Alþýðublaðið - 09.06.1964, Blaðsíða 2

Alþýðublaðið - 09.06.1964, Blaðsíða 2
Bitstjörar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedikt Gröndal. — Fréttastjóri: Arni Gunnarsson. — Ritstjómarfulltrúi: Eiður Guðnason. — Símar: 14900-14903. — Auglýsiilgasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Askriftargjald kr. 60.00. — í lausasölu lcr. 5.00 elntakið. — Útgefandi: Aiþýðuflokkurinn. Verkalýðsforingjar reknir FRAlMSÓKNARMENN hafa í seinni tíð þótzt vera miklir ivinir verkalýðshreyfingarinnar. Þeir gera taumlaus yf irboð í fullu ábyrgðarleysi, prenta verkalýðsboðskap með rauðu letri í Timanuín, og úgleyma svo aldrei að miinna 'verkalýðinn á, hvemig Ihann eigi að kjósa. í síðastliðinni viku gleymdu framsóknarmenn hinni nýfengnu verkalýðsvináttu sinni. í tveim tkaupfélögum gerðu þeir pólitísk upphlaup í þeim tilgangi að fella formenn iverkalýðsfélaga, og tókst það, af því að aðrir voru ekki undir slík átök búnir. í Keflavík hröktu framsóknarmenn þannig Ragnar Guðleifsson úr. stjóm Kaupfélags Suður- mesja, þótt hann sé ekki aðeins förmaður verka- ÍLýðsfélagsins á staðnum, heldur meðal brautryðj- enda kaupfélagsins og búinn að vera í stjóm þess rúma tvo áratugi). í Ólafsvík hröktu framsóknarmenn úr stjóm Kaupfélagsins Dagsbrúnar Elinberg Sveinsson, for rmann verkalýðsfélagsins, sem verið hefur meðal tryggustu stuðningsmanna kaupf élagsins og í stj órn þess um langt árabil. Einnig hröktu framsóknar- rnenn burt Ottó Ámason, sem verið hefur endur- skoðandii félagsins. í mörg ár, en hann er einn af elztu baráttumönnum alþýðunnar í Ólafsvik. Þessum mönnum er það sameiginlegt, að þeir eru ekki framsóknarmenn, heldur Alþýðuflokks* menn. Kemur nú í ljós hetur en nokkru sinni fyrr, hvemig framsóknarmenn vilja drottna yfir sam- vinnuhreyfingunni og hrekja hurt frá henni menn úr öðrum flokkum. Þarna er farið eftir flokkspóli- tík einni saman, en það látið lönd og leið, hvort þessir menn hafa verið samvinnumenn eða ekki. Þessi atvik sýna, að framsóknarmenn meina ■ekkert með smjaðri sínu við verkalýðshreyfing- una. Þeir sparka í hana við fyrsta tækifæril, þeg- ar það hentar flokkshagsmunum þeirr,a. Þessi atvik sýna ennfremur, að framsóknar- menn fórna starfsfriði og hagsmunum kaupfélag- anna, þegar þeir fá tækifæri til að styrkja póli- tíkst kverkatak sitt á samvinnuhreyfingunni. Jafnaðarmenn eru og hafa alltaf verið sam- vinnumenn. Þeir og margir aðrir mundu gjarna vilja styðja samvinnuhreyfinguna hetur en þeir hafa getað gert, ef hún vildi losa sig við hin póli- íísku ráð framsóknarmanna, sem ekki þola, að aðrir komi nálægt þessum málum. Framsóknarmenn kalla yfir samvinnuhreyf- inguna þær pólitísku deilur og árásir, sem hún verður fyrir. Þeir hindra eðlilegt samstarf sam- 'Vinnaióiága r;5 verkalýðsfélög, eins og bezt sást ar atcnr-junum í Keflavík og Ólafsvík. PRESTOLITE „THUNDERVOLT" eru út- búin sjálfhreinsandi kveikjuoddi, sem fyrirbyggir sótmyndun — þannig aB. neist- inn ec alltaf jafnsterkur — kostirnir oru: Auðveldari gangsetning, aukin vélaorka, minni benzíneyðsla og lengri ending kertisins. — Sendum í póstkröfu. — Þ. JONSSON & CO BRAUTARHOLTI 6 - SÍMI 15362 ■ REYKJAVIK m 4-landa ferð með fararstjórum. GAUTABORG — KAUPMANNA IIÖFN — HAMBORG — OSLO. 11 DAGAR KR. 11.887 Lönd og LeiÖir Sími 20800. ÉG HALLABI MER út af í hraun gjó u <js: hafði mosabyng fyrir kodda meðan ég lilustaðí á ræöurn ar, sem fluttar voru við setningu listamannaþingsins. Egr vildi lield- ur njóta hátíðarinnar í HeiSmörk cn í Háskólabíói. Þarna var fleira fóik í nágrenni við mig og alls- staðar var opið útvarp. Það var auðheyrt að fólkið fylgdist með því sem fram var að fara. MABUR VERÐUR OFT fyrir von brigðum á hátíðum. Þá hættir ræðumönnum við að v.era liátíðleg -ir og segja margt en lítið þó. Og þá fer maður lieim til sín án þess að hafa nokkurt nesti með, sér, úr þessum ræðum, og maður finnur tómleikann og tilgangs'eysið læð ast um sig, og þá eru erfiðir tím- ar fyrir óþolinmóða menn, sem vilja láta liendur standa fram úr ermum. EN ALLAR RÆÐURNAR, sem fluttar voru við setningu lista- mannaþingsins voru innihaldsrik ar og bentu til framtíðarinnar Ræðumennirnir sýndu manni markmiðið framundan og fundu kenni eitin allar leiðir frá for- tíðinni inn í þá framtíð, sem þeir drógu upp fyrir hugskotssjónum okkar, sem á hlýddum. HALLDÓR LAXNESS opnaði okk ur nýjan heim um leið og liann benti okkur á þá sögulegu stað- reyhd, að þjóðirnar hafa fram- leitt sín dýrustu listaverk á tím- um fátæktar. Ekki svo að skilja, að fátæktin þurfi endilega að vera skilyrði fyrir andlegum afrckum. En þetta sannar að minnsta kosti, að auður er ekki skilyrði fyrir af- rekuni í listum eða vísindum, ÞAD ER HÆTT VHD ÞVÍ, að okk ur fari eins og öðrum þjóðum og sagan sýnir, að fýsnin í fjármuni geri okkur hóglíf, en þaS er sálar sjúkdómur .ViS höfum á skömm um tíma farið úr. örbyrgð í alls- nægtir og ef við litumst um> sjá- um vlð það, að við kunnum ekki með allsnægtírnar. að fara. Þær kæfa svo marga. Við höfum smíð að. okkur nýja guði, mekaniska guði, giruga, gljáandi og lieimsk- andi en sem betur fer, eru meðal okkar menn, sem eru ósnor nir af þessu. Það eru þeir, og skapandf máttur þeirra, sem hægt er aD setja vonir sínar á. i EINN RÆÐUMANNANNA virtisl óttast, að dómgreind þjóðarinnar mundi bila svo aS hún gæti ekkl greint hismið frá kjarnanum. Ea ég ó-tast hað ekki. Eg þykist þekkJa alþýðufólkið- og það hef ur allt af, verið það og svo mun enn verða, sem lætur ekki blekkj- (Framliald á 4. síðu). 2 9- júní 1964 — ALÞÝÐUBLAÐIÐ

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.