Alþýðublaðið - 08.12.1964, Qupperneq 2
Ritstjðrar: Gylfl Gröndal (áb.) og Benedlkt GröndaL — Fréttastjðrt:
Arnl Gunnarsson. — BltstjómarfuUtrúi: Eiður Guðnason. — Simart
14900-14903. — Augiýsineasími: 14906. — Aðsetur: Alþýðuhúsið við
Hverfisgötu, Reykjavík. — Prentsmiðja Alþýðublaðsins. — Áskrlftargjald
kr, 80.00. — 1 lausasölu kr. 5.00 eintakið. — Útgefandi: Alþýðufiokkurinn.
729 MILLJÓNIR
í LOK síðasta ófriðar fékk Olíufélagið h.f.
yfirráð olíugeyma þeirra, sem reistir höfðu verið
í Hvalfirði. Komu þessir geymar íslendingum í
góðar þarfir næstu ár, sérstaklega hinum nýja
togaraflota. og voru notaðir fyrir atvinnuvegi okk-
ar, þar til reistar höfðu verið nýjar olíustöðvar í
Laugarnesi, Örfirisey, Hafnarfirði og á Akureyri.
Þegar þörf íslendinga fyrir Hvalfjarðargeym-
ana minnkaði, var komið til landsins varnarlið í
Kóreustyrjöldinni. og leigði það geymana af sér-
stöku hlutafélagi, sem var um þá stofnað. Síðan
er liðinn meira en áratugur, og hefur Framsóknar-
flokkurinn aldrei haft neitt við það að athuga, að
geymdar væru í Hvalfirði hernaðarolíur, að þar
væri bryggja og legufæri, svo að olíuskip gætu
athafnað sig.
Þess má geta, að varnarliðið hefur greitt dótt-
urfélagi Olíufélagsins í Hvalfirði samtals um 3
milljónir dollara í leigu undanfarin ár, en það er
á núverandi gengi yfir 129 milljónir króna!
Það er þetta, sem gerir framsóknarmenn æfa
út af Hvalfirði. Þeir óttast, að þeir kunni að missa
gífurlega gróðalind, þegar nauðsynleg endumýjun
á tönkum og löndunaraðstöðu í Hvalfirði fer fram.
En það er ósk almennings, að Tíminn geri nákvæm-
lega grein fyrir, hvað orðið hefur af þessum 3
milljónum dollara síðasta áratug.
Í:. I •
OLÍUSTÖÐVAR
HALDIÐ ER FRAM, að olíugeymar í Hval-
firði, bryggja og legufæri fyrir olíuskip, sem þar
á að endurnýja, séu hernaðarmannvirki.
Alþýðublaðið vill í þessu sambandi benda á,
. að í Laugamesi eiga íslenzk olíufélög stóra olíu-
geyma og fullkomin legufæri fyrir stór skip. í Ör-
firisey á Olíufélagið sams konar aðstöðu, stóra
tanka og legufæri út af eynni. í Skerjafirði eru
^enn stórir tankar, bryggja og legufæri. í Hafnar-
firði eru olíutankar og bryggja og á Akureyri stór
tankur og bryggja.
Eru allt þctta herstöðvar? Ef svo er, af hverju
krefjast kommúnistar ekki, að þessar stöðvar verj&i
eyðilagðar eða fjarlægðar?
Sannleikurinn er sá, að öll hafnarmannvirki
og alla flugvelli má að einhverju leyti nota á hern-
aðartímum. En stöðin í Hvalfirði er í sama flokki
og þau alíslenzku mannvirki, sem hér hafa verið
talin.
Að lokum er rétt að minna á, að kjarnorku-
kafbátar nota ekki olíu og hafa ekkert við olíu-
stöðvar að gera.
•miiiiiiiMMiiiiinuimiiiiM'iMiiMimiiiitiiiiiiiimiiiiiiMiimiiiMiimiMniimiiiiiiimiiiiimiiiMiiMiiniiiiiiiiiiiiMiiiir
Fjögurra daga vinnuvika tekin upp á Alþingi.
Hættulegt fordæmi þingmanna.
Jr Hálkan og hættan af lögbrjótum.
Jt Hættulegasta gatan í Reykjavík-
nilMIMIIIMMIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIMMIIIIMIIIIIIMIIIIIimillllllltllllllMIIIIIMMMIIinillllllllllllllllllMIIIIIIIIMIIIIllii
PALLAGESTUR sendir mér eft
irfarandi Unur: „Mig furðar dá-
IítiS á því, a* enginn virðist hafa
neitt við' það að athuga, iað um
leið og launakjör alþingisananna
voru bætt, ákváðu Þeir <að taka
upp fjögurra daga vinnuviku. Við
hækkun iaunanna geri ég ékki
neina athugasemd, þvi iað vitan-
Hega veróa laun alþmgismhnna
'að standast samanburð við laun
annarra, en þegar þeir
ákveða sjálfir svona upp á sitt
eindæmi að liætta 'að starfa bæði
á föstudögiun og laugardögum
þá á gagnrýni rétt á sér.
ÁSTÆÐAN FYRIR ÞVÍ er sú,
að með þessu gefa þeir hættu
legt fordæmi. Hvað þarf að líða
langur tími þangað til ýmsir hóp
ar í þjónustu hins opinbera taka
upp sama hátt. Væri nokkuð at-
hugavert við það, þó að ýmsum
opinberum skrifstofum væri iok
að, ekki aðeins fyrsta dag vik-
unnar eins og verið hefur, held-
ur og tvo síðustu daga hverrar
viku. — Ég hygg að alþingismenn
hafi þarna gengið allt of langt.
Mér er sagt, að í þessu máli
hafj tveir stærstu flokkarnir ver
ið hjartanlega sammála og ráð|ð
málinu til lykta.“.
Norskt
Prjónagartf
í gjafakössum
Allt í peysurnar
PALLAGESTUR TÚLKAR í
bréfi fiínu sjónarmið, sem óg hef
•mjög orðið var við þó að nú fyrst
sé minnzt á þetta mál. Ég vil
hins vegar benda á, að fyrri
hluta þingtímans starfa nefndir
mjög og gera má ráð fyrir, að
eitthvað sé unnið í nefndum og
mál undirbúin þessa frídaga.
Einnig vil ég vekja athygli á því,
að síðari hluta þingtímans eru
kvöld- og nætur-fundir mjög tíð
ir, og þingmenn munu ekki fá
neitt næturvinnukaup eða eftir-
vinnukaup.
BIFREEÐARSTJÓRI SKRIFAR:
„Útvarpið eða réttara sagt slysa-
varnafélagið og lögreglan, hafa
aðvarað fólk æ ofan í æ þegar
hálka er á götunum. Bifreiða-
stjórar eru beðnir að hafa anna®
hvort keðjur á hjólum eða hafs
snjódekk. Vitanlega á enginn a8
aka bifreið sinni í hálku án þess
að hafa annað hvort. En feþrf'
kærulausir eru fjölda margir, a®
þeir vaða út í umferðina án þess.
ÞETTA HEFUR VALDH9
fjölda mörgum árekstrum og slys
um. Maður á bíl, sem hvorki lief
ur snjódekk eða keðjur, er irétt-
indalaus í umferðinni. ÞaÖ er
önnur hlið málsins. Hin hliðiK
snýr >að vegfarendum og öðruin
ökumönnum, því að af þessurt
bílum stafar geigvænleg hætta.
Ég legg til, að hver sá, sem brýt
ur þessa reglu, sé tafarlaust tek
Framhald á 13. síðu. ; ?í
Sjónvarpsreykjarpípur!
Sjónvarpsreykjarpípa verður mörgum sjón-
varpsnotendum kærkomin jólagjöf.
Komið, skoðið, sannfærist
Verzlunin ÞÖLL
gengt Hótel íslands-bifrelðastæðinu. Sími 10775.
— Uppskrift — Prjóaar —
Hnappar.
- HOF -
Laugavegi 4.
Ceres
undirkjólar
NÁTTKJÓLL
NÁTTTREYJUR
NÁTTFÖT
STAKAR BUXUR
Og SKJÖRT
lir prónasilki
og nylon.
- HOF -
Laugavegi 4.
Skrifstofan:
Hallveigarstíg 10.
Vöruafgreiðslan
við Sheliveg
Sími 2-44-59.
Spónaplötur
Nýkomið:
Hörplötur: 8, 12, 16, 18,
20 og 22 mm.
Novopan: 8, 12, 13, 15,
19 og 22 mm.
Gaboon: 16, 19, 22 og 25 mm.
Stærðir 4x7’-4x8’
og 5x10’.
Birkikrossviður: 5 mm.
Furukrossviður: 8 mm.
Gatað harðtex: Ys" — 4x8’.
Olíusoðið harðtex: Va" — 4x9’.
Trétex Yz" — 4x8 og 4x9’.
Teakspónn
Eikarspónn
Hljóðeinangrunarplötur
Líin fyrir
hljóðelnangrunarplötur
Pattex-lím (sem límir allt).
Teakolía 5
Plastlakk (glært)
Plastplötur (vinyl) á gólf.
Gólfflísalím
Harðplast á borð og veggl.
Slipimassi.
SAMVINNUTRYGGINGAB
RPFVTT
símanomer:
8. des. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ
.iiimiiniiiiHiiiniiHHnnnniit