BFÖ-blaðið - 01.03.1967, Side 8

BFÖ-blaðið - 01.03.1967, Side 8
væri með ógegnsæja móðu á innan- verðum öllum rúðum, eða snjó utan á rúðum. í þessu einu er strax mikil orsök umferðartjóna á haustnóttum. Varla nokkur ökumaður gæti full- yrt að hann hefði aldrei orðið fyrir ó- heppni, eða látum okkur heldur segja að hann hafi aldrei verið svo heppinn að gera ekki umferðartjón þegar hann í rauninni var búinn að stofna til þess. Þetta hefur a.m.k. hent mig og ég held alla góða ökumenn, sem ég þekki, en þá þekki ég marga. En við eigum að vera auðmjúkir og játa fyrir sjálfum okkur þegar við gerum vitleysu og reyna af því að læra. En góður öku- maður ekur ekki á heppninni, enda þótt hann skilji manna bezt að allt hið inannlega er ralcmörkum háð. Reynum sem mest að strika tilviljunina út og skilja, að það sem okknr hættir til að kalla tilviljun, eru fullkomlecra eðli- legar afleiðingar, sem bæði hafa áhrif á ökumann og bíl. Þekki menn bessi Iög, mætti komast hjá margri tilvilj- uninni. Englendinpar segja: „Slysin ske ekki beim er valdið". Slysin og tjónin kenna að vísu öku- mönnum, en bað vrði bæði einstakl- ingnum og þjóðfélaginu bvsna dýrt, ef betta væri eini skólinn. Því betur er ekki svo. Margir ökumenn eru átrætlega að sér um kveikjuna, millibilið á platín- unum, geta gert við vmislegt smávegis, ef bilar. Lendi beir hins vegar í hálku, þurfi þeir að stríða við þau nártúru- öfl, hreyfilögmál o.fl., sem vanbekking á gæti máske kostað líf þeirra, eru staðrevndirnar meira í þoku. Til umferðarörvggis Iiggja ekki krokaleiðir. Þangað Iigeia tvær aðal- brautir, þekking og æfing. Til slysa liggja hinsvegar krókaleiðir. Ein heitir kæruleysi, önnur vanþekking. Þær koma oft saman í slysinu. Ein af þessum hættulegu krókaleið- um er t.d. sú trú, að menn séu orðnir anzi miklir ökumenn strax við bílpróf. Önnur sú að gleyma lausamölinni a íslenzku vegunum. Sú þriðja að halda að menn séu á eina bílnum á landinu. Sú fjórða að halda að gangandi fólk megi ekki ganga yfir akbraut. Sú fimmta að halda, að alltaf sé öllu borg- ið, sé nógu hægt ekið. En hér skal stað- ar numið. Ábyrgðartilfinning, tillitssemi og bindindi, bókleg þekking og verkleg æfing skapar eina dásamlegustu mann- veru nútímans, bílaaldarinnar - hinn góða ökumann. BíII hefur tvo húsbændur, ökumann- inn og náttúruöflin. Bíll er ekki eins og hesmr, sem fælist og hleypur út undan sér. Bíllinn gerir bara það, sem ökumaðurinn og náttúruöflin knýja hann til. Náttúruöflin geta vissulega orðið óviðráðanleg, manneskjan einsk- is megnug. En það er tiltölulega sjald- an að svo mjög sé í taumana gripið. Vanalega gæti maðurinn ráðið við þessi öfl, eða a.m.k. varazt þau. En til þess að svo megi verða, er nauðsynlegt að þekkt séu þau lögmál, sem þar að lúta. Hreyfiorkan. „Hinn lifandi kraftur." Hugsum okkur, að við Iátum Ióð, sem vegur 1 kg. detta úr meters hæð niður á gólf. Er lóðið hittir gólfið kem- ur fram hreyfiorka. Þessi orka, sem við þetta dæmi skapast, er þá kölluð 1 kíló- gramm-meter (kgm.) Þetta er ekki mikil orka, en mvndi þó sárt finnast til hennar, dytti lóðið t.d. ofan á *-ærn- ar á einhverjum. Strax og við ök'im af 8 BFÖ-BLAÐIÐ

x

BFÖ-blaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.