Eimreiðin - 01.09.1921, Blaðsíða 20
276
ÞJÓÐGARÐAR
[EIMREIÐIN
ekki ímyndað sér að þar ætti sér stað önnur eins náttúru-
fegurð og af var látið, og sögurnar báru með sér.
Þar ráku menn sig á goshveri, sem hvergi eiga sinn
líka 1 víðri veröld, hrikalegar gjár, árgljúfur, hæstu fossa,
sem til eru, og stærstu og elstu tré, sem fundist hafa á
bnettinum og margt fleira, sem áður var óþekt. Dalirnir
inn á milli fjallanna og jöklanna voru óviðjafnanlega
fagrir; hliðarnar skógivaxnar og dalbotnarnir ýmist þaktir
allskonar skrautjurtum eða stórskógi. Innan um gróðurinn
og upp um fjöll og firnindi sveimuðu allskonar dýr. Ár,
lækir og stöðuvötn voru full af fiski. Yfir höfuð mátti svo
að orði kveða að þarna væri sannkölluð náttúruparadís.
Rauðskinnarnir, sem reikuðu um fjöllin, höfðu óljósa
eða enga hugmynd um náttúru-undrin. Þeir þektu t. d.
ekki goshverina i Yellowstone. Dunur og dynkir, sem þeir
heyrðu til gosanna i fjarska, fældu þá í burtu. Reir héldu
að »andinn mikli« ætti þar heima, og það var ekki gott
að styggja hann, með því að vera honum of nærgöngull.
Náttúrufróðir og náttúruelskir menn urðu hrifnir af allri
þessari náttúrudýrð í fjöllunum, og komu því til leiðar, að
fegurstu og tilkomumestu svæðin voru algerlega gerð frið-
helg og nefnd þjóðgarðar (National Parks).
Fyrsti þjóðgarðurinn í Bandaríkjunum var stofnaður
1832, og sá síðasti 1919. í undirbúningi var þá að fjölga
þeim enn, svo ekki eru Bandaríkjamenn af baki dotnir.
Alls eru þjóðgarðarnir 18 að tölu, og samtals um 27814
Qkm að stærð. Minsti garðurinn er rúml 3 [Hkm, en sá
stærsti 8674 []km. Nokkur þessi friðhelgu svæði eru af-
mörkuð með girðingum, þar sem því verður komið við.
í Kanada eru 11 þjóðgarðar. eða voru árið 1917. Peir
eru allir til samans um 20577 Qkm að stærð. Verða þá
allir þjóðgarðarnir í Ameríku hér um bil á stærð við
hálft ísland.
Ef ætti að lýsa hverjum einstökum þjóðgarði, og öllum
helstu fyrirbrigðum náttúrunnar þar, þyrfti að rita stóra
bók; verður því ekki farið hér út í nema örfá atriði.
Mesti sægur af ferðamönnum heimsækir þjóðgarðana á