BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 17

BFÖ-blaðið - 01.04.1984, Blaðsíða 17
til mikils sóma og þeim til óblandinnar ánægju sem þátt tóku. BFÖ-blaðið Eins og áöur hefur BFÖ-blaðið komið út, kannski með öllu lengri millibilum en oft áður. Á árinu 1982 komu út tvö blöö sem innihéldu 4 tölublöð og þaö sem af er þessu ári hefur komið út eitt blað sem innihélt 1 .-2. tölublað. í undirbún- ingi er nú 3.-4. tölublað, sem vonandi kemur út í byrjun desember. Satt að segja hefur útgáfa blaðsins ekki gengið sem skyldi. Ástæðan er m.a. sú að ritnefndin starfaði aðeins fyrra árið og stjórnin hefur ekki tekið á málinu sem skyldi og skipað nýja ritnefnd. Annars eru uppi hugmyndir um að stjórnin skipi ritstjóra að blaðinu, sem síðan fái í lið með sér nokkra áhugasama félaga til að veita blaðinu forystu. Slíkt myndi líklega einfalda alla vinnslu blaðsins, þar sem einn aðili væri ábyrgur gagnvart stjórninni og hefði jafnframt alla þræði útgáfunnar í hendi sér. Ég leyfi mér að minna á, að BFÖ-blaðið er einn besti vettvangur okkar þar sem við getum komið skoðunum okkar og markmiðum félagsins okkar á framfæri við félagsmenn og einnig til annarra þeirra sem blaðið ættu að fá, ráðamenn í umferðarmálum, löggæslumálum, bindindismál- um og fleiri þáttum þjóðlífsins. Ungmennadeild BFÖ Ungmennadeildin hefur starfað með nokkrum hléum undanfarið starfstímabil. Veturinn 1981- 1982 hélt BFÖ úti tveimur vélhjólaklúbbum, annars vegar í Hafnarfirði og hins vegar í Breiðholti í Reykjavík. Klúbburinn í Hafnarfirði starfaði þetta tímabil með miklum ágætum. Veturinn 1982-83 datt botninn að mestu úr þessu starfi og er nauðsynlegt að koma slíkum klúbbum aftur á fót. Slíkt krefst þess þó að félagið fái til starfa duglega og áhugasama leiðbeinendur. Starfsemi klúbbanna byggðist bæði á verklegri tilsögn í viðgerðum vélhjóla og einnig á ýmis konar fræðslu um umferðarmál, sem látin var í té, ýmist með kvikmyndasýningum, fyrirlestrum eða í prentuðu máli. Til BFÖ hefur verið leitað með efni og aðstoð fyrir vélhjólaklúbba frá nokkrum stöðum utan af landi. Á Akureyri átti BFÖ hlut að máli, er endurvakinn var þar s.l. haust vélhjólaklúbbur sem starfa mun á vegum Æskulýðsráðs Akureyr- ar. Stjórnarmenn í ungmennadeildinni eru Sigurð- ur Guðmundsson, ívar Guðmundsson og Smári Hreiðarsson, allir ungir og áhugasamir menn. Stjórn BFÖ verður að styðja betur við bakið á þessum ungu mönnum og aðstoða þá eftir fremsta megni í því starfi sem þeir vilja sinna. Þá má minna á að stjórn ungmennadeildar átti Sænsku Volvo-verksmiðjurnar kynna nú tilraunabifreið sem vafalaust á eftir að vekja mikla athygli og hefur raunar þegar komið fram það álit að hönnun bifreiðar þessarar marki á margan hátt tímamót í sögu bifreiðaframleiðslu. Hefur bifreiðin sem kölluð er Volvo LCP eða Volvo Light Componet Project, verið kölluð bifreið 21. aldarinnar enda margar nýjungar sem koma fram í henni hvergi verið kynntar áður f bifreiðahönnun og bifreiðasmíði. Má segja að bifreið þessi hafi verið hönnuð í beinu framhaldi af Volvo Concept Car—tilraunabifreiðinni sem Volvo hannaði fyrir nokkrum árum og vakti þá gífurlega athygli. Þótt sú bifreið hafi ekki verið tekin til framleiðslu hafaVolvo-verksmiðjurnar þegartekið upp fjölmargar nýjungar og tækniatriði sem fram komu í bifreiðinni og má ætla að svo verði einnig með Volvo Light Componet. 17

x

BFÖ-blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: BFÖ-blaðið
https://timarit.is/publication/234

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.