BFÖ-blaðið - 01.03.1981, Blaðsíða 3
Sala bifreiða
á íslandi og í Svíþjóð
[ síðasta blaði var greint frá sölu bíla í Svíþjóð, í
marsmánuði. Til gamans þá birtum við núna listann yfir
söluna í júní. Ef borin er saman mars og júnísalan kemur
ýmislegt í Ijós sem er sambærilegt við markaðinn hér
heima. Mazda 323 og Saab 900 hafa bætt geysilega við
sig frá því árið 1980. Einnig hefur Ford Escort aukið
mikið söluna í Svíþjóð, en hér hefur hann reyndar ekki
enn náð mikilli sölu.
Ef við lítum nánar á listann þá sjáum við að Volvo 240
leiðir nú sem fyrr með 20 154 seldum bílum (21.050
1 980, næsturkemur Saab 900 með 9.313 selda (7.913).
Opel Kadett hefur hækkað um eittsæti, úr fjórða íþriðja
með 4.820 seldum bílum (4.416). Volvo 340 er með
4.718 selda (4.989), Golf með 4.235 selda (5.490), Ford
Escort með 3.497 selda (695), Mazda 323 með 3.053
selda (1851), VW Jetta með 2.722 selda (2), Ford Fiesta
með 2.614 selda (2.529) og Ford Taunus með 2.549
selda (2.767).
Eftírfarandi er listinn yfir 25 söluhæstu fólksbílana í
Svíþjóð eftir fyrstu sex mánuði ársins 1981:
25 I TOPP PERSONBILAR, SEDAN OCH KOMBI UNDER IUNI 1981
Márke/modell Perioden Ackumul Andel 1 %
Inv 4r Fg ár Inv ár Fg ár Inv ár Fg ár
1 Volvo 240 2 959 3 139 20 154 21 050 21,16 21,34
2 Saab 900 1 551 1 569 9 313 7 931 9,77 8,04
3 Opel Kadett 720 688 4 820 4 416 5,06 4.47
4 Volvo 340 595 674 4 718 4 989 4,95 5,05
5 VW Golf 9C6 856 4 235 5 490 4,44 5,56
6 Ford Escort 418 122 3 497 695 3,67 0,70
7 Mazda 323 676 341 3 053 1 851 3,20 1.87
8 VW Jetta 452 1 2 722 2 2,85
9 Ford Fiesta 422 414 2 614 2 529 2.74 2,56
10 Ford Taunus 494 646 2 549 2 767 2,67 2,80
11 Saab 99 316 500 2 420 3 430 2,54 3.47
12 Ford Granada 471 531 2 368 2 344 2,48 2,37
13 Opel Rekord 1900/2000 390 477 2 364 2 921 2,48 2,96
14 Mercedes 230/240/300 448 485 2 278 2 672 2,39 2,70
15 VW Pðssat 377 254 1 566 1 889 1,64 1.91
16 Vaz 1500 254 232 1 426 1 230 1,49 1.24
17 Mazda 626 185 195 1 272 1 072 1,33 1.08
18 Opel Ascona 248 348 1 219 2 116 1.27 2.14
19 Datsun Cherry 127 100 1 080 1 424 1.13 1,44
20 Toyota Corolla 30 167 209 977 1 539 1.02 1,56
21 Audi 80 172 210 938 1 085 0,98 1,10
22 Mitsubishi Colt 56 877 0,92
23 BMW 316—323 151 121 858 784 0,90 0,79
24 Datsun Bluebird 161 158 849 304 0,89 0,30
25 Saab 600 165 247 820 968 0,86 0,98
Þá skulum við líta til íslands, til þess aðfá samanþurð.
Bílgreinsambandið tekur relgulega saman skrá yfir þá
bíla, er hafa verið tollafgreiddir. í júnílok var listinn
eftirfarandi:
Tegund: Fjöldi seldra 30/6 '81
1. Mazda 626 313
2. Lada 1600 293
3. Mazda 323 249
4. Subaru 206
5. Daihatsu Charade 171
6. Mazda 929 168
7. Lada 1500 158
8. Saab 99/900 154
9. Galant 153
10.-11. Lancer 132
10.-11. Volvo 244 132
12. Skoda 105/120 127
13. Colt 101
14. Citroen GS 96
15. Lada Sport 92
16. Datsun Cherry 89
17. Suzuki 82
18. Fiat Polonez 74
19. Honda Accord 71
20. Volkswagen Golf 68
Á listanum eru tilgreind alls 133 „týpu"-heiti í seldum
fólks- og jeppabifreiðum. Alls var flutt inn á tímabilinu
4.391 bifreið. Ef litið er á söluna þá kemur í Ijós að
Bílaborg er það umboð er mesta söluna hefur, með 730
seldar bifreiðar. Þá kemur Bifreiðar- og lanbúnaðarvélar
með 543 seldar og Hekla með454seldar. Rétt eraðtaka
fram að þessar tölur ná einungis til þess lista sem hér
birtist.
Vonandi hafa lesendur gaman af að lesa lista þennan
og bera saman við þann sænska. Ef svo er, þá er
tilgangnum náð.
Ein góð frá íslandi
Það skeði hér einn föstudaginn snemma sumars að
verið var að hlaða Toyota sendibíl er halda skyldi út á
land að morgni laugardags. Er bíllinn hafði verið hlaðinn
og allt var tilbúið til að halda í hann, skeði óhappið. Eitt
augablaðið brotnaði. Nú voru góð ráð dýr. Fljótt kom í
Ijós að umboðið átti ekki til varahlut. Eftir könnun víða
um land var það Ijóst að augablaðið fyrirfannst ekki á
íslandi. Umráðamenn bílsins eru þekktir fyrir allt annað
en að gefast upp.
Nú sneru þeir leit sinni út fyrir landsteinana. Kannað
var í gegnum sambönd í Osló óg Kaupmannahöfn hvort
augablaðið skyldi leynast þar í hillum. Nei sama
niðurstaða. Ekkert augablað til. AÐ morgni
laugardagsins var gripið til örþrifaráðs. Hringt var til
forstjóra Toyotaumboðsins í Kópavogi. Sá er hringdi átti
alveg eins von á því, að forstjóri sem væri eldsnemma á
alveg eins von á því, að forstjóri sem væri vakinn
eldsnemma á laugardegi, útaf smámáli eins og einu
augablaði, yrði viðskotaillur með afbrigðum. Nei, hann
Páll forstjóri var hinn Ijúfasti. Er hann hafði heyrt
hvernig komið varsagði hann við hringjandann: „komdu
með bílinn í umboðið. Við erum þar með nýja bíla sömu
tegundar og þinn. Ég ræsi út verkstæðismann og læt
hann taka augablað úr nýjum bíl og setja undir þinn.
Vandamálið sem við það skapast leysi ég eftir helgi".
Svona eiga kaupmenn að vera. Það sakar ekki svona í
lokin að geta þess að margumræddur sendibíll er nýji
bíllinn okkar hjá BFO og Einar framkvæmdastjóri var að
leggja í ökuleiknisferðina og búið var að auglýsa keppni
á hinum ýmsu stöðum, þannig að ekkert mátti útaf
bregða.
i