Alþýðublaðið - 08.12.1964, Síða 16
ÞriSjudagur 8. desember 1964
UtanríkisráÓ-
herra er nú á
batavegi
UTANRÍKISRÁÐHERRA Gu'ð-
mundur í. Guðmundsson er
fyrir nokkrum dögum kominn
heim af sjúkrahúsi, þar sem
hann hefur dvalizt síðan hann
fékk aðsvif á fundi fyrir rösk-
lega tveim vikum. Ráðherrann
er nú á batavegi, afgreiðir mál i
síns ráðuneytis, en þarf nokkra i
hvíld, áður en hann getur kom-
Ið að fullu aftur til starfa, síð-
ar í þessum mánuði,
Frá þessu skýrði Emil Jóns-
son á fundi miðstjórnar AI-
þýðuflokksins í gær. Sagði hann
einnig í svari við fyrirspurn, að
ekki hefði komið til tals að
setja annan mann í starf Guð-
mundar um stundarsakir.
NORRÆNN FJÁR-
FESTINGARBANKI?
Reykjavík, 7. okt.
í SÍÐUSTU viku sótti Gylfi Þ.
Gislason, viðskiptamálaráðherra
fund þeirra ráðherra Norðurland-
anna, sem fjalla um efnahagssam-
vinnu laudanna, og sameiginlegan
fund ráðherranna með efnahags-
málanefnd Norðuriandaráðs. í
framhaldi af þessum fundum sótti
viðskiptamálaráðherra áriegan ráff
herrafund Efnahags- og framfara
stofnunarinnar í París.
Alþýðublaðið hefur leitað
fregna.hjá Gylfa Þ. Gíslasyni um
þessa fundi og fórust honum svo
orð:
— Svo sem kunnugt er heldur
Norðurlandaráð næsta fund sinn
hér í Reykjavík í febrúar næst-
komandi. Mér er ætlað að leggja
fyrir íþann fund, þau mál, sem
undir þessa ráðherrafundi heyra,
en skýrsla um þau hefur verið
undirbúin. Ennfremur var til um
ræðu sérstök skýrsla sérfræðinga
nefndar um stofnun norræns fjár-
festingarbanka, en það mál höf
um við íslendingar stutt. Á fund
inum með efnahagsmálanefnd
Norðurlandaráðs var einkum rætt
um viðskiptaþróunina í Vestur-
Evrópu, áhrif hennar á Norður-
lönd og skilyrði Norðurlanda til
að hafa óhrif á hana.
— En hvað um OECD?
— Ráðherrar þeir, sem fara
með málefni Efnahags- og fram
farastofnunarinnar í París halda
einn fund á ári. íslendingar hafa
á síðari árum haft mjög mikið
Hætt var við lyfja
fræðikennsluna
Reykjavík 7. des. GO.
Tvær stúlkur, er stundar hafa nám
í lyfjafræði lyfsala við læknadeild
Háskóla íslands, komu að
«náli við blaðið og sögðu sínar
■£arir ekki sléttar. í haust áttú
fiaqr að hefja jjriðja námsár í
mámsgrcininni, en var þá tilkynnt
að ekkert yrði úr kennslu í vetur,
þar sem þær væru aðeins tvær
■©g reglugerð skólans hafi verið
■fereytt I fyrra á þann veg, aö ekki
yrði kennt undir þeim kringum-
•fitæðum.
Að sögn stúlknanna getur far-
ið svo, að þær verði báðar að
hætta námi vegna þess arna, þar
eð þær verða að hafa lokið því
innan 6 ára frá innritun í skól-
ann. Þeim var að vísu boðið að
halda náminu áfram næsta vetur,
en það fer í bága við þær áætl-
anir sem þær voru bunar að gera
um framtíðina og þær geta ekki
horfið frá.
Kennari í lyfjafræði við lækna-
Framhald á 4. síðu
AlþýSuflokksfélag Reykjavíkur
heldur spilakvöld næstkomandi föstu
dag klukkan 8,30 í Iðnó. Húsið er
opnað klukkan 8. Sameiginleg kaffi
drykkja og dans á eftir. Félagsmenn
eru hvattir til að mæta vel og stund
víslega.
gagn af aðild sinni að þessari
stofnun, og má í því sambandi
minna á þau hagstæðu lán og yfir
drætti, sem við höfum fengtð þar
ásamt mikilli tækniaðstoð.
Á þessum fundi var fyrst og
fremst rætt almennt um stefnuna
í efnahagsmálum aðildarríkjanna,
og stefnu í viðskiptamálum í sam
bandi við aðstoð við þróunarlönd
in. Hinn nýja toll Breta bar auð-
vitað mjög á góma, en Bretar
voru vel undir það búnir, þar sem
Framhald á 4. síðu
Reykjavík, 7. des. ÓTJ.
í DAG var tekið fyrir í Saka
dómi Reykjavíkur málið gegn
Lárusi Stefánssyni fyrir meinta
morðtilraun á Guðríði Erlu
Kjartansdóttur, og fyrir a»
hafa valdið áverka á Þónmni
Guðmundsdóttur. og bakað
varanlegt heilsutjón.
Það var 12 maí sl. sem Lár-
us réðist á Guðríði á heimili
hennar með hníf ^að vopni, og
stakk hana sjö sinnum. í svipt
ingunum fór hún auk þess úr
axlarlið. Á flótta frá árásar-
staðnum mætti Lárus svo Þór-
unni Guðmundsdóttur vinkonu
Guðríðar Erlu, og sló hana í
andlitið.
Tvennt var nýstárlegt við
þessi réttarhöld. í fyrsta lagi
sátu þau þrír sakadómarar í
stað eins, óg er það í fyrsta
skipti í íslúnzkri réttaíþögu.
Breyting á réttarfarslögum, sem
gerð var árið 19^1, heimiiax
þetta, ef um sérstakiega flókið
eða átórfellt mál er að ræða.
í öðru lagi krafðist ákærði
þess að vera viðstaddur réttar
höldin, og var það leyft.
í dómarasætum voru Þeir
Þórður Björnsson, yfirsakadóm
ari, Halldór Þorbjömsson, saka
dómari, og Gunnlaugur Briem
sakadómari. Ákærandi var full-
trúi saksóknara, Jónatan Þór-
mundsson og verjandi Örn
Clauseh hæstaréttariögmaður
Ákærandi las upp vitnisburð
þeirra Lárusar, Guðríðar og
Þórunnar, og var hann sam-
hljóða úm flest atriði. Þau Lár
us og Guðríður höfðu kynnst
IHMMMMHMMIMMWMUMtW
á dansleik árið 1962. Viku síð
ar fór hún til Englands, og var
þar nokkra mánuði. Á því tíma
bili höfðu þau ekkert samband
hvort við annað. Þegar hún svo
kom heim, tóku þau upp kunn-
ingskap að nýju, og voru mikið
saman þar tíl Guðríður fór á
skóla í Danmörku 1933. Þá
skrifuðust þau á. En þegar hún
kom frá Danmörku, vildi hún
ekki af honum vita framar,
öðruvísi en sem vini. Kvað hún
áhuga sinn hafa farið minnk-
andi, er henni var skrifað, að
hann væri að skemmta sér með
öðrum stúlkum.
Eftir heimkomuna frá Dan-
möku hittust þau nokkrum
sinnum, og vildi Lárus alltaf
taka upp fyrra samband þeirra
en hún ekki. Þó fóru þap þrisv
ar út saman. Kvöldið, sem árás
in átti sér stað, höfðu þær vin-
Alþýðublaðið kost-
ar aðeins kr. 80.00 á
mánuði. Gerizt á-
skrifendur.
konumar setið nokkra stund og
talað saman er Lárus kom.
Bauð Guðríður honum inn, og
sat hann og spjallaði við þær
góða stund. Þegar Þórunn
skrapp heim til sín, í næsta hús
til þess að sækja sér kápu, þar
sem þær voru að fara út, bað
Lárus Guðríði að lieita sér éig
inorði, og koma með sér norður
í Vatnsdal, þar sem hann hafði
ráðið sig á bóndabæ. Hún neit-
'aði, og sagði honum jafnframt
að hún væri byrjuð að vera
með öðrum mannl. Rétt á eftir
réðist hann á hana. Þórunn
var að koma aftur, er hún
heyrði skerandi neyðaróp vin-
konu sinnar, og hljóp upp stig-
ánn. Á stigabrúninni mætti
hún Lárusi, sem sló hana í and-
íitið, og þaut svo út.
Þórunn fór svo inn tij vin-
Framhald á 4. síðu
ÞRÍR SAKADÓMARAR
VIÐ RÉTTARHÖLDEN