BFÖ-blaðið - 01.03.1967, Qupperneq 2
gatnamótum og gömljósum og var
herinn fenginn til að aðtoða við það
geysimikla verk. í sambandi við
breytinguna breytm Svíar umferðar-
reglum sínum á ýmsan hátt og í
Stokkhólmi var mikill fjöldi gatna í
miðborginni gerðar að einstefnuakst-
ursgömm. Átm flestir bílstjórar í
miklum vandræðum með að rata beztu
leiðir til ákvörðunarstaða af þeim sök-
um, og einn leigubílstjóri, sem ég ók
með, átti vart nógu sterk orð til að
lýsa vanþóknun sinni á þessari ráð-
stöfun. Þá voru og fjöldi gatna gerðar
að aðalbrautum og sett upp við þær
biðskyldu- eða stöðvunarskyldumerki,
en aðalbrautir fyrirfundust vart í
Stokkhólmi fyrir breytinguna.
Klukkan 5 að morgni sunnudagsins
3 september átti breytingin úr vinstri
í hægri umferð sér stað. MHF bauð
gesmm sínum í ökuferð um borgina
kl. 4 um morgunin. Ókum við fram og
afmr um miðborgina og fylgdumst
með því sem var að gerast, sáum verka-
menn í óða önn við að mála gang-
brautarlínur og breyta umferðarmerkj-
um. Borgin var full af lífi, þótt svo
snemma morguns væri, gangandi fólk
og á reiðhjólum, og jafnvel ríðandi,
hópaðist í miðborgina. Klukkan 4.50
stöðvaðist öll umferð þeirra ökutækja,
sem fengið höfðu að aka, sem voru
mjög mörg þarna,, en fólk notfærði sér
í ríkum mæli leigubílana til bess að
geta gerst virkir þátttakendur í breyt-
ingunni. Eftir smtta bið við vinstri
vegbrúnina færðu allir sig hægt og
virðulega yfir á hægri kantinn, Ijós-
myndarar mynduðu og kvikmynduðu
og spennan í loftinu jókst. Útvörp í
bilum voru opin og ungfrú klukka
taldi seinusm mínúmrnar, sekúndurn-
ar. Og þegar klukkan var 5.00 hljóm-
aði rödd Lars Skjöld, framkvæmdar-
stjóra hægri umferðar (högergenetal-
en) í hátt stilltu útvarpstækinu er
hann tilkynnti, að hægri umferð væri
komin á í Svíþjóð. Umferðin silaðist
af stað, hægra megin, brátt var orðin
svo mikil þröng í miðborginni, bílar,
fólk á reiðhjólum og gangandi, að við
lá að algjör hnúmr myndaðist. Það
vakti athygli mína hve almenn þátt-
taka Stokkhólmsbúa var mikil í sjálfri
breytingunni, þarna um nóttina, hvað
fólk var gangtekið og himinlifandi yf-
ir henni, ef svo mætti taka til orða. Og
var það ekki einmitt það, sem miðað
var að með öllum áróðrinum?
Hinu almenna umferðarbanni var
aflétt kl. 15. Það var eins og opnað
hafi verið fyrir flóðgáttir, því bílarnir
streymdu í þétmm röðum úr öllum
átmm inn í miðborgina. Mynduðust
víða erfiðir umferðahnútar, en þó
gekk umferðin að mesm snurðulaust
og þrátt fyrir gífurlega umferð, sem
líkt var við umferðina rétt fyrir jólin,
varð ekkert dauðaslys í Svíþjóð þenn-
an dag og er það einsdæmi á sunnu-
degi. Okkur, hinum erlendu fulltrúum,
var boðið í ökuferð um borgina, sem
stóð í tæpar tvær smndir, og gafst
okkur þá gott tækifæri til að fylgiast
með umferðinni, en Ieiðsögumaður
skýrði iafnóðum það, sem fyrir augun
bar. Við allar gangbrautir stóðu ung-
lingar eða fullorðnir vörð og aðstoð-
uðu fólk að komast yfir gömrnar, auð-
kenndir með hvím axlarbandi og belti,
ásamt hvímm ermahlífum. Þetta voru
skólaunglingar og fólk frá ýmsum fél-
agasamtökum og félögum, sem stóðu
tveggja tíma vaktir, frá kl. 6 að
morgni til kl. 11 að kvöldi. Þetta var
2
BFÖ-BI.AÐ1P