Eimreiðin - 01.09.1921, Blaðsíða 3
EIMREIÐINI
SJÚKRAHÚSIÐ Á AKUREYRI
259
stofnun, sem okkur fanst vera aðallega þjáninga- og
dauðastofnun. Við gengum ógjarnan fram hjá líkhusinu,
þegar skuggsýnt var orðið, nema íleiri í hóp. Og eg man,
að við gerðum þá athugun, að opinn gluggi á sjúkra-
herbergi þýddi það, að sjúklingur væri dáinn. Liklega
hefir þetta oftast staðið heima, því í þá daga var þýðing
útiloftsins fyrir heilsuna talin vafasöm, og hræðslan við
allan dragsúg mjög ríkjandi.
í þessu sambandi er fróðlegt að minnast þess um hina
allra fyrstu spítala hér á landi, holdsveikra-spítalana
gömlu (á Hörgslandi, Möðrufelli, Klausturhólum og Hall-
bjarnareyri), að þar var þó séð fyrir loftræstingu; en það
var gert NB ekki fyrir sjúklingana, heldur fyrir hina heil-
brigðu, er stunduðu þá. Þetta má sjá í wlnstrúx fyrir
Hreppstjórnarmenn um Hospitölenn á íslandi«, sem gefinn
var á Hirschholmsloti 1746. Par stendur í 3. grein:
»Skal setjaz í soddan Huus lijtell Reykháfr efst á Mænerenn,
vijör að neöann, enn mjoor efst, so par gete i giegnum uut-
geingið sá mikli Reykr og Sudde, sem uppstígr af soddan Veik-
leika, uppá pað að peir, sem skulu pjoona peim sjúku, gete pess
betr gjört sitt Verk og komið peim til aðstoðar«.
Gamli spítalinn var, eins og fyr var sagt, heimkynni
friðarins. Þar til Guðmundur Hannesson varð héraðs-
læknir 1896. t*á varð þar ys og þys. Allar stofurnar fylt-
ust smámsaman af sjúklingum, miklu fleiri en nokkru
sinni áður. Því til Guðmundar streymdu sjúklingar hvaða-
næfa, til að fá ýmsra meina bót. Hann læknaði með
nýjum aðferðum, er áður þektust ekki hér. Hann var ný-
tísku skurðlæknir, sem sá enga sulli né meinsemdir í friði.
»Stóð úfriðr af afarmenni innanlands öllu fólki«, sagði
Eyvindur skáldaspillir. Og nú var skorið nótt jafnt og
nýtan dag, æxli tekin og allskonar meinlæti, bein meitluð
og skafin og jafnvel negldir saman beinendar i stað þess
að svifta menn gagnlegum limum. Og sjúklingar komu, og
fóru albata. Og gluggar voru opnaðir upp á gátt, þó eng-
inn væri dáinn. — Fór svo mikið orð af læknisaðgerðum
Guðmundar, að fólki fanst ganga kraftaverkum næst og
gamli spítalinn varð fræg stofnun. Sem dæmi þess, hve