Eimreiðin - 01.09.1921, Blaðsíða 92
348
GYLDENDALS BÓKAVERSLUN
[EIMREIÐIfí
mann, sem hann vissi að var fær um að stjórna þessu
mikla fyrirtæki og láta það þroskast, en það var Hegel.
Frederik Vilhelm Hegel réðst eftir ferminguna í Briin-
nich prentsmiðju, sem var í húsum Gyldendals í Klare-
boderne. Jacob Deichmann kyntist honum þar, og að
ári liðnu fluttist hann úr prentsmiðjunni í bókaversl-
unina. Hann var þar til náms um 5 ára skeið og náði
svo fullu trausti húsbónda síns, að hann varð upp frá
því samverkamaður hans. í bókinni »Frederik V. Hegel
o. s. frv.«, eftir Z. C. Nielsen, er meðal annars sambúð
þeirra lýst á þessa leið:
»Snemma á morgnana, áður en bóka-
búðin var opnuð, gengu þeir Deichmann
saman á borgarveggnum, sumar og vetur,
nákvæmlega með sama hætti, því báðir
voru fádæma vanafastir. — Á þessum
gönguferðum fékk Deichmann nákvæma
þekkingu á Hegel, sá hve sannur hann
var og trúr að upplagi, en hinu hafði
hann fyrir löngu tekið eftir við verslun-
ina, hve hagsýnn hann var, rólegur, en
þó óbifanlegur í framkomu allri«.
Smátt og smátt, eftir því sem Hegel knýttist fastar við
fyrirtækið og við Deichmann sjálfan, fór sú ætlun að festa
rætur í huga Deichmanns, að gera Hegel að eftirmanni
sínum. Sjálfur átti Deichmann engin börn. Árið 1846 lét
hann bókaverslunina af hendi við hann og 1850 sjálft
forlagið, hvorttveggja með mjög hagkvæmum skilmálum.
Tíminn leiddi brátt í ljós, að hann hafði valið réttan
mann á réttan stað. Það leið ekki á löngu þar til bóka-
útgáfan sjálf tók alla athygli Hegels og starfskrafta og 1877
lét hann því bókaverslunina af hendi við Lehmann &
Stage. En nú jókst Gyldendals forlagið brátt svo undir
stjórn hans, að það varð ekki að eins það stærsta í Dan-
mörku, heldur yfirleitt á Norðurlöndum.
Þessi sigur Gyldendals forlagsins, að það komst svo
langt bæði að áliti og auðlegð, var eingöngu að þakka
stjórn F. V. Hegels. Hann hafði til að bera einmitt þá