BFÖ-blaðið - 01.03.1967, Síða 21

BFÖ-blaðið - 01.03.1967, Síða 21
11. Frjósi huxðarlæsing, þá þíddu hana ekki upp með því að anda í hana Þíddu hana heldur með heitri hendi. Til er „spray", sem má nota á læsingar, svo þær ekki frjósi. Ágætt er að smvrja þær með grafítdufti. 12. Eftir bílþvott er gott að aka nokk- ur hundruð metra með dálítilli heml- un. Vatnið í hemlunum hverfur fljótt við það. Aktu varlega í stóra og djúpa polla. Útbúnaðm á vetrum. Vilji maður vera undir ýmislegt búinn á vetrum, þarf maður að hafa í bílnum: a. Skóflu, bursta, íssköfu. b. Öryggisþríhyrninga. c. Vasaljós. d. Dráttartaug. e. Kassa með sáraumbúðum. f. Lampa og öryggi. g. Tóma poka, sandpoka. h. Battingsbút, til að setja undir tjakkinn. Klossa til að setja við hjóL i. Keðjur. j. Þunna hanzka og mjúka skó. k. Viftureim. Ncesta tbl.: Verklegar œfingar í hálku- akstri. Bindindistryggingar Maðurinn mætir á lífsleið sjnni ótal áhætmm, sjúkdómar, slys og eign- atjón verða oftlega á vegi hans geen- um lífið. En áhætturnar hafa breytzt mikið á hinum öru framfaratímum, sem nú ríkja, læknislistin hefur sem betur fer, tök á flestum sjúkdómum nú. Tækniþróunin skapar aðrar áhætmr í stað þeirra og slys fara ört vaxandi í kjöfari hennar. Þess vegna hefur tryggingaþörfin aukizt hröðum skref- um og hefur tryggingasala í heimin- um vaxið gífurlega undanfarin ár. eða um það bil þrefaldazt á tímabilinu 1953 til 1963, eftir því sem skýrslur herma. Margar þær áhætmr, sem maðurinn mætir nú, skapar hann sjálfur með lifs- hátmm sínum og framferði og getur undir ýmsum kringumstæðum c.rðið sjálfum sér og öðrum mjög hætruleg- ur. Það er augljóst hverjum, sem um það vill hugsa, að bindindismaðnrinn lifir mun áhcettuminna lífi heldur en vínneytandinn og er því minni hærta á að hann valdi öðrum tjóni með fram- ferði sínu. Hinar heilnæmu lífsvenjur bindindismanna leiddu til þess, að fyrir meira en hálfri öld voru beim boðnar líftryggingar með hagstæðari kjörum en almennt gerðist og mun það hafa verið fyrsti vísirinn að bind- indistryggingu í heiminum. Þegar vélaöldin var sem mest að ryðja sér til rúms á Norðurlöndum um 1930 jókst tryggingaþörfin jafn- hliða, fjölþættar bifreiðatryggingar og slysatryggingar voru í örum vexti. Árið 1926 var x Svíþjóð stofnað Bind- indisfélag ökumanna (MHF) og hófu forsvarsmenn þess strax athuganir á því, hvort ekki væri hægt að fá ódýrari bifreiðatryggingar fyrir félagana, þar sem þeir töldu augljóst að bindindis- BFÖ-BLAÐIÐ 21

x

BFÖ-blaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.