BFÖ-blaðið - 01.03.1981, Qupperneq 3

BFÖ-blaðið - 01.03.1981, Qupperneq 3
Sala bifreiða á íslandi og í Svíþjóð [ síðasta blaði var greint frá sölu bíla í Svíþjóð, í marsmánuði. Til gamans þá birtum við núna listann yfir söluna í júní. Ef borin er saman mars og júnísalan kemur ýmislegt í Ijós sem er sambærilegt við markaðinn hér heima. Mazda 323 og Saab 900 hafa bætt geysilega við sig frá því árið 1980. Einnig hefur Ford Escort aukið mikið söluna í Svíþjóð, en hér hefur hann reyndar ekki enn náð mikilli sölu. Ef við lítum nánar á listann þá sjáum við að Volvo 240 leiðir nú sem fyrr með 20 154 seldum bílum (21.050 1 980, næsturkemur Saab 900 með 9.313 selda (7.913). Opel Kadett hefur hækkað um eittsæti, úr fjórða íþriðja með 4.820 seldum bílum (4.416). Volvo 340 er með 4.718 selda (4.989), Golf með 4.235 selda (5.490), Ford Escort með 3.497 selda (695), Mazda 323 með 3.053 selda (1851), VW Jetta með 2.722 selda (2), Ford Fiesta með 2.614 selda (2.529) og Ford Taunus með 2.549 selda (2.767). Eftírfarandi er listinn yfir 25 söluhæstu fólksbílana í Svíþjóð eftir fyrstu sex mánuði ársins 1981: 25 I TOPP PERSONBILAR, SEDAN OCH KOMBI UNDER IUNI 1981 Márke/modell Perioden Ackumul Andel 1 % Inv 4r Fg ár Inv ár Fg ár Inv ár Fg ár 1 Volvo 240 2 959 3 139 20 154 21 050 21,16 21,34 2 Saab 900 1 551 1 569 9 313 7 931 9,77 8,04 3 Opel Kadett 720 688 4 820 4 416 5,06 4.47 4 Volvo 340 595 674 4 718 4 989 4,95 5,05 5 VW Golf 9C6 856 4 235 5 490 4,44 5,56 6 Ford Escort 418 122 3 497 695 3,67 0,70 7 Mazda 323 676 341 3 053 1 851 3,20 1.87 8 VW Jetta 452 1 2 722 2 2,85 9 Ford Fiesta 422 414 2 614 2 529 2.74 2,56 10 Ford Taunus 494 646 2 549 2 767 2,67 2,80 11 Saab 99 316 500 2 420 3 430 2,54 3.47 12 Ford Granada 471 531 2 368 2 344 2,48 2,37 13 Opel Rekord 1900/2000 390 477 2 364 2 921 2,48 2,96 14 Mercedes 230/240/300 448 485 2 278 2 672 2,39 2,70 15 VW Pðssat 377 254 1 566 1 889 1,64 1.91 16 Vaz 1500 254 232 1 426 1 230 1,49 1.24 17 Mazda 626 185 195 1 272 1 072 1,33 1.08 18 Opel Ascona 248 348 1 219 2 116 1.27 2.14 19 Datsun Cherry 127 100 1 080 1 424 1.13 1,44 20 Toyota Corolla 30 167 209 977 1 539 1.02 1,56 21 Audi 80 172 210 938 1 085 0,98 1,10 22 Mitsubishi Colt 56 877 0,92 23 BMW 316—323 151 121 858 784 0,90 0,79 24 Datsun Bluebird 161 158 849 304 0,89 0,30 25 Saab 600 165 247 820 968 0,86 0,98 Þá skulum við líta til íslands, til þess aðfá samanþurð. Bílgreinsambandið tekur relgulega saman skrá yfir þá bíla, er hafa verið tollafgreiddir. í júnílok var listinn eftirfarandi: Tegund: Fjöldi seldra 30/6 '81 1. Mazda 626 313 2. Lada 1600 293 3. Mazda 323 249 4. Subaru 206 5. Daihatsu Charade 171 6. Mazda 929 168 7. Lada 1500 158 8. Saab 99/900 154 9. Galant 153 10.-11. Lancer 132 10.-11. Volvo 244 132 12. Skoda 105/120 127 13. Colt 101 14. Citroen GS 96 15. Lada Sport 92 16. Datsun Cherry 89 17. Suzuki 82 18. Fiat Polonez 74 19. Honda Accord 71 20. Volkswagen Golf 68 Á listanum eru tilgreind alls 133 „týpu"-heiti í seldum fólks- og jeppabifreiðum. Alls var flutt inn á tímabilinu 4.391 bifreið. Ef litið er á söluna þá kemur í Ijós að Bílaborg er það umboð er mesta söluna hefur, með 730 seldar bifreiðar. Þá kemur Bifreiðar- og lanbúnaðarvélar með 543 seldar og Hekla með454seldar. Rétt eraðtaka fram að þessar tölur ná einungis til þess lista sem hér birtist. Vonandi hafa lesendur gaman af að lesa lista þennan og bera saman við þann sænska. Ef svo er, þá er tilgangnum náð. Ein góð frá íslandi Það skeði hér einn föstudaginn snemma sumars að verið var að hlaða Toyota sendibíl er halda skyldi út á land að morgni laugardags. Er bíllinn hafði verið hlaðinn og allt var tilbúið til að halda í hann, skeði óhappið. Eitt augablaðið brotnaði. Nú voru góð ráð dýr. Fljótt kom í Ijós að umboðið átti ekki til varahlut. Eftir könnun víða um land var það Ijóst að augablaðið fyrirfannst ekki á íslandi. Umráðamenn bílsins eru þekktir fyrir allt annað en að gefast upp. Nú sneru þeir leit sinni út fyrir landsteinana. Kannað var í gegnum sambönd í Osló óg Kaupmannahöfn hvort augablaðið skyldi leynast þar í hillum. Nei sama niðurstaða. Ekkert augablað til. AÐ morgni laugardagsins var gripið til örþrifaráðs. Hringt var til forstjóra Toyotaumboðsins í Kópavogi. Sá er hringdi átti alveg eins von á því, að forstjóri sem væri eldsnemma á alveg eins von á því, að forstjóri sem væri vakinn eldsnemma á laugardegi, útaf smámáli eins og einu augablaði, yrði viðskotaillur með afbrigðum. Nei, hann Páll forstjóri var hinn Ijúfasti. Er hann hafði heyrt hvernig komið varsagði hann við hringjandann: „komdu með bílinn í umboðið. Við erum þar með nýja bíla sömu tegundar og þinn. Ég ræsi út verkstæðismann og læt hann taka augablað úr nýjum bíl og setja undir þinn. Vandamálið sem við það skapast leysi ég eftir helgi". Svona eiga kaupmenn að vera. Það sakar ekki svona í lokin að geta þess að margumræddur sendibíll er nýji bíllinn okkar hjá BFO og Einar framkvæmdastjóri var að leggja í ökuleiknisferðina og búið var að auglýsa keppni á hinum ýmsu stöðum, þannig að ekkert mátti útaf bregða. i

x

BFÖ-blaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.