Alþýðublaðið - 24.09.1964, Page 8
‘.MiiiiiiiiinimiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiitiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiitiit 111111111111111 iimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiimiuiu: iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiliiiiiiiiiiiuiiiuiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiililiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii'iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiaiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii' ffj
i. iHiHiiiiiiiiiiHtiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiHiiiHiiHiHiiiimiiiiiimiiiiiimimiiiiiiiiiimiiiiiimm ‘immmimiiiiiiiHiiiiiiiimiHiiiiiimiiiHiiiiiiimiiii iiiiiimmiiiiiiiiuHiiiiiiiimiiiiiimimmmmiHHiiinHiHiimiHHiimiiiiiHuiiiiiiHiiiimiiiiiiiiinuiuii'
Rætt við Témas Einarsson, rann-
sóknariögregliimann, sem dvaldist í
snmar í IVIInnesota í Bandaríkiienum og
kynnti sér meöferð afbrotaunglinga.
Reykjavík, 21. sept. ÞB.
TÓMAS EINARSSON, rann-
sóknarlögreglumaður, dvaldist *
sumar vestur í Minnesota í
Bandaríkjunum og kynnti sér
þar, meðal annars, meðferð
vandræðaunglinga þar.
Blaðið hafði tal af Tómasi um
þessa ferð, sem tók alls 4% mán
uð, frá 12. apríl til 1. september.
— Á hverra vegum fórstu,
Tómas?
— Stofnun, sem heitir Cleve-
land International Program for
Social Workers and Youth Lead
ers, auglýsti eftir umsóknum um
Bandaríkjaför. Við fórum tvö
frá íslandi, ég og Hólmfríður
Gísladóttir, barnakennari frá Ak
urcyri.
Þessi stofnun, sem á aðsetur í
Clevelánd, er stofnuð af þýzk-
um Bandaríkjamanni, Henry Oli
endorff, árið 1955. Upphaflega
stuðlaði hún aðeins að sam
skiptum milli Þjóðverja og Banda
ríkjamanna, en upp á dðkastið
hefur þetta breytzt og stofnunin
er nú alþjóðleg. í ár komu á
hennar vegum 176 manns frá 55
löndum í öllum heimsálfum til
Bandaríkjanna.
— Hvernig var dvölinni hátt
að?
— I upphafi var hópnum
skipt í fjóra smærri, sem síðan
fóru sinn í hverja áttina. Sá hóp
urinn, sem ég lenti í, fór til
St. Paul og Minneapolis í Minne
sótaríki. Borgirnar eru oft
nefndar í einu lagi Twin Cities.
Fyrstu 6 vikurna? hlustuðum
við á fyrirlestra, í þrjár vikur
var aðallega um að ræða al-
menna kynningu á bandarísku
þjóðinni, sögu hennar og lífs-
háttum. Seinni þrjár vikurnar
voru haldnir fyrirlestrar um
Social Work, eða félagslega leið
beiningastarfsemi: Fyrirlestrarn
ir voru haldnir í háskóla Minne
sotafylkis, en í honum starfar
sérstök haskoladeild í þessari
grein. Jafnframt fyrirlestrunum.
sem voru haldnir árdegis, voru
okkur sýndar ýmsar stofnanir síð
degis. Að 6 vikunum liðnum
dreifðist hópurinn og flestir
fóru til starfa hver á sínu sér-
sviði á bandarískum stofnunum.
Ég fór hins vegar ásamt tveim
öðrum gestum, Indverja og Aust
urríkismanni, á lögreglunám-
skeið, sem haldið var í borginni
á sama tíma. Þetta námskeið er
TOMAS EINARSSON.
haldið árlega í háskólanum 1
Minnesota fyrir lögreglumenn.
sem starfa að vandamálum
unglinga. Alls voru saman
Nokkrir (af félögum Tómasar á námskeiðinu. Talið frá vinstri: Norður-Rhódesíubúi, Kenýumaður,
Indverji og Jamaicubúi. - : ;• !
'L
........................................................................................ .......
komnir á námskeiðinu milli 60
og 70 lögreglumenn víðs vegar
að frá Bandaríkjunum.
— Hvað geturðu sagt okkur
um meðferð afbrotaunglinga
vestra?
— Þau mál eru tekin nokkuð
öðrum tökum en hér heima. Við
liöfum barnaverndarnefnd, sem
fjallar um mál unglinga, sem
brjósta af sér. Þegar ég hef rann
sakað mál unglings fæ ég það
í hendur barnaverndarnefndar.
Þetta gildir um unglinga innan
15 ára aldurs. Eftir að beir eru
orðnir svo gamlir teljast þeir
sakhæfir og um mál þeirra er
fjallað fyrir venjulegum dóm-
stólum. í Bandaríkjunum er
þessu öðru vísi farið. Þar tíðk
ast ekki barnaverndarnefndir, en
í þeirra stað hafa menn unglinga
dómstóla, sem fá til meðferðar
afbrotamál unglinga allt til 18
ára aldurs. Lokaúrræðið til
bjargar unglingunum er jafn-
an að senda þá á uppeldisheim-
ili. Slíkt er þó ekki gert í neinu
fljótræði, heldur að vel athug
uðu máli og við rannsóknir á að
stæðum unglinganna njóta dóm
arar aðstoðar nokkurs konar eft
irlitsmanna, sem hafa kynnt sér
þær.
Þarna í Twin Cities sá ég
uyggrngu, sem vaKii nriimngu
mína. Það var staður til að
geyma afbrotaunglinga meðan
mál þeirra eru rannsökuð. Þar
má geyma þá í nokkrar vikur.
Þarna eru bæði piltar og stúlk-
ur og reynt er að láta þau-lifa
tiltölulega eðlilegu lífi. Þeim er
stöðugt hald'ð að einhverju
námi', starfi eða leikjum. Þetta
er mjög mikilsvert vegna þess,
að með þessu móti er forðazt að
unglingar, sem lenda í vandræð
'ura dragist aftur úr jafnöldrum
sínum í námi. Ef dómarinn á-
kveður, að unglingur skuli fara
á uppeldisheim'li. fer hann ekki
þangað befnt, heidur dvelst hann
fyrst um 6 vikna skeið á stað
þar sem fram fer vtarleg rann-
sókn á andlegri heilbrigði hans
Ekki þarf að lýsa bví hve þetta
er mikilvægt með tilliti til síð-
ari hjálpar vrð unelinsana. Sjálf
uppeldisheimilin eru bæði góð
og slæm. Öllum mun bera sam
an um, að miög stór heimili séu
ekki heppileg. Eitt :sá ég, þar
sem voru 320 strákar og annað
þar sem voru miPi 50 og 60.
Bragurinn á bessum tveim stöð
um var miög ólíkur.
;— Er mikill munur á þeim
vandamáium, sem er við að
glíma í Minnesota oe á íslandi’
— Það segir sig siálft, að það
gerist fleira á stóru heimili, en
í stórum dráttum virðast mér
vandamálin svÍDaðs eðlis, ekki
aðeins í Mmnesota. heldur um
allan heim. Fg hiHi harna fólk
alis staðar að úr heiminum, frá
Pakistan. N-Rhódesfu: Honduras,
Indlandi. Kenva og víðar. Allt
þetta fólk kannaðM við mín
vandamal í starfi og öll gátum
við haft gagn af skoðunum og
ráðum hvers annars.
— Hvað teiur bú Tómas, brýn
asta úrlausnarefníð til hjálpar
unglingum á glapstigum hér á ís
landi?
— Það þarf að eera vandlega
rannsókn og síðan áætlun.
byggða á lienni og sú áætlun
þarf að ná lengra en til næsta
dags. Það sem .krefst tafarlausr
ar úrbótar er stúlknaheimilið,
sem enn er hvergi til. Eins og
málum er nú háttað, er enginn
samastaður til fyrir stúlkur, sem
vitað er, að ekki vorður bjargað
nema þær séu fluttar í nýtt um
hverfi. Þær eru aðeins sendar
aftur til heimila sinna. í vet-
ur mun þó verða starfræktur
heimavistarskóli fyrir stúlkur
hér uppi í Mosfellssveit. Það er
allténd byrjun þótt það sé langt
frá því að jafngilda uppeidis-
heimili.
Framhald á 10 síðu
1 ,iiiiiii,iiiiiiiii,iimiKnniii,iiiiiin,iiiiiii,inirilll,llii„i|lmiiliii,nilii„„iilln,
i -u; HnriiriiriiiHiiHrniii -
8 24. sept. 1964 — ALÞYÐUBLAÐIÐ
iiiii!iiiiiijrmiHHiiiimiiiiHiliiiiHiiiiHHHiiiiiiniHiiiHiHiiiiHiHHiiiiiiHiiiHiiiiHiniHiiiHiimiiiiiinHHiiiiiiHHi»niim*iiininiiiimiiiiiiiiiiiii UiiHiiiniiiiiiiiiiiiiiiiliiuiiiiHiHiiiHiiiiiiiHiniiHiiHiiiiHiiiuiiHmiiiiHHiHiiimiiHiiiiiiiiHHiiiiiiiiiii TiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiHiiiiiiiiiiiiiiiHiiiiiiUHiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiHniiHiiiiiiiiiHniiiiinniiiiiiiiiui.uiiiiniiHiiiimiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiii