Eimreiðin - 01.04.1919, Qupperneq 22
86
FRÁ KÖTLUGOSINU
[EIMREIÐIN
eigi neitt til þeirra. Var því beðið um slund. Riðu þá þrír
menn austur að Skálmabæjarhraunum, en svo heitir bær
einn i Álftaveri. Þar átti einnig að rétta, og átti að reka
óskilafé þaðan til Fossaréttar.
Biðum við alllengi, sem eftir vorum. Nálægt kl. 1 e. h.
fórum við að heyra nið í stefnu til hájökulsins. En við
héldum að sá niður væri í svonefndum Hrúthálsafossi,
sem er í úthögum. Til jökulsins sáum við ekki fyrir þoku
og dimmu, sem huldi hann allan. Niðurinn fór nú smá-
vaxandi; tókum við þá að undrast, hversu mikill hann
var orðinn og urðum við óróir. Loks datt okkur í hug,
að hann mundi koma af Kötluhlaupi. í sama bili sáum
við fjallasafnið koma, og fylgdu því nokkrir menn. Fví
næst sáum við að þeir komu úr öllum áttum, og keyrðu
þeir hesta sína sem mest þeir máttu. Urðum við þess þá
fullvissir, að þeir höfðu lagl á flótta undan hlaupinu, og
þótti okkur þá ekki vært lengur. Enda gaf þá að lita
ægilega sýn yfir Mýrdalsjökli. Þeyttist öskumökkur mikill
og dimmur hátt í loft upp, og heyrðust þungir dynkir og
miklir. Urðu þá eldflug um loft alt og þrumur miklar.
Allir, sem við réttina voru, stigu nú á bak sem skjótast
og riðu nú sem hestar komust fram yfir Skálm. Hinir,
sem ekki voru komnir til réttar, riðu saman á leið til
Skálmabæjarhrauna. t*eir voru ofar fyrir og áttu lengra
að ná fram yfir Skálmina. Um þá menn vissum við ekki
meira þennan dag.
Þegar við komum fram yfir Skálm, sáum við jökul-
garðinn fyrir vestan okkur, svo sem 10 mín. ferðar veg
frá okkur.
Héldum við nú sem hraðast fram að Herjólfsstöðum.
Þaðan gátum við séð hvernig hlaupið brunaði fram. Var
það þá komið beint í vestur frá Herjólfsstöðum, og var á
því flug afarmikið. Töldum við víst að það yrði komið í
svonefnda Landbrotsá, áður en við næðum yfir hana.
Dvaldist okkur því nokkuð á Herjólfsstöðum, meðan við
vorum að ráða við okkur, hvað gera skyldi. Vorum við
þar staddir tveir saman frá bæjahverfi því, er Sunnan-
byggjaratorfa nefnist. Eru þar 5 bæir. Á bæjum þessum