Alþýðublaðið - 28.11.1964, Síða 9
ni og
auna
hins almenna launþega batni mik
ið frá því, sem nú er og jafngildi
þó nokkurri beinni kauphækkun.
5) Að, á meðan ekki verður
komið í veg fyrir árstíðabundið
atvinnuleysi á einstökum stöðum,
verði reglur um úthlutun úr at-
vinnuleysistryggingasjóði rýmkað
ar frá því, sem nú er, og meiri
dagpeningar veittir til þeirra,
sem við atvinnuleysi eiga að
búa“.
Þingið samþykkti og eftirfar-
andi tillögu frá Ögmundi Jóns-
syni:
„30 þing Alþýðuflokksins tel-
ur, að með úrskurði kjaradóms
opinberra starfsmanna 1963 hafi
verið skapaður of mikill launa-
mismunur á kjörum opinberra
starfsmanna, og telur þingið nauð
synlegt að kjör lægstu launa-
flokka verði bætt“.
Illllllllllllllllliillllllllllllltllllflliiiiii
................................. i...................
DSSTARF
UFIRÐI
stofnuðu nú í haust, er að gera
kvikmynd um starfsemi Æsku-
lýðsheimilisins. Á vinna þeirra
við gerð myndarinnar að vera
lítill þakklætisvottur frá
klúbbnum fyrir að fá að halda
fundi í heimilinu.
Ýmis önnur starfsemi fer
fram í Æskulýðsheimilinu auk
fundahaldanna og klúbbstarf-
seminnah Á hverjum föstudegi
eru kvikmyndasýningar kl. 5
og kl. 9 síðdegis og er sú fyrri
ætluð 12 ára börnuni’ og yngri,
en sú síðari, kvöldsýningin,
fyrir unglinga frá 13 ára aldri.
Kvikmyndir þær, sem sýndar
eru bæði innlendar og erlend-
ar, eru við hæfi barna og ungl
inga. Kvöldvökur og aðrar
skemmtanir eru einnig oft
haldnar, og þá tíma, sem ekk-
ert annað er um að vera, er
beinlínis opið, og geta gestir
þess þá leikið sér með hin
ýmsu leiktæki, sem þar eru
til. Sumir tefla, aörir spila og
enn aðrir lesa eða skoða ým-
is blöð og tímarit, sem liggja
Júlíus Júlíusson
frammi. Hjá þeim eldri er
mjög vinsælt að leika nýjar
hljómplötur með vinsælum
hljómsveitum eins og The Be-
atles, Rolling Stones eða Dave
Clark Five.
Það er óhætt að segja, að
starfsemin sé blómleg, og
Framhald á 10. síðu
J æskulýðsheimilinu.
... „. „.......... .... u„.„„ii„„„„„„ii„„„„„....ov
Nýjar bækur
frá Leiftri
Hvikul er konuást
eftir Guðrúnu frá Lundi. — Þessi saga Guðrún-
ar hefur hvergi birzt áður. Sagan gerist á fyrri
hluta þessarar aldar og hefst á þvi, er útflytj-
endur til Ameríku eru að yfirgefa landið. _
Sagan lýsir átökunum í íslenzku þjóðlífi, þegar
einstaklingar og heilar fjölskyldur slitu öll tengsl
við vini og ættingja. Líklega er betta átakan-
legasta tímabili.í sögú íslenzku þjóðarinnar. Og
Guðrún frá Lundi lýsir því látlaust og snilldar-
lega.
Heillar mig Spánn
eftir Fredrik Wislöff. Spánn er heillandi land.
Saga Spánar er stórbrotin. Spænska þjóðin er
glæsileg og tignarleg í fasi. List hennar sér-
stæð, og margt s.em vekur athygli ferðamanns-
ins. Höfundurinn kynnir okkur þetta litríka land,
sögu þess, listina og hið ólgandi líf. — Bókin
er falleg og ágætlega skemmtileg.
Fullnuminn Vestanhafs
eftir Cyril Scott. Þýðandi Steinunn Briem. Full-
numinn Vestanhafs er framhald hinnar frægu
bókar tónskáldsins og rithöfundarins Cyril Seott
— FULLNUMINN — þar sem hann segir frá
kynnum sínum af dularfullum spekingi. Hér hitt-
ast þeir aftur í Bandaríkjunum, og lýsir Scott
á fjörlegan hátt hinni amerísku útgáfu af meist-
aranum.
Lending með lífið að veði
Skáldsaga eftir J. Castle og Arthur Haily. Þýð-
andi Hersteinn Pálsson. Viðburður sá, sem hér
er lýst, gerist að nóttu. Stór flugvél er þá á
leið yfir hinn ókleifa fiallgarð milli Winnipeg
og Vancouver. í vélinni eru 35 farþegar, en báð-
ir flugmennirnir eru meðvitundarlausir — höfðu
fengið matareitrun. Með eindæma snarræði
bjargar flugfreyjan áhöfn og farþegum. Sagan
er byggð á sönnum atburðum.
Bóndinn í Þverárdal
skáldsaga eftir Unu Þ. Árnadóttur. Una er skag-
firzk og er þetta fyrsta bók hennar. En Una á
til góðra að telja. Faðir hennar og Elínborg
Lárusdóttir eru systrabörn, og hinn þjóðkunni
hagyrðingur, séra Hannes á Ríp, langafi þeirra.
Sigurður Guðmundsson málari og séra Pétur
Guðmundsson í Grímsey voru langömmubræður
Unu í móðurætt. — Þetta er bók, sem vekja
mun athygli.
í vökulok
ljóðabók eftir Margréti Jónsdóttur. Margrét er
landskunn, bæði af sögum sínum og ljóðum.
Systurnar
■skáldsaga úr Reykjavíkurlífinu eftir Ingibjörgu
Jónsdóttur. — Sagan um systurnar er ástar-
saga, saga um örlög tveggja systra. Leikurinn
er ójafn. Júlla er ekki fríð og komin yfir þrí-
tugt, en Sigrún er ung og fögur.
Smáfólk
tíu sögur eftir Guðrúnu Jacobsen. — Þetta er
fimmta bók Guðrúnar og tvær síðustu bækurnar
hefur hún sjálf myndskreytt. í sögum Guðrúnar
Jacobsen skiptist á létt gamansemi og bung al-
vara. Fyrri bækur hennar hafa hlotið ágætu
dóma. — Sumar sögurnar í þessari bók eru
snilldarvel skrifaðar.
Maddaman með kýrhausinn
eftir Helga Hálfdánarson, er bók, sem mikla at-
hygli mun vekja. Helgi er hlédrægur, en hörku-
greindur og glöggur fræðimaður. Honum þykir
illa hafa verið farið með Völuspá, merkasta
kvæði á Norðurlöndum að fornu og nýju. Helgi
segir það deginum ljósara, að í öllurn útgáfum
sé kvæðið víðs fjarri sinni upphaflegu mynd.
Eftir miklar rannsóknir hefur honum tekizt að
að leysa mörg þau vandamál, sem öðrum hefur
yfírsézt, og setur hér fram tilgátu um upþhaf-
lega gerð VÖluspár.
Stjörnuspáin
eftir R. H. Nylon. — Viltu þekkja sjálfan þig
og vita hvað frámtíðin ber í skauti sínu? Hef-
urðu gaman af að kynnast lyndiseinkennum
kunningja þinna og vina? — Stjörnuspáin er
bezta fræðigreinin, sem hægt er að fara eftir,
þegar skyggnzt'er eftir huldum rökum fram-
tíðarinnar og örlögum manna.
Lífið í kringum okkur
eftir Ingimar Óskarsson. — Ingimar er lands-
kunnur, bæði af útvarpserindum sínum og grein-
um í blöðum og tímaritum. í þessari bók lýsir
hann á sinn skemmtilega hátt fjölda mörgum
sérkennilegum dýrum, bæði á sjó og landi. —
Fjöldi mynda prýða bókina.
Todda frá Blágarði
eftir Margréti Jónsdóttur. — Margrét Jónsdóttir
er fyrir löngu þjóðkunn, bæði af sögum og ljóða-
bókum. — Þetta er sagan um TODDU litlu eða
Þórdísi Sveinsdóttur. — Hún á íslenzka móður,
en danskan föður. Og sagan segir frá ýmsum
ævintýrum, sem Todda lendir í með leiksystkin-
um sínum í fæðingarborg, Kaupmannahöfn.
Börnin í Löngugötu
eftir Kristján Jóhannsson. — Sagan gerist í
Reykjavík. Höfundurinn er ungur kennari, og
hann þekkir börnin í umhverfinu. Börnin í
Löngugötu eru býsna mörg, og ekki er hægt að
lýsa þeim öllum. En við fáum að kynnast honum
Steina, hann er 10 ára. Beint á móti eiga tví-
burarnir heima, þær Hulda og Kristín. Þær eru
9 ára, og enginn nema mamma þekkir bær sund-
ur. Og svo er það hann Danni og fjörkálíurinp -
hún Finna.
Rósalín
eftir Johanne Spyri. Þýðandi Freysteinn Gunn-
arsson. — Rósalín er átta ára. Hún heitir ann-
ars Þeresía, en er alltaf kölluð Rósalín. Nafnið
fékk hún af því að hún var svo elsk að blóm-
um. Þetta er falleg saga. Höfundinn, Johanne ,
Spyri, þekkir fjöldi manna, sem lesið hafa Heiðu j
og Smaladrenginn- Vinzi. Og þýðandann, Frey- *
stein Gunnarssori, þekkia allir.
Þrjár í sumarleyfi — Trilla, Trína og ég.
Skólanum er lokið og þrjár telpur í sólskins-
skapi halda í sumarleyfi. Þær eru 11 ára og
hlakka til að hitta ættingja og vini, sem eiga
heima í sveitinni. Þar kynnast þær kettinum
Gosa og lenda í ótal ævintýrum.
Pétur og Tóbí.
Bókin er í senn litabók og lestrarbók. Öll börn
hafa gaman af ævintýrum, og öllum þ.ykir þeim
gaman að lita. — Þetta er bókin, sem barnið
vantar.
Nancy og leyndardómar gamla hússins.
Nancy er dóttir lögfræðings og hefur gaman af
leynilögreglusögum. Allt sem er levndardóms-
fullt er henni hugleikið — og í þess.ari bók
kemst hún í eitt slíkt ævintýri.
Hanna tekur ákvörðun.
Hanna er komin á þann aldur, að ástin er farin
að ólga í blóði hennar og alvara lifsins að taka
í taumana.
Matta-Maja verður fræg.
Matta Maja er lika að komast á leiðarenda. Hún
er orðin kunn dansmær, en braut frægðarinnar
er stundum erfiðleikum háð. — Þess skal getið,
að í næstu bók verður hún alvarlega ástfangin
og er það síðasta bókin í hinum vinsæla bóka-
flokk um Möttu-Maju.
Jói og flugbjörgunarsveitin
efti-r Örn Klóa. Örn Klói er dulnefni, en höf-
undurinn er íslenzkur piltur, Kristján Jónsson
leikari, og er þetta 8. bók hans.
Sagan af Tuma litla
eftir Mark Twain. — Ekki þarf að kynna höf-
undinn. Hann er heimsfrægur. Sagan af Tuma
litla hefur áður komið á íslenzku, en veri-ð ófáan-
leg mörg undanfarin ár. — Margir, sem lásu
fyrri útgáfu af sögunni um Tuma litla. eru nú
komnir á fullorðins ár, og hafa gama.n af að
rifja upp prakkarastrikin hans Tuma og félaga
hans.
KIM-bækurnar —
KIM og gimsteinahvarfið (10. Kim-bókin) og
KIM og brennuvargarnir (11. Kim-bókin). —
Bækurnar um Kim og félaga hans eru orðnar
svo kunnar, að ekki þarf annað en minna á,
þegar ný Kim-bók kemur. Og nú eru tvær nýjar
Kim-bækur komnar og verða eflaust horfnar úr
bókaverzlunum fyrir jól.
Bob Morán-bækurnar —
Kjarnorkuleyndarmálið og Smyglaraskipið, í
þýðingu Magnúsar Jochumssonar fyrrv. póst-
meistara. Bob Moran-bækurnar eru sérstæðar
í flokki unglingabóka. Þær eru hetjusögur um
ofurmennið Bob Moran, sem fer hamförum um
loft, láð og lög. og leysir allar þrautir. En sög-
urnar eru skrifaðar a£ mikilli þekkingu á þeim
viðfangsefnum, sem hver saga fjallar um, og,
fróðleik um hin fjölbreyttustu efni.
Zorro-bækurnar —
ZORRO og dularfulla sverðið og ZORRO berzt
á báðar hendur. — Ekki þarf að lýsa ZORRO.
Unglingar um allt land þekkja hann og fylgjast
af áhuga með ævintýrum hans. Og spenningur-
inn eykst með hverri bók.
Blóðrefur
eftir Karl May, sem er þýzkur rithöfundur og
talinn með þeim snjöllustu, sem skrifað hafa
Indíánasögur. Blóðrefur er 4. bókin í flokki
Indíánasagna Karls May.
ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 28. nóv. 1964 9