BFÖ-blaðið - 01.07.1997, Blaðsíða 1
BFO-blaðið
Félagsrit Bindindisfélags ökumanna 1/1997
24. sambansþing BFO
Starfsemin í endurskoðun
Föstudaginn 9. maí síðastliðinn var haldið 24.
þing BFÖ, í lok 43. starfsárs félagsins. Þingfulltrúar
voru alls 22.1 upphafi þingsins var minnst tveggja
forystumanna BFÖ sem nýlega féllu frá, þeirra
Vilhjálms Halldórssonar, formans Garðsdeildar,
og Jóhanns Bogasonar, formanns Akranesdeildar.
í skýrslu forseta BFÖ, Reynis Sveinssonar, kom
fram að starf félagsins var fjölbreytt á siðasta
starfsári. Bar þar hæst ökuleiknina auk veltibílsins
sem æ oftar er í notkun við öll möguleg tækifæri.
Afkoma félagsins var bærileg á síðasta starfsári.
Reynir sagði mikilvægt að taka ýmsa þætti í
starfsemi félagsins til endurskoðunar í ljósi
breyttra aðstæðna í félagsrekstri og áhuga
félagsmanna. Var ákveðið að skipa milli-
þinganefnd til að taka þessi mál til skoðunar.
Á þinginu fjölluðu umræðuhópar um ýmis
baráttumál félagsins, svo sem baráttuna gegn
ölvunarakstri, fækkun slysa ungra ökumanna,
notkun bílbelta og notkun reiðhjólahjálma. Mun
stjórn félagsins taka ábendingar og niðurstöður
hópanna upp í starfi félagsins á komandi starfsári.
Þá var á þinginu kynntur mjög áhugaverður
margmiðlunardiskur Sjóvá-Almennra hf. en á
honum er fjallað um umferðarmál frá ýmsum
sjónarhornum. Tölvudiskurinn kemur sér vel í
umferðakennslu ungra ökumanna og ekki síður
kemur hann þeim eldri að notum við upprifjun
umferðarreglna.
Á þinginu var stjórn félagsins öll endurkjörin.
Forseti Bindindisfélags ökumanna er
Reynir Sveinsson. Framkvæmdastjóri er
Einar Guðmundsson.
-srj.