Alþýðublaðið - 30.12.1964, Qupperneq 3

Alþýðublaðið - 30.12.1964, Qupperneq 3
8 nýir fulltrúar í Öryggisráðinu New York, 29. des. (ntb-rt). Fulltrúar Hollands, Uruguay og Malaysíu voru í dag „kjörnir” nýir meðlimir Öryggisráðsins frá óg með 1. janúar. Vegna ástands þess, sem ríkir í Allsherjarþinginu vegna skulda Sovétríkjanna og annarra rikja var ekki hægt að kjósa leynilegri kosningu eins og venja er; For- setinn hvatti með stuðningi þings- ins formenn sendinefnda til að koma á skrifstofu hans og skýra sér þar frá því hverjir þeir vildu að yrðu nýir meðlimir Öryggis- ráðsins. Indónesía, Albanía og Kambó- dia mótmæltu þessari aðferð á fundi Allsherjarþingsins, sem stóð í 20 mínútur, en báru ekki fram formlega kröfu um eðlilega atkvæðagreiðslu. Frakkar tóku og afstöðu gegn aðferðinni. Fulltrúar Hollands, Uruguay og Malaysíu taka við af fulltrúura Noregs, Brazilíu og Marokkó í ráðinu. Tveggja ára starfstíma þeirra er lokið. 8. LANDGANGA INDONESA i MALAYSÍU MISTEKST Kuala Lumpur, 29. des. (ntb-reuter). Níu Indónesar til viðbótar voru handsamaðir í Malaysíu í dag eft- ir áttundu landgöngu Indónes- íu síðan í ágúst síðastliðnum. — Mennirnir voru handteknir á vestanverðri Singapore-eyju, þeg- ar þeir komu til þorps nokkurs til að kaupa sér mat. Öryggis- sveitir komust yfir mikið magn skotfæra. Indónesarnir veittu enga mót- spyrnu og segjast hafa komið í bát frá Indónesíu á sunnudaginn. Sukarno forseti hefur sagt, að Indónesar muni knésetja Malay- síu — ef guð lofar — fyrir 1. janúar næstkomandi. 55 Indónes- ar hafa fallið í landgöngutilraun- um siðan í ágúst, 234 hafa verið teknir til fanga og sennilega hafa fimm drukknað. Fimm menn úr malaysískum hersveitum og her- sveitum frá brezka samveldinu hafa fallið en sex særzt. Varaforsætisráðherra og land- varnaráðherra Malaysíu, — Tun Abdul Razak, skoraði í dag á öll lönd, sem fylgjandi væru lýðræði, að styðja Malaysíu í hinni óyfir- lýstu styrjöld við Indónesíu. í gær hafnaði Razak bandarísku tilboði um varnarlán með 5% vöxtum og í dag ítrekaði liann, að hann væri óánægður með skilmálana. Svíar stofna friðarsvert Nýr sendiherra Noregs á íslandi ÞESSI mynd er af Tor Myk- lebost, hinum nýja Noregs á íslándi, sem tekur við að Johan Zeier Cappelen. Myklebost er 51 árs að aldri og hefur verið blaðafulltrúi norska utanríkisráðuneytisins síðan 1956. Áður hafði hann starfað sem blaðamaður blaðafulltrúi í sendiráði Nor- egs í Washington (á árunum 1941-45 og 1949-56). Stokkhólmi, 29. des. (NTB). Sænsk friðarsveit, sem verður stofnuð, m. a. á grundvelli reynslu Norðmanna og Bandaríkjamanna á þessu sviði, verður væntanlega send til þróunarlandanna í sumar. Ríkisstofnun sú, sem stjórnar þró- unaraðstoð Svía, að taka afstöðu til tillögu um sænska friðarsveit í janúar og allt bendir til þess, að ákveðið verði að hefjast handa í sumar. Fannkoma um afla Evrópu London, 29. desember. (ntb-rt). Mikil fannkoma og frostharka var um mestaUa Evrópu í dag. í fjallahéruðum Austurríkis var hætta á skriðuföllum vegna mik- %%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%%% iliar fannkomu síðustu daga. • ■■ •• ■ wÉSi. Erfið björgun á flóðasvæðum San Francisco, 29. des. (ntb-reuter). Björgunarstarfinu á flóða- svæðinu á mörkum Kaliforníu og Oregon var aftur frestað í dag vegna óhagstæðs veðurs. Um 500 manns eru einangrað- ir vegna flóða og snjókomu. Margar þyrlur eru til taks í smábæ nokkrum á landamær- um ríkjanna, ef veður skánar. Fjallasvæðin eru erfið yfir- ferðar og sumt fólk verður að flytja burtu en annað verður að láta sér nægja birgðir, sem varpað verður til jarðar. — Vegna snjókomu tókst ekki að koma birgðunum til fólksins í gær. Summt af fólki þessu yfir- gaf heimili sín fyrir níu dög- um. Margir hafa lítinn sem engan mat eftir. Óttast er um 14 börn, sem eru einangruð í húsi 110 km. vestur af bæn- um, en ekkert hefur heyrzt frá þeim. 48 menn munu hafa farizt í flóðunum og mikið eigna- tjón hefur orðið í ríkjunum Kaliforníu, Oregon, Idaho, Washington og Nevada. IMWWUWWWMWMWMWMWMWWMMWWWMWWWWWWWWWMMMWWWWWWWMW J Saragat tekur við embætti forseta RÓM, 29. desember. (ntb-rt). Hinn nýi forseti Ítalíu, Gius- eppe Saragat, lýsti því yfir þegar hann vann embættiseið sinn í dag, að hann mundi vinna að friði, afvopnun og þjóðfélagslegu réttlæti. Seinna tilkynnti Aldo Moro forsætisráðherra að hann mundi biðjast lausnar fyrir sig og ráðuneyti sitt eins og venja er, þegar nýr ríkisleiðtogi er kjör inn. Búizt var við að Saragat mundi að gömlum sið neita að taka lausnarbeiðnina til greina. Boðskap Saragat til þjóðarinn- ar í morgun var ákaft fagnað af rúmlega 900 fulltrúum öldunga- og. fulltrúadeildar þingsins, sem hafa reynt að kjósa nýjan forseta nær tvisvar sinnum daglega á undanförnum vikum. í boðskap sínum ræddi Saragat um þrjár skyldur vorra tíma: — Varðveizlu friðarins, eflingu hinna frjálsu stofnana og þjóðfélagslegt réttlæti. Hann lagði áherzlu á þörfina á afvopnun undir eftir- liti, alþjóðlegum skilningi og um- burðarlyndi og sagði, að pólitísk og efnahagsleg eining Evrópu væri mikilvægur þáttur f varð- veizlu friðarins. Hann sagði, að ítalska lýðveldið hefði orðið til á grundvelli andspyrnuhreyfing- arinnar og lauk boðskap sínum með því að hrópa: „Lifi Ítalía!” Þingmenn hrópuðu: „Lengi lifi lýðveldið!” ’ Skotið var 101 heiðursskoti er forsetinn ók frá þinghúsinu til bústaðar síns í fylgd með lífverði sínum. Mikill mannfjöldi fagnaði forsetanum á leiðinni sem ekið var um. Páll páfi hefur sent hin- um nýkjörna forseta heillaóska- skeyti. Fánar blöktu á öllum op- inberum byggingum og skólabörn fengu tveggja daga frí í tilefni kjörs hins nýja forseta. ------:---------------<----------- Þótt því sé almennt fagnað að loksins hafi tekizt að kjósa nýjan forseta, óttast menn jafnframt á- hrifin, sem hin erfiða deila 1 kosningunum getur haft til lang- frama á þingi. Aðalmálgagn kristilegra demó- krata, „II Populo,” hyllti hinn nýja forseta í dag með mikilli virðingu. En blaðið sagði, að kristilegir • demókratar, stærstl flokkurinn sem stendur að sam- steypustjórn Moros, yrði að augsa vel sinn gang vegna önppveitis- ins, sem ríkti í röðum haas í for- setakosningunum. KOSNINGAR I NIGEPIU Lagos, 29. des. (ntb-rt). Stærsti stjórnarandstöðuflokkur inn í Nígeríu, Sameinaða fram- farabandalagið (UPGA), tilkynnti í dag, að hann muni ekki taka þátt í þingkosningunum á morg- un. Fyrr í dag var tilkynnt, að forseti og forsætisráðherra lands- ins hefðu ákveðið að kosningarn- ar skyldu fara fram eins og ráð- gert hefur verið, þrátt fyrir mót- mæli stjórnmálahópa, sem segja að kosningarnar verði óréttlátar. Aðalritari Framfarabandalags- ins, Fred McEwan, sagði, að rangt værl, að forsetinn og forsætiqráð- herrann væru á einu máli. í gær var sagt að þeir væru ósammála um hvort kosningarnar skyldu fara fram og forsetinn sagður vilja frestun. Verkalýðssambönd í Ní- geríu hafa hvatt meðlimi til að gera setuverkföll til stuðnings kröfum um frestun kosninganna. ALÞÝÐUBLAÐIÐ - 30. des. 1964 3 *

x

Alþýðublaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.