætt að hafa þessar
leiðbeiningar, ekki síst um farangur. Ef gengið er um óbygðir, getur
það riðið á miklu, að ekkert smávegis vanti, en ekki auðvelt fyrir byrj-
endur að láta sér detta alt í hug.
En þegar út í ferðina er komið, verður að treysta mest á eigin snar-
ræði og fyrirhyggju. Þar kemur svo margt fyrir, að jafnvel þaulvanir
„útilegumenn" geta aldrei gefið ráð við því öllu fyrirfram. En þau
ráð, sem gefin eru í kverinu eru ágætt dæmi upp á það, að verða aldrei
úrræðalaus og koma huganum af stað að finna lausnir á nýjum og
nýjum vandamálum.
Kverið er kjarnort, vel frá öllu gengið og hin þarfasta bók. M. J.
M. J.