Eimreiðin - 01.09.1921, Side 1
EIMREIÐIN]
Sjúkrahúsið á Akureyri,
Fyrst verður að minnast á
Gamla spitalann. Að vísu er
hann nú úr sögunni sem spí-
tali, en núverandi sjúkrahús
Akureyrar á honum að tölu-
verðu leyti tilveru sína að
þakka.
Gamli spítalinn stendur enn
sunnan við gamla hótelið neð-
an við brekkuna í innbænum,
og er leigður út til íbúðar. —
Akureyrarbær eignaðist þennan
spítala að gjöf 1873. Gefandinn
var stórkaupmaður Frederik Carl
Magnus Gudmann, eigandi einn-
ar verslunarinnar hér, sem enn
ber hans nafn. Spítalahúsið hafði Eggert Johnsen fjórð-
ungslæknir látið byggja sér til íbúðar. Síðan eignaðist
Jón Finsen héraðslæknir húsið, og bjó þar þangað til
hann flutti búferlum til Danmerkur. Þá keypti Gudmann
af honum húsið, til að gefa bænum. Hafði hann á undan
látið bæjarstjórn velja um þá tvo kosti, að annaðhvort
mætti hún veija sér spítala eða þurfamannahæli.
Bæjarstjórnin kaus heldur spítala. Gudmann varði þá
allmiklu fé til að gera húsið sem best úr garði, með
sjúkrarúmum (þau voru fyrst 8, og seinna 12) og hjúkr-
unargögnum. Alt þetta kostaði 5400 ríkisdali, eða vel það.
Enn fremur ánafnaði hann bænum í erfðaskrá sinni 2500
ríkisdali til styrktar sjúkrahúsinu. Og fyrir þá upphæð
keypti bærinn fimm smájarðir (Auðbrekku, Hátún, Svíra,
Þríhyrning og Böðvarsnes). Rann síðan árlegt afgjald
þeirra til spítalans.
17