BFÖ-blaðið - 01.01.1967, Page 16
44iii og \yeiia
Skilgreining ó „Oktantölu" benzíns
Tölulega er bankfesta benzíns
mæld eftir samsetningu viðmiðunar-
eldsneytisblöndu, sem hefur sömu
bankfestu og benzínið, sem verið er
að mæla.
Bankfesta er sá eiginleiki elds-
neytis, sem spornar gegn sjálf-
kveikju í enn óbrenndum hluta
benzín-loft-blöndunnar, meðan á
cðlilegri brennslu hennar stendur.
Bankfesta viðmiðunarblöndu úr
Heptan og IsoOktan er háð oktan-
innihaldi hennar hverju sinni og er
hún gefin upp í svonefndri OKTAN-
TÖLU, sem er hundraðstala oktan-
innihaldsins.
Mæling oktantölunnar er fram-
kvæmd í sérstökum einstrokka til-
raunamótor, sem er þannig byggður
að breyta má þjöppunarhlutfalli
hans meðan á tilrauninni stendur,
til þess að hæfa ólíku eldsneyti. Mót-
orinn er látinn ganga á benzíninu,
sem mæla skal, og þjöppun aukin þar
til bank kemur fram að einhverju
vissu marki. Síðan er vélin keyrð
með mismunandi Heptan-Oktan-
blöndum þar til bank kemur fram að
sama marki og áður með benzíninu.
Er þá OKTANTALA benzínsins
fengin sem hundraðstala oktansins í
blöndunni.
(Skilgreining þessi er gerð af hr. vélaverkfr.
Jóni Björnssyni).
Olvun í umferð
Árið 1966 voru 571 ökumenn teknir
af lögreglu Reykjavíkur fyrir ölvun
við akstur (teknar blóðprufur). Vit-
anlega er þetta síður en svo tæm-
andi tala. Fjöldi einstakra brota
sennilega mjög miklu meiri en þetta.
Ráðherra umferðarmála í Bret-
landi, frú Barbara Castle, telur að
frumvarp sem löggjafarþingið þar
hefur nú til meðferðar, um bann við
ölvun við akstur, geti komið í veg
fyrir 18 til 32 þúsund tjóna- og um-
ferðaslysa á ári. Samkvæmt því banni
má áfengismagn í blóði ökumanns-
ins ekki vera meira en 0,8%o. Fund-
inn sekur verður hann dæmdur í all-
þungar sektir eða til fangelsisvistar.
Þjóðin er farin að skilja að hér nægja
engin góð orð né fræðsla. Lagaá-
kvæði verður að koma til - bann.
Ráðherrann benti á, að ekki væru
nema 9 mánuðir frá því er hún fyrst
lagði fram í þinginu frumvarp um
þetta, en á því tímabili hefði 5.500
manns farizt í umferðarslysum í
16
BFÖ-BLAÐIÐ