BFÖ-blaðið - 01.01.1967, Qupperneq 10

BFÖ-blaðið - 01.01.1967, Qupperneq 10
brestur. Sé hlífin rétt sett á, skal hún snúa dálítið inn á við, fjarlægðin frá afturhjóli skal vera jöfn ,,geisla“ þess (lengdin frá miðju hjóls að ytri brún barða) og hæð frá jörðu sama og /4 hluti af þvermáli hjólsins, miðað við að einn til tveir farþegar séu í bílnum eftir stærð hans. Svona sett á mun hlíf tæplega valda slæmu steinkati. Munið þetta: Það tjón, sem steinn veldur á bíl, fer auðvitað fyrst og fremst eftir þeim hraða, sem þeir mætast á, steinninn og bíllinn. Hraði bílsins er oft aðal orsök þess að illa fer. Hægið því alltaf vel á, er þið mætið bíl eða er bíll fer fram úr ykkur. Holur og „þvottabretti" 1 gamla daga þótti það góð öku- mennska að holusneyða vel. Þá voru vegirnir ekki verri en það, að þetta var oft hægt með sæmiiegum árangri. Nú á þessum síðustu árum risastórra og geysi þungra flutningabíla er svo komið að ekki er lengur hægt að holusneyða. Reyni maður að komast hjá einni holunni, lendir maður bara í annarri sínu verri. Ekki nema von að höggdeyfar og legur endist illa. Séu holur miklar í vegi, er ekki hægt að aka þær af sér á smábílum, eins og kallað er. Maður fer bara því ver með bílinn því hraðar sem ekið er. Hin svokölluðu „þvotta- bretti“, séu þau ekki mjög gróf, má hinsvegar „aka af sér“ í ýmsum gerðum smábíla, þó ekki þeim, sem eru með mjög litlum hjólum. Til þess að slíkur árangur næðist á þeim, yrði hraðinn að vera svo mik- ill að ekkert vit væri í. Með smábíl- um á ég hér við bíla upp í sex manna. fslenzkir vegir eru nú víðast að verða þannig ,að maður verður að velja um tímann eða bílinn. Sé veg- urinn frá Reykjavík austur í Hvera- gerði slæmur, ek ég hann heldur á 70 mínútum en 50 mínútum, enda þótt ég gæti vel komizt þennan spöl á þeim tíma. Ég vil heldur bílinn. Brekkur Akið alltaf varlega niður í móti og vitanlega því varlegar sem bratt- ara er. Þurfi maður niður mjög bratta og langa brekku, er það mjög góður siður að reyna hemlana áður en farið er í brekkuna, setja helzt í 1 gír til að byrja með, en gíra svo upp er neðar dregur. Hemla skyldi með hreyfli og einnig hemlum, þar sem bratt er. Það er ógn að sjá, hvað margir ökuglannar aka óvarlega í brattar og langar brekkur. Þeir vilja sýnast „stórir karlar" en eru bjánar. Mér hefur oft ofboðið það sem ég hef séð. Stórslys hafa skeð af þessum or- sökum. Upp brekkur má aka greitt, ef útsýn og vegur leyfir og bíllinn ann- 10 BFÖ-BLAÐIÐ

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.