Eimreiðin


Eimreiðin - 01.09.1920, Blaðsíða 12

Eimreiðin - 01.09.1920, Blaðsíða 12
268 JÓN BISKUP VÍDALÍN fEIMREIÐIÍÍ arlíf mannanna með þessu einkennilega næma auga. Eink- um er hann næmur að rekja krókaleiðir mannshjartans í hinu illa og sjá út vélabrögð djöfulsins í mannlífinu. Hann þekkir orðbragð og aðfarir sjómannanna, búrahátt bændanna og skartgirni kvenna og ungra manna. Hann veit um skeytingarleysi og rangsleitni veraldlegra embætt- ismanna og leti prestanna, þegar þeir eru að glamra eitt- hvað og eitthvað illa undir búnir. Og hann er engu síður þaulkunnugur því, bvernig hver löstur hagar sér, og hvern- ig hann reynir að smeygja sér inn undir fölsku nafni og fölsku flaggi. »Ágirndin er framsýni kölluð, drambsemin höfðingsskapur, hræsnin vitska; þegar menn brjóta rétt- inn kalla menn það að byggja hann, þegar menn sleppa skálkum og illræðismönnum óhegndum, þá nefna menn það kærleika og miskunnsemi, hirðuleysi og tómlæti í sínu kalli og embætti, heitir spekt og friðsemi«. Og á öðrum stað: »Hinn drambláti lýtir hinn ágjarna, en sig kallar hann hugprúðan; hinn ágjarni lastar hinn eyðslu- sama, sig nefnir hann forsjálan; hinn eyðslusami bríxlar hinum aðsjála, en hann vill örlátur heita, og svo þykir hverjum af oss sinn fugl fagur«. Hann talar um »þrota drambseminnar, vatnssýki ágirndarinnar, köldu óhófssem- innar, brjóstveiki öfundarinnar, dofa letinnar og æði reið- innar«. Alt fær sína nákvæmu lýsingu og skörpu skömm hjá honum. Og svo þetta, sem af hinu leiðir, hve nærri hann jafn- an er tilheyrendunum. Þeim hefir aldrei getað fundist hann vera að hverfa í skýjavaðli eða vera að gjalla úti á þekju. Nei, hann var inni hjá þeim, frammi fyrir þeim, og talaði við þá hvern um sig og horfði svo að segja gegnum þá. Og þetta hefir hann haldið áfram að gera og því rgátu menn enst til þess að lesa postilluna kynslóð fram af kynslóð. Hann fann þá alt af jafnt í fjöru og stóð þá að rangindunum, með sinni dæmalausu ratvísi í völundarhúsi mannlegs hjarta.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124

x

Eimreiðin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.