Alþýðublaðið - 24.07.1964, Blaðsíða 1
mMMM)
44. árg. — Föstudagur 24. júlí 1964 — 165. tbl.
Aflinn á vetrarvertíð
jókst um nær þriðjung
Reykjavík 23. júlí GO.
Af SKÝRSLU Fisklfélagsins
um heildarfiskafla landsmanna á
tímabilinu 1. jan. til 30. apríl 1964,
•sézt að aflinn hefur aukizt um
28% miöað við sama tímabil í
fyrra, þrátt fyrir að síldaraflinn
hefur minnkað um rúm 10.000
tonn.
Heildaraflinn á tímabilinu, allt'
talið, var 345,282 tonn á móti
269,865 tonnum 1963.
Aðferðir við vinnslu aflans eru
þær sömu og á sama tíma í fyrra
og hlutfallið milli þeirra svipað,
nema söltun á þorski hefur stór
aukizt eða úr 47,731 tonn 1963 í
72,579 tonn í ár og er þar með
orðin næstvinnsælasta verkunarað
ferðin á eftif frystingunni.
Hinn stóraukni þorskafli mun
eingöngu að þakka hringnótinni,
sem notuð var með frábærum. ár-
angri á vertíðinni í vetur. Neta-
aflinn mun hafa verið mjög svip
aður og árið áður.
VertíðarafU báta og togaraflot-
ans var 271,525 tonn og hafði auk
izt um tæp 80.000 tonn frá sama
tima í fyrra, þorskaflinn einn jókst
um 76,975 tonn.
Hlutur togaraflotans í aflanum
er heldur lakur, eða 20,227 tonn
og hefur minnkað frá sama tíma
— í fyrra um tæp 2000 tonn.
Bátaflotinn einn skilaði 80,000
tonna meiri afla ef síldin er ekki
‘alin með, en ef hún er innifalin
77,606 tonnum meiri á tímabil-
inu. (Ath. loðna innifalin).
Rækjuaflinn á tímabilinu hefur
minnkað úr 349 tonnum í 89.3
tonn og humaraflinn úr 3,6 tonn-
um niður í ekkert.
BUKAVU, 23. júlí (NTB-Raut-
er). — Forsætisráðherra Kongó,
Moise Tshombe, sem nú er í heim
sókn í Kivu-héraði, þar sem mikil
ólga er ríkiandi, fyrirskipaði í dag,
að neyðarástandinu í héraðinu
yrði aflétt. Hann hefur rætt við
foringja uppreisnarhreyfingarinn-
ar í Ausur-Kongó og segir viðræð
urnar hafa verið mjög gagnlegar.
í ræðu í Búkavu kvaðst hann telja
helzta hlutverk sitt að koma á sætt
um í Kongó.
Fossvogsræsið
Reykjanesbraut
Reykjavík, 23 júlí — HP.
í DAG var umferðinni um Hafn
arfjarðarveginn beint á aðra braut
nær sjónum á kafla í Fossvogi
vegna Iagningar Fossvogsræsisins.
Við ræsið er unnið af fulium krafti
og er nú búið að fujlleggja rörið
ves'an flugbrautar og upp að
Reykjanesbraut, ganga frá því að
öllu leyti, og verður brátt farið
að moka ofan í að því, er Ásgeir
Valdimarsson, sem er yfirverk-
fræðingur við framkvæmdirnar
tjáði bíaðinu í stuttu viðíali í
kvöld.
Hann kvað verkinu hafa miðað
vel áfram. Búið væri að grafa fyr-
ir ræsinu eftir Fossvogsdal upp á
gegnum
í gær
móts við Réttarhol'sveg. Skilið
hafði verið eftir haft, þar sem
Hafnsj-fjarðarvegurinn og ræsið
skerast, en í dag var það rofið. Er
nú verið að sprengja og grafa í
landi skógræktarstöðvarinnar í
Fossvogi. Sprengingum þar er al
veg að verða lokið, en þær hafa
Framhald á 13 síðu
Ovissa um Vest-
mannaeyjaslýið
Reykjavík 23. júlí — GO.
Eins og kunnugt er af fyrri
frét um, eiga Vestmannaeyjabátar
nú í miklum erfiðleikum með veið
arfæri sin vegna slýs, sem sezt í
möskvana og lokar þeim. Slý
þetta virðist allsráðandi á öllum
venjulegnm togmiðum Eyjabáta
og Eyrarbakkabáta. Þe'.ta lítur út
eins og brúnleit leðja og er mjög
ógeðslegt.
Sýnishom af fyrirbæri þessu
var sent til rannsóknar hjá At-
vinnudeild Háskólans og barst blað
inu eftirfarandi fré'datilkynning
þaðan í dag:
„Fiskideildin hefur athugað sýn
ishorn af „slýi“ því, sem að und-
anförnu hefur sezt í vörpur Vest-
mannaeyjabáta.
Meginuppistaðan í þessu er slím
kenndur vefur úr lægri dýrum,
sem ekki er unnt að greina til á-
kveðinnar tegundar vegna þoss,
hve kraminn vefurinn er og sund
urtættur. Að ytra útliti er þetta
sem brúnar trefjar og stafar lit-
urinn að nokkru leyti af botnleðju
en einnig af svifþörungum, sem
sezt hafa í „slýið".
Eins og sjá má er ekki mikið að
græða á fréttatilkynningu þessari,
en Jón Jónsson forstöðumaður
Fiskideildarinnar sagði í stuttu
símtali við blaðið í kvöld, að þetta
væri í rauninni það eina sem vit-
að væri. Allar tilgátur um að liér
sé um svif úr heitari höfum að
ræða eru úr lausu lofti gripnar,
því sýnishorn þau, sem Fiskideild
in hefur haft til rannsóknar eru
svo illa farin að þau verða ekki
greind til neinnar sérstakrar teg-
undar. Liklegt er þó að hér sé
um lífverur úr dýraríkinu að ræða.
Jón sagði að sjálfsagt yrði gerð-
ur út sérsiakur rannsóknarleiðang
ur ef ósköpum þessum linnti ekki
og sjómenn lentu í enn meiri vand
ræðum vegna þess arna.
Bátarbíða
áhafnanna
Seyðisfirði, 22. júlí
SALTAÐ var hér smávegis á
tveim söltunarstöövum í dag, 309
tunnur á annarri og eitthvaö
minna á hinni. Heildarsöltunin er
þá komin í á að gizka 22-23 þús.
tunnur hér. Bátarnir eru farnir að
tínast út, enda er veðrið mikið að
lagast. Þó liggja 15-20 bátar inni
enn og mun það stafa af því, að
áhafnir fóru sumar hverjai suður
á meðan þessi langa bræla stóð.
Framh. á 4. síðu.
Drottningin hættir
nú um áramótin
Reykjavík, 23. júlí, - HKG I Óráðið er, hvað gert verður við
DRONNING Alexandrine liggur í Drottninguna.
Reykjavíkurliöfn, en nú fer aö | Dronning Alexandrine hefur ver
fækka ferðum hennar hingað. Um ! ið í förum á milli íslands og Dan-
næstu áramót kemur nýtt skip í merkur allt frá árinu 1927. Hún
hennar stað, Kronprins Olav, sem fer þetta tvisvar í mánuði yfir
hingað til hefur verið í feröum á sumartimann, en á þriggja vikna
milli Kaupmannahafnar og Oslo. Framhald á síðu 4