BFÖ-blaðið - 01.12.1997, Blaðsíða 1
BFÖ-blaðið
Félagsrit Bindindisfiélags öliunianna 3/1997
Jolaumferöin
Átak gegn ölvunarakstri ber árangur
Sjóvá-Almennar og Vátryggingafélag íslands
vinna saman að forvarnamálum í desember með
því að efna til átaks í baráttunni gegn
ölvunarakstri, í samvinnu við lögreglu, slökkvilið,
leigubílstjóra og fleiri.
Tónleikar voru á Ingólfstorgi 5. desember til að
vekja athygli á átakinu. Þar skemmtu meðal
annarra Bubbi Morthens, Emiliana Torrini, Jón
Ólafsson og hljómsveitin Forvarnir.
Upplýsingar frá lögreglunni í Reykjavík
benda til þess að þriðjungi færri en í fyrra
hafi verið teknir vegna gruns um ölvun við
akstur fyrri hluta desembermánaðar, enda
þótt eftirlit lögreglu hafi verið hert til mikilla
muna. Líklegt er að umræða um afleið-
ingar ölvunaraksturs hafi haft sitt að segja.
í þessu sambandi má minna á að ár hvert eru á
annað þúsund ökumenn dæmdir fyrir
ölvunarakstur. Sumir þeirra nást ekki fyrr en þeir
hafa valdið óbætanlegu tjóni. Bindindisfélag
ökumanna fagnar þessu átaki tryggingafélaganna
af heilum hug. Það verður aldrei brýnt um of fyrir
ökumöimum að akstur krefst svo mikillar athygli
að ölvunarástand má þar hvergi koma nærri.
Bindíndísfélag ökumanna óskar
landsmönnum g-leðílegxa jóla
og farsældar á nýju ári
- eklkí síst í umferðmnL