Eimreiðin - 01.07.1919, Síða 5
EIMREIÐIN]
ORKUGJAFAR ALDANNA
133
svo sem ekkert að gera, meðan mennirnir höfðust ekkert
að, annað en veiða dýr og eta þau. En svo fóru þeir
smátt og smátt að gefa sig við fleiru. Þá reis Saga úr
rekkju, fór í sokkana og leit út um ljórann. En hún
hefði helst þurft að vera svolítið fyr á ferli; mennirnir
höfðu leikið á hana; þeir höfðu t. d. lokið við pýra-
mídana á Egyftalandi, er nú blöstu við auganu eins og
álitleg fjöll. Hefði Saga verið fyr á flakki, hefði hún
kannske getað frætt okkur á því, hvernig þeirra tíma
menn fóru að því að hefja björg þau hin miklu, sem þar
eru í lög lagin, hundruð feta í loft upp, og hefði það
ekki verið ófróðlegt. Og nú rekur hvað annað, musterin
miklu á Indlandi, súlnahallir Grikkja, dómkirkjurnar
gotnesku o. s. frv., og öll þessi stórvirki eru gerð ein-
göngu af mannahöndum. Vöðvar manna og dýra, er
mennirnir höfðu þá fyrir löngu tekið í sína þjónustu,
vinna svo að segja alt; vélar eru svo sem engar til í
vökunni, en mennina er fyrir löngu farið að dreyma, óra
fyrir öðrum tímum með öðru vinnulagi og meiri hvíldum.
Þeir eru í anda farnir að sjá skipin þjóta um höfin, gegn
stormi og straumi, án segla og ára; þá er farið að dreyma
um að líða í loftinu, að sjá gegnum holt og hæðir, — en
hvernig þetta má verða og hvaða kraftar hér muni verða
starfandi, um það veit enginn.
Við skeiðum yfir miðaldirnar, einskonar útreiðartímabil
í sögu þjóðanna, er alt er á ferð og flugi; þaðan leggjum
við leið okkar inn í lönd hinnar nýju sögu; er lítt fýsi-
legt að hafa þar fyrst um sinn langa dvöl; kveður þar alt
við af trúarbragðastælum og pexi, skvaldrið og gargið
líkast eins og í fuglabjargi, og alt botnlaust, eins og á
hreppsfundum. Þjótum við þar fram hjá á harðaspretti,
en förum eftir litla stund af baki hjá unglingspilti, sem í
mesta máta er að kynda undir vatnskatli og fá upp suðu;
hefir hann troðið tappa í stútinn, en bundið lokið niður
með járnvír. Hvað á það tiltæki eða sú rælni að þýða?
Jú, pilturinn er hvorki meira né minna að hafast að, en
það, að finna og kanna gufuaflið, sem síðan hefir svo að
segja umskapað heiminn.