Alþýðublaðið - 09.10.1964, Qupperneq 10
vantar unglinga til að bera blaðið til áskrif'
enda í þessum hvetfum:
Melunum
Högunxun
Lönguhlíð
Framnesveg
Bræðraborgarstíg
Laufásveg
Afgreiðsia Atþýðublaðsins
Sími 14 900.
Duglegir sendisveinar
ÓSKAST.
Afgreiðsla Aíþýðublaðsins. Sími 14 900.
Járniðnaðarmenn
- Nemar
Viljum ráða nokkra vélvirkja,
rafsuðumenn og nema.
Vélsmsðjan DYNJANDI
Dugguvogi 13. — Sími 36270.
StarfsStúlkur
óskast að Visthcimilinu að Arnarholti.
Upplýsingar í síma 22400 kl. 9—17.
Reykjavík, 8. október 1964.
Sj úkrahúsnefnd Reykjavíkur.
Hús 'til niðurrifs
Til sölu eru innviðir liússins Austurgötu 1 í Hafnarfiiði,
ásamt miðstöðvarofnum, þakjárni og öðru því, sem nýti-
Iegt cr.
Tilboð óskast send á bæjarskrifstofuna í Hafnarfirði
fyrir mánudagskvöld. Nánari upplýsingar gefur undir-
ritaður.
Bæjarritarinn í Hafnarfirði.
NAUÐUNGARUPPBOÐ
annað og síðasta, á neðri hæð húseignarinnar nr. 107
við Bústaðaveg, hér i borg, talin eign Þóru Ásgeirsdótt-
ur, fer fram á eigninni sjálfri miðvikudaginn 14. október
1964, kl. 2,30 síðdegis.
Borgarfógetaembættið í Reykjavík.
Andlitið
Framhald af 7. síðu
eins og fleiri sinna mynda og
koma í henni glöggt í ljós mikl
ir hæfileikar hans til þess að
skapa lyriskan en um leið há-
dramatízkan texta.
Ég geri mér vart Ijóst sjálf
ur, hvemig því er varið, að
texti Bergmans við „Andlitið"
minnir mig á texta Robbe
Grillets við „Fyrir ári í Mari
enbad. Kannski eru það endur
tekningamar, kannski er það
andrúmsloftið, sem textinn
skapar.
Ekki verður sagt, að þeir
eigi margt sameiginlegt Alain
Resnais og Bergman, sé litið
til atriða, sem hægt er að vísa
til, og myndu víst ýmsir segja,
að ólíkari kvikmyndahöfunda
gæti vart. Samt þykist ég finna
stemingu í framvindu hluta
sameiginlega báðum, tilfinn-
ingu fyrir hinu dula, því sem
hvergi kemur fram svo hönd
verði á fest.
Ég er ekki sammála þeirri
vísvitandi stefnu Bergmans í
„Andlitinu" að sveigja svo frá
því mystiska er á líður mynd
ina, sem hann gerir.
Allt er það rökrétt og heilt
á sína vísu, en ég hefði viljað
halda fyrstu stcmmingunum
til enda, í henni var sterk
póesía og myndar andrúmsloft,
svo sem ég hef fyrr um getlð.
Endirinn, hið gneistandi
fjör og léttleiki, sem allt í
einu flæðir yfir áhorfandann,
hefði að mínu viti líka virzt
magnaðri og meira lausnarorð,
ef stemmingu upphafsins hefði
verið haldið lengur.
Um leik í myndinni ræði ég
ekki. Hann er kyngimagnaður
á fullkomna Bergman-vísu __
þar ber ef til vill hæst gömlu
konuna og leik hennar.
Sjáið þessa mynd.
H. E.
Kosningabaráttan
Framhald úr opnu.
þess að rekast á niðurstöður ein
hverrar skoðunarkönnunar. Mik
ilvægasta spurningin er vita-
skuld sú, hvernig Bretar muni
kjósa á kosningadaginn. Margar
rannsóknir liafa verið gerðar og
þær eru ekki allar teknar jafn
hátíðlega.
Mest mark er tekið á könnun
um Gallup-stofnunarinnar og
„National Opinion Poll“. í síð-
ustu viku sagði NOP að íhalds-
menn hefðu 2,9% meira fylgi
en Verkamannaflokkurinn en
Gallup kvað fylgi þeirra 1%
meira. En á sunnudaginn voru
birar niðurstöður nýrrar Gall-
up-könnunar í „Sunday Tele-
graph" og samkvæmt henni er
fylgi Verkamannafiokksins 4.5
meira en fylgi íhaldsmanna.
Úrslit kosninganna verða í
rauninni ráðin í 60 vafakjördæm
um, þar sem frambjóðendur sigr
uðu með naumum meirihluta í
síðustu kosningum. íhaldsrhenn
. halda nú 50 þessara kjördæma,
en Verkamannaflokkúrinn 10.
Sérstök könnun í : vafakjördæm-
unum leiðir í ljós, að Verka-
mannaflokkurinn hefur 4%
meira fylgi en Xhaldsflokkurinn
og nægir það til þess, að Verka
mannaflokkurinn fái starfhæfan
meirihluta í Neðri málstofunni.
Skoðanakannanir geta aldrei
gefið algerlega nákvæma mynd
af ætlunum kjósenda. Að
minnsta kosti verður að gera ráð
fyrir að þær geti skakkað um
nokkur prósent, og þá er aðeins
hægt að draga eina ályktun af
hinum mörgum skoðanakönnun-
um, sem gerðar hafa verið fyrir
þessar kosningar í Bretlandi: Að
það er alls ekki hægt að kom
ast að neinni niðurstöðu. Brugð
ið getur til beggja vona í kosn
ingabaráttunni. Siðustu dagarn-
ir fyrir kosningarnar geta skor
ið úr um sigurinn.
Eigil Helle,
Arbeidarbladet.
Pedersen
Framhald af sfðn 11.
un ný stigatafla og hún er mjög
ólík þeirri gömlu. Heimsmethaf-
inn Yang tapar miklu á henni og
sigur hans er ekki öruggur, eins
og verið hafði, ef sú gamla hefði
gilt. Þjóðverjinn Bock er mjög
sterkur tugþrautarmaður og gæti
sigrað og Rússarnir eru sterkir.
Bandarísku tugþrautarmennirnir
koma varla til greina að þessu
sinni.
SPÁ: Yang, Formósu, Bock,
Þýzkalandi, Kuznetsov, Sovét.
JUDO
Framh. af bls. 11.
æfða sem byrjendur, og eru til-
valið tækifæri fyrir þá sem ætla
sér að ná góðum árangri, en þá
geta þeir æft sig að vild.
Þá skal einnig vakin athygli á
tímariti um judo og lyftingar, sem
JUDO-deild Ármanns gefur út, en
það fæst í ýmsum bókabúðum. 1
því er m. a. grein eftir einn bezta
judo-mann sem nú er uppi, Trevor
P. Leggett 6. dan. um judó í fram
kvæmd. í ritinu er einnig grein
um Olympíu-lyftingar eftir Kára
Marðarson, sem mörgum er að
góðu kunnur hér á landi. Þá má
einnig geta þess, að eftir nk. ára
mót er von á fyrstu kennslubók-
inni í judo, sem gefin er út á ís-
lenzku. Hún er eftir R. Bowen 4.
dan og Dr. Hodkinson 1. dan. Bók
þessi er af iléstum júdófþjálfurum
tálin með beztu kennslubókum í
sinni grein, enda er aðalhöfund-
urinn, R. Bowen, mjög reyndur
þjálfari, sem hefur dvalið árum
saman í Japan til að læra judo.
- Innritun í alla æfingaflokkana
í judo fer fram < skrifstofu Ár-
manns 1 jftróttahúsl Jóns Þr
steinssonar a manudögum, mið-
vikudögum og föstudögum kl. 8-
9.30 s.' d. Þar eru einnig gefnar
allar nánari upplýsingar um æf-
ingarnar. Athygli skal vakin á því,
að innritun fer ekki annars staðar
fram. né á öðrum tíma.
(Frá judodeild Ármanns.)
Samþykktir
(FramhaM aí 7. slSn).
Sjómannasambands íslands, að fá
mann sem starfi að skipaeftirliti
og geti framkvæmt skyndiskoðan-
ir á öryggistækjum og útbúnaði
skipa.
Þingið skorar á stjórn S. S. í.
að beita sér fyrir því að komið
verði upp trúnaðarmannakerfi
samtakanna í sem flestum ver-
stöðvum og á sem flestum skip-
um sem verði eftirlitsmanni þess-
um til aðstoðar.
4. þing S. S. í. skorar á milliþinga
nefndir þær er nú fjalla um ör-
yggismál sjófarenda að flýta störf-
um sínum sem mest og ítrekar í
því sambandi fyrri samþykktir urn
ráðstafanir til þess að samband
megi hafa við íslenzk fiskveiði- og
flutningaskip á ákveðnum tíma
sólarhringsins, svo fylgst verði
með hvar þau eru stödd hverju
sinni, svo hjálp megi berast hið
fyrsta, ef slys ber að höndum eða
skipi hlekkist á.
Þingið harmar það sleifarlag
sem orðið hefur hjá Landssíma ís-
lands á því að útvega opnum skip-
um og minni vélbátum hentugar
og ódýrar talstöðvar og endurtek-
ur fyrri kröfur um að úrbætur á
þessu sviði verði gerðar hið frysta.
4. þing S. S. í. skorar á Alþingi,
að lögfesta á næsta hingi ákvæði
þess efnis að skipum og bátum sé
skylt að hafa viðurkennd neyðar-
senditæki um borð, sem hentug
séu til að taka með í gúmbáta eða
aðra björgunarbáta ef slys ber að
höndum.
Viðbót frá kjaranefnd:
Ura lífeyrissjóð bátamanna.
Þingið telur, að nauðsynlegt sé,
að bátasjómenn fái aðild að lífeyr-
issjóði togarasjómanna og undir-
manna á farskipum og íelur vænt-
anlegri sambandsstjórn að vinna
áfram að þvi málí.
10 9' öktóbér 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ