Alþýðublaðið - 16.06.1964, Blaðsíða 11
Aktanes átti betri leik
en KR og sigraði 4:2
HINUM gamalgrónu og „rútiner-
uðu“ knattspyrnuliðum KR og
Vals var laglega skotið ref: fyrir
rass á sunnudaginn var af Akur-
nesingum og Keflvíkingum,. Utan
bæjarliðin skoruðu alls 8 mörk
gegn 3 hjá Reykjavíkurköppunum.
Ekki nóg með það, að þau sigr-
uðu svo glæsilega í mörkum, held-
ur sýndu þau bæði stórum betri
knattspyrnu en höfuðborgarliðin.
Knattmeðferð, yfirsýn öll -og bar-
áttuvilji þeirra var miklu > meiri
og betri en mótherjanna. Verkin
sýna og merkin. Árangur og út-
koma tala sínu ótvíræða máli þar
um. Er nú svo komið í I. deild,
að þar eru Keflvíkingar efstir og
eiga það fyililega skilið eftir gangi
og getu sínu í þeim leikjum, sem
þeir þegar hafa leikið.
★ FYRRI HÁLFLEIKUR 1:0.
KR og ÍA hittust á Akranesi og
fóru leikar svo, að heimamenn
sigruðu með 4:2, sem telja verð-
.hálfleiknum lauk svo með 1:0 fyrir
Skagann.
★ SÍÐARI HÁLFLEIKUR 3:2.
Enn var það Eyleifur sem byrj-
aði að Skora. Sökin var samt Þor-
geirs miðvarðar, er hann var of
seinn við afgreiðsluna. Halldór
I Sigurbjörnsson komst að knettin-
um og fær sent hann til Eyleifs,
scm skorar viðstöðulaust. Skömmu
siðar bjafga Akurnesingar í horn
— naumléga. Og rétt á eftir skor-
ár svo Elíert fyrra KR-markið. Er
rúmlega 20 mín. eru af leik á Ey-
leifur hráðan einleik upp miðju
1 vallarins,:en í návígi við KR-vörn-
' ina, innan vítateigs, er hann all
hart leikinn og fá KR-ingar á sig
vítasp.vrnu úr þeim tilþrifum.
Halldór skorar síðan úr horni.
Sökn KR stuttu siðar með fyrir-
gjöf Gunnars Felixsonar og við-
stöðulausu þrumuskoti Ellerts og
marki, jafnar metin nokkuð, og
auka á spennu leiksins. KR herðir
sig allt hvað af tekur, hver leik-
maður leggur sig allan fram. Jafn
tefli úr því sem komið var virt-
ist vera þeim allt. Þeir eiga hverja
sóknarlotuna af annarri, en án ár-
angurs. Vörn Skagamanna stóðst
atlögurnar. Skyndilega snýst vörn
þeirra í snögga sókn, er Eyleifur
spyrnir til Skúla, sem þegar skýt-
ur að markinu. Skotið var næsta
laust og af löngu færi með vinstri
fæti. Heimir stekkur í loft upp
og hyggs höndla boltann, en miss
ir hann og rennur boltinn undir
hann meðan hann er í loftsigl-
ingunni og í markið. Mörkin 4:2
var staðreynd og hélzt svo til leiks
loka, þrátt fyrir hörku KR-sókn
þær mínútur, sem eftir voru.
Frh. á 4. síðu.
KR sækir að marki ÍA, en Helgi ver. Ljósm. R. Snæfells.
Keflvíkingar enn ósigr-
aðir-unnu Val með 4:1
Eileifur rennir knettinum framhjá Heimi. Ljósm. R. Snæfelis.
LIÐ Keflvíkinga hélt áfram sigur-
göngu sinni í I. deildarkeppninni
í fyrrakvöld. Sigruðu þeir þá með
nokkrum yfirburðum getulítið og
sundurlaust lið Vals með 4 mörk-
um gegn 1.
Sigur Keflvíkinga var i alla staði
réttíátur og sízt of mikill eftir
gangi leiksins. Höfuðstyrkur liðs
Keflvíkinga er fyrst og fremst sá,
að það hefur ágætt- þrek til að
leika allt til leiksloka með þeim
hraða og dugnaði, sem telja verð-
ur hverju knattspyrnuliði nauð-
synlegt. Þess utan hefur þeim nú
tekizt að fá meiri ró og yfirvegun
í leik sinn en vcrið hefur á und-
anförnum árum. Þetta hefur svo
ur stórsigur. Það voru Akurnes-
ingar, sem skoruðu fyrsta markið,
er rúmar 10 mínútur voru af leik.
Eyleifur, hinn ungi og efnilegi leik
maður, sem hvað mesta athygli
hefur vakið í vor fyrir ágæt til-
þrif, sendi knöttinn inn, eftir að
Heimi hafði fatazf handtökin. Við
markið hljóp Skagamönnum aukið
kapp í kinn, og sóttu þeir næstu
10 mínúturnar fast á, en þá fær
KR gott færi, er Ellert Sehram
átti hörkugott skot og viðstöðu-
laust, en í stöng. Þarna voru KR-
ingar sannífrlega óheppnir. Fyrri
Úrslit á sunnudag:
IBA vann ÍBI 8:0
KEFLAVIK -VALUR
KR - AKRANES ....
Keflavík
Akranes
KR
Þróttur '
Valur
Fram
TVEIR leikir voru háðir í II. deild
um hclgina. í Kópavogi léku FH
og Breiðablik og við það tækifæri
var vígður nýr knattspyrnuvöllur
við Kópavogsbraut.
Leiknum lauk með jafntefli, 1
mark gegn 1. Hafnfirðingar skor-
uðu fyrst, þrátt fyrir það, að Breiða
bl‘k ætti fullt eins mikið í leikn-
um. Seint í síðari hálfleik jafnar
Breiðablik, en það gerði Jón Ingi
Ragnarsson með góðu skoti.
Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri,
flutti stutta ræðu áður en leikur-
inn hófst og sendi knöttinn til
Hafnfirð., sem .hófu leiklnn. Veður
var afleitt til keppni. Dómari var
Magnús Pétursson.
Á Akureyri léku heimamenn og
ísfirðingar. — Akureyringar unnu
yfirburðasigur, skoruðu 8 mörk
gegn engu. Steingrímur Björnsson
skoraði 5 af mörkunum. Staðan
í hléi var 2:0. Jón Stefánsson gat
ekki leikið með vegna meiðsla og
í lið ísfirðinga vantaðþ Björn
Helgason.
Akureyrarliðið er mjög gott
núna og fátt virðist geta komið í
veg fyrir, að það leiki í I. deild
næsta keppnistímabil.
það í för með sér, að beir ná oft
sæmilegum samleiksköflum út á
vellinum, en aftur á móti skortir
enn mikið á, að þeir séu færir um
að nýta þau tækifæri, sem flýtir
þeirra og dugnaður skapar þeim
upp við mark andstæðinganna. —
Framverðirnir voru tvímælalaust
beztu menn liðsins og voru -þeir
afar duglegir í fyrrakvöld, fljótir
í vörn og fljótir upp til að styðja
og byggja upp aðgerðir framlín-
unnar. Einnig var miðframvörð-
urinn Högni sterkur í stöðu sinni.
Af framlínumönnum voru þeir Jón
Jóh., Hólmbert og Karl einna virk
astir, en skortir enn mjög að nýta
tækifærin sem skyldi.
Lið Vals var ekki upp á marga
fiska í þessum leik. Aftasta vörn-
in og framverðirnir börðust að vísu
vel allan leikinn, en það dugði
skammt, því jafnan var við ofur-
efli að etja. Sóttu oftast að allir
framlínumenn Keflvíkinga og þar
að auki framverðir þeirra tveir
Voru því þannig oftast sjö í sókn
af hálfu Keflvíkinga, en aðeins
, fimm Valsmenn til varnar, því það
bar sjaldan við, að nokkur úr fram
línu Vals kæmi aftur til hjálpar
vörninni, þó eðlilegt verði að telj-
ast að jafnan komi a. m. k. tveir
þéfrra aftur. Nú á tímum er oft
talað um kerfi, t. d. 4—2—4, eða
6—2—2. Ef lýsa ætti leik Vals-
manna með þeim hæti, þá lægi
næst við að segja, að þcir hefðu
ieikið 5—5, sem óneitanlega verð-
ur að teljast nokkuð glæfraleg léik
aðferð. Við sóknaraðgerðir reynd-
ist framlínan mjög seinheppin.
Þannig tókst þeim eklci að skéra
í seinni hálfleik, þrátt fyrir dágóð’
tækifæri og þrátt fyrir það, ‘atS
þeir léku undan sterkum vindi3
(Framhald á 4. síðu).
A-riðUl:
L U J T M
Vestm.eyjar 3 3 0 0 8—4
FH .3210 11—1
Víkingur ... .4 2 0 2 7—10
Breiðablik .3012 3—5
Haukar .2 0 0 2 3—6
B-rlffiU:
Akureyri ... .110 0 8—0
ísafjörður .2101 3—10
Siglufjörður 10 0 1 2—3
Lið Tindastóls frá Sauðárkr
St.
6
5
4
1
0
2
2
0
hefur hætt kcppni.
5 íslandsmet
Á SUNDMÓTI ÍR í gærkvöldi
voru sett fimm íslandsmet. Guð-
mundur Gíslason, ÍR, setti þrjú,
í 50 m. skriffsundi, 25,5 sek., (Lund
in annar á 25,9), í 100 m. skriff-
sundi 56,8 sek. (Lundin vann á
56,2) og í 100 m. baksundi, 1:05,6
mín. (Lundin annar á 1:08,3 sek.).
Hrafnhildur Guffmundsdótir, ÍR,
setti met í 100 m. skriffsundi, 1:04,4
mín. og í 100 m. baksundi 1:19,1
mín. Nánar verffur skýrt frá mót-
inu á morgun.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ — 16. júní 1964 1*