Alþýðublaðið - 10.09.1964, Blaðsíða 1
✓
44. árg. — Fimmtudagur 10. september 1964 — 205. tbl.
Heyfengur
aldrei meiri
Reykjavík, 9. sept. — HP.
ÞRÁTT fyrir slæma óþurrka á
Suður- óg Vesturlandi í júlímán-
uði í sumar, má segja, að heyskap
þar hafi víðast hvar lokið fyrir
liálfum mánuði. Mun nú óhætt að
fullyrða, að heyfengur lands-
manna hafi aldrei orðið meiri á
einu sumri en nú. Á Norður- og
Austurlandi eru hey bœði mikil
og góð, en sunnanlands og vestan
verður eflaust nauðsynlegt að
gefa talsvert af kjarnfóðri með í
vetur vegna slæmrar nýtingar
lieyjanna, þó að sjálfur heyfeng-
urinn sé orðinn ágætur þar.
Blaðið aflaði sér þessara upp-
lýsinga í dag hjá Ólafi Stefáns-
syni, sem nú gegnir störfum bún-
aðarmálastjóra. Sagði hann alveg
ástæðulaust að óttast fóðurskort
í vetur, því að heyfengurtnn hefði
aldrei verið meiri en nú. Fyrir
hálfum mánuði mátti heyskap
heita lokið hér á Suðurlandi, og
var þá langt komið að ganga frá
heyjum, sem víða standa nú úti,
þar eð heyfengurinn er orðinn svo
mikill, að hlöðupláss er ekki til
fyrir hann allan. Óþurrkakaflinn
í júlí, sem gætti á öllu Suður- og
Vesturlandi, a. m. k. vestur í
Snæfellssýslu og Dali, seinkaði
slætti, en grasvöxturinn varð að
sama skapi meiri og þar með hey-
fengurinn, þó að næringargildi
heyjanna á þessu svæði sé svo lít-
ið, að talsvert verði að gefa með
af fóðurbæti þar i vetur, einkum
þar sem kúabúin eru stærst. —
Vegna þess, hve seint var slegið.
víða á þessu svæði og háarspretta
þvf léleg, hefur nijög l'ítið ve'rið
slegið upp, pg þar sem fyrst var
slegið, hafa túnin verið notuð til
Iðnþing
hafið
Reykjavík, 9. sept. — HP.
26. I9NÞING íslendinga hófst á
Akureyri í dagr, en það er haldið
þar að þessu sinni í tilefni af 60
ára afmæli Iðnaðarmannafélags
Akureyrar. Forseti Landssam-
bands iðnaðarmanna, Guðmundur
Halldórsson, húsasmíðameistari,
setti þingið kl. 2 síðdegis og bauð
fulltrúa og gesti velkomna og
minntist látinna forvígismanna.
Bæjarstjórinn á Akureyri, Magn-
ús E. Guðjónsson, flutti ávarp og
bauð þingfulltrúa velkomna til
Akureyrar, en ljóðakveðja barst
frá Jökli Péturssyni, málarameist-
ara.
í dag flutti forseti Landssam-
bands iðnaðarmanna, Guðmundur
Halldórsson, skýrslu stjórnarinn-
ar fyrir starfstímabilið frá nóv-
ember 1963 til ágústmánaðar 1964
Framh. á bls. 4
oringjar
/
__ I
í GÆR birtu blöðin Pravda í Moskvu og Þjóðviljinn
í Reykjavík samhljóða tilkynningu þess efnis, að lun
síðustu mánaðamót hefði farið fram í Moskvu fundur
æðstu manna rússneska kommúnistaflokksins og Sam-
einingarflokks alþýðu — Sósíalistaflokksins.
Af hálfu Rússa tók þátt í fundinum L. I. Bresnev,
sem nýlega iét af emhætti sem forseti Sovétríkjanna
og er af mörgum talinn líklegur eftirmaður Krustjovs.
Einnig var á fundinum A. S. Beljakov, varaformaður
alþjóðadeildar rússneska kommúnistaflokksins.
Af íslands hálfu tóku þátt í fundinum þessir:
Einar Olgeirsson, formaður Sósíalistaflokksins. Lúð-
vík Jósefsson, varaformaður flokksins, Guðmundur
Hjartarson, formaður framkvæmdanefndar flokksins,
Brynjólfur Bjamason og Sigurður T^oroddsen.
Samkvæmt tilkynningunni var rætt um „ýmis á-
hugamál flokkanna“, og hófu íslendingarnir máls á
auknum viðskiptum Sovétríkjanna og íslands, en
Rússar tóku vel í það mál.
Slíkir fundir sem þessi hafa án
efa á t sér stað fyrr, því að ís-
Ienzkir kommúnistar hafa haft
náið samband við rússneska
kommúnistafiokkinn í rúmlega
40 ár. Hitt er algert einsdæmi, að
skýrt skuli vera opinberlega frá
slíkum fundi.
Kunnugir menn telja eftirfar-
andi atriði merkileg í sambandi
við mál þetta:
'l) Það nýmæli að skýra opin-
berlega frá fundinum. SKk forms
atriði hafa jafnan mikla þýðingu
í augum kommúnista.
2) Óhjákvæmilegt er, að deila
Rússa og Kínverja hafi verið aðai
umræðuefni fundarins.
3) Vafalaust hafa Rússar krafizt
RETTIN
L. I. BRESNEV
þess, að tilkynning væri gefin út,
til að geta talið íslenzka kommún.
ista í sínn liði gegn Kínverjum.
4) Það er merkilegt, að Bryn-
ijólfur Bjarnason, sem á að heita
seztur í helgan stein, skuli hafa
verið kallaður til Moskvu. Hana
hefur verið taiinn í hópi þeirra
gömlu kommúnista, sem höfðia
samúð með Kínverjum.
5) Einar Olgeirsson hefur dval
izt iangdvöltun í Rússlandi í sum,
ar og fyrra sumar. Hann hefur
án efa undirbúið fundina með
Rússum til að beygja félaga sína
og hrista flokkinn saman.
Frsmhald á 13. síðu-
xæss
iMism
REYKJAVÍK, 10. september. — EG.
ic DANSKA BLABID Berlingske Aftenavis birti í gærkvöldi fjögurra dálka
forsíðufréít um samkeppni SAS og LoftleiSa. í lok fréttarinnar segir, að
flugmálayfirvöíd Noregs, Danmerkur og Svíþjóðar standi nú einhuga saman
gegn Loftieiðum. Sé þess að vænta að tala þeirra farþega, sem Loftleiðir
mega ffytja til og frá Norðurlöndum, verði takmörkuð við það, sem gengið
var út frá í upphafi, þegar Loftleiðir notuðu flugvélar af Skymaster-gerð.
★ Segir ennfremur í fréttinni að
flugmálayfirvöld fyrrgreindra
Norðurlanda séu einhuga um þá
kröfu, að nijókltað verði það bil,
sem nú er milli fargjalda Loft-
leiða og Iata-fargjalda.
i Fyrirsagnir fréttari-nnar í blað-
inu eru þrjár. í efstu línu segir:
j Útþensla Loftleiða og SAS, síðan
i segir í tveim línum, að stjórnvöld
muni að lokum gera út um sam-
keppniskjör Loftleiða og SAS. Að
lokum er svo aðalfyrirsögnin:
Rciðubúnir að segja stopp. (Parat
til at sige stop).
Fer frétt blaðsins hér á eftir í
1-uslegri þýðingu.
Stjórnarvöld munu að lokum á-
kveða samkeppniskjör SAS og
T oftleiða. Spurningin er sú, hvort
SAS eigi að halda áfram að missa
I sf milljónatekjum vegna sam-
keppninnar frá íslenzka flugfélag-
inu Loftleiðir. En samkeppni af
þess hálfu hef'ir fnrið vaxandi.
íslenzka flugfélagið hefur smám
I saman aukið umsvif sín, þannig að
viðhorfin eru nú allt önnur en
þegar loftferðasamningar voru
upphaflega gerðir milli Norður-
landanna.
160 FARÞEGA
FLUGVÉLAR.
Þessi spurning verður meira
knýjandi en áður eftir 1. nóvem-
ber n.k. Loftleiðir notuðu upphaf-
lega flugvélar af gerðinni Douglas
DC-4 á Atlantshafsflugleiðinni, hin
Framhald á síðu 4
MMUttUmtWVHUMtMiHW
látinn
Ojð
Helsingfors, 9. sept.
(NTB-NNB)
Sáttasemjari SÞ í Kýpur-
deiiuuni, Sakari Tuomioja,
fv. forsætisráðherra og sendi
herra í Stokkhólmi, lézt í
kvöld í Helsingfors, 52 ára
að aldri. Hann var meSvit-
undarlaus síðustu klukku-
Framliald á síðu 13.