Vestri


Vestri - 02.09.1905, Page 2

Vestri - 02.09.1905, Page 2
174 V E S T R I. að jafn miklu sje árlega varið til vegagerða í verzlunarstaðnum auk hreppsvegagjaldsins, sem er ákveðið 2,50 fyrir hvern verkfæran karl- mann í verziunarst. (20—60 ára). Sama nefnd ber upp frv. um breytingu á lögum 13/io ’03 um heilbrigðissamþykktir fyrir bæjar- og sveitar-fjelög. Fer sú breyting fram á, að sömu reglur gildi um verzlunarstaði, sem eru hreppur út af fyrir sig, og um kaupstaði. tingsköp. Nefndin, sem skipuð var til að íhuga stj.frv. um breyt. á þingsköpum alþingis, (I’órh. Bj., Magn. And., Bj. Bj.), hefir fallist á breytingarnar að mestu leyti; en vill láta endurskoða þingsköpin í heild sinni og ber því uppfrv. um þingsköp, sem alveg eiga að koma í stað laganna 7/* 1876. Færzla þingtímans. Nefndin (E. Br., Sig. Stef., Þór. J.) leggui- til, að færa þingtímann til 15. febr., en það skuli þó ekki koma í fram- kvæmd fyr en 1909. ÍMngsályktunartillögur. Sig. Stefánsson hefir borið upp þings- ályktunartillögu um, að skora á stjórnina að endurskoða ábúðar- löggjöf landsins og semja frv. til nýrra byggingar-. ábúðar- og úttekt- ar-laga, er verði lagt fyrir alþingi 1907. Samþ. í e. d. Jón Jónsson o. fl. flytja þings- ályktunartillögu um að skora á ráðherrann að sjá um, að eigi sje látið dragast lengur að fullnægja ákvæði landsbankalaganna um að stofnsett yrði útbú á Seyðisfirði. Hannes Þorsteinsson flytur þings- ályktunartillögu um að skora á stjórnina, að leggja fyrir næsta þing frv. um verndun fornmenja í land- inu og reisa nú þegar alvarlegar skorður gegn því, að fomgripum úr kirkjum eða frá öðrum opin- berum stofnunum verði fargað út úr landinu frekar en orðið er. tingnei'ndir. Verðlaun fyrir úlflult smjör (e. d.): Guðjón, Þórarinn, Sig. Jensson. Bœjargjöld í Reykjavik (e. d.): B. M. Ólsen, Jón Jakobsson, Þorgr. Þórðarson. Sölutollur á bitterum og pat- ent-lyfjum (e. d.): Jón Ól., Ágúst Flyg., Jóh. Jóliannesson. Til þeiirar nefndar vísað frv. um lollgeymslu og tollgreiðslu-frest. Forkaupsrjettur teiyuliða og þjóðjarðasala (e. d.): E. Briem, Guðjón, Pórarinn, Ágúst Flyg., Borgr. Pórðarson. Skipun lœknishjeraða (n. d.): Stefán (Eyf.), Jón í Múla, Guðm. Björnsson. Aðflutningsbann {n.d.): Guðm. Bj., Á. J., Guðlaugur, Magn. And., Tr. Gunnarsson. Frv. til laga um hefð (n. d.): Lárus Bj., Guðlaugur, Björn Bj., Eggert Pálsson, Ól. Thorlacius. Válrygging sveilabœja og tómthúsa (n. d.): Pjetur, Þórh. Bj., Jón Magn., Hannes Þorst., Ól. Briem. Fátœkralög (n. d.): JónMagn., Stefán (Skagf.), Guðlaugur, Á. J., Jóh. Ólafsson. Viðauka við rœktunarsjóðs- lögin (e. d.) vísað til þjóðjarða sölu-nefndarinnar. Atvinna við siglingar (e. d): E. Briem, Ágúst Flyg., Sig. Jenss. Bœndaskólar (e. d.): Guðjón, Þórarinn, Guttormur, Jóh. Jóh., Sig. Stefánsson. Kennaraskóli (n. d.): Þórh. Bj., Jón Magn., Guðm. Bj., Stefán (Skagf.) Magn. And., Árni, Jón í Múla. Geðveikrahœli (e. d.): Ágúst Flyg., Þorgr. Þórðarson, E. Briem. Fiskiveiðasjóður (n. d.): vísað til fjárlaganefndarinnar. Ný bankavaxtarbrjef (n. d.): Tr. Gunnarsson, Lárus Bj., Hannes Þorst., Jón í Múla, Ól. Briefir. Veiting áfengra drykkja á skipum (e. d.): Ágúst Flyg., Jóh. Jóh., Jón Jak. Sveitastjórnarlög (e. d.): Guð- jón, Þórarinn, Jóh. Jóhannesson. Byggingarsjóður (e. d.): E. Briein, Jón Jak., YaltýrGuðmundss. Lög frá alþingi 1905. 19. Lög um ákvörðun verzl- unarlóða. 20. Lög um heimildfyrir stjórn- arráð íslands til að setja reglu- gerðir um notkun hafna við kaup- tún í landinu o. fl. 21. Lög um löggilding verzlun- arstaða: (Gerðar í Garði, Maríu- höfn í Kjósarsýslu, Syðra-Skógarnes í Miklaholtshreppi, Látur i Aðalvík, Lambhúsavík á Yatnsnesi, Ólafs- fjarðarhorn í Þóroddsstaðarhreppi og Holtsós undir Eyjafjöllum.) 22. Lög um túngirðingar. 23. Fjáraukalög fyrir ’02—’03. 24. Samþ. á landsreikningnum 1902—1903. 25. Lög um bann á innflutningi útlends kvikfjenaðar. 26. Lög um breyting á lögum um heilbrigðissamþykktir fyrir bæj- ar- og sveitar-fjelög 23. okt. 1903. 27. Lög um breyting á iögum 13. apr. 1894 um vegi og um breyting á þessum lögum 23. okt. 1903. 28. Lög um breyting á iögurc 7. júní 1902 um heimild til að stofna hlutafjelagsbanka á ísiandi. 29. Lö| um skyldu eiganda að láta af hendi við bæjarstjórn Ak- ureyrar eignarrjett og önnur rjett- indi yfir Glerá, og landi meðfram henni. Fallin frumvörp. Skipting bæjarfógetaembættis í Reykjavík. Breyting á læknahjeraðaskipun við Eyjafjörð og í S.-Þingeyjars. Brú á Ytri-Rangá. Brú á Fnjóská. Brú á Hjeraðsvötnum. Hækkun á launum hreppstjóra, Frumvörp þessi fjellu öll sama daginn nema það síðasta. Slíkt er nokkuð mikill niðurskurður á einum og sama degi. Frjettir frá útSöndum. Danmörk. Ailsherjar kenn- arafundur fyrir Norðurlönd, hinn 9. í röðinni, var haldinn í Kaup mannahöfn frá 7.— 11. ágúst. — Hluttakendur voru alls um 7 000. Frá Svíþjóð voru um 2,000, frá Norvegi 900, frá Finniándi 300 og frá Danrrörku um 4.000. A fundinúm voru 12 íslendingar. Eugenia, franska keisara- ekkjan, var á ferðinni í Danmörku fyrir skömmu. — Síðasta von hennar um að komast aptur til valda brást, þegar Napoleon sonur hennar fjell í Afríku 1879, í ófriði þeim, er Englendingar áttu við Zulu-Kaffa. Eugenia lifir nú fremur önturlegu lífi í höll einni á Englandi, en bregður sjer þó á stundum í ferðalög með skemmtiskipi sínu. IJún er 79 árá að aldri. F'yrir nokkru flutti >Politiken« grein þess efnis, að Norðmönnum væri það enginn neyðarkostur, þótt þeir gengju að því skilyrði Svía, að rífa niður víggirðingar sínar á landamærum Norvegs og Svíþjóðar. A móti þessu hefir Björnstjerne Björtison aptur ritað í »Politiken,« og segir, að ekki geti komið til í.iála, að Norðmenn geri slíkt, þar eð það skerði þjóðrjettindi þeirra. Svíþjóö. Ráðaneytið Ram- ■stedt hefir sagt af sjer. Eptir nokkradaga tókst Lundeberg, fyrv. varaformanni efri málsstofu, að mynda nýtt ráðaneyti. I ráða- neyti þessu sitja menn úr öllum fiokkum, en flest hægrimenn. Frakkar og iiretar. Frönsk herskipaflotadeild kom til Ports- mouth á Englandi sunnan verðu, 8 ágúst, og var tekið með afar- mikilli viðhöfn. Borgirnar Cowes og Portsmouth voru allar upp- ljómaðar, sem og frakknesku og brezku herskipin. Játvarður konungur hjelt veizlu úti á skipi sínu og drakk minni Loubet’s forseta, og taldi heimsókn flotans mundu efla mjög friðinn og auka bræðraþel milli þjóðanna. 80 af fyrirliðum Frakka, ásamt flota- foringjanum, brugðu sjer síðan tii London, og var þá mikið um dýrðir þar. Rússland. Stjórnin þar hefir hept útflutning á korni sökum slæmrar uppskeru. ITallæri vofir yfir. — Enn bryddir þar á óeirðum hjer og hvar. 100 Gyðingar voru drepnir í Bisdostok.— Kruger sjóliðsforingja hefir verið vikið frá embætti og fleiri foringjum við Svartahafsflota Rússa. En Lamsdorf greifi hefir sagt af sjer utanríkisráðherraembættinu. í Póllandi vekur hið rússneska stjórnarskrárfrumvarp mjög mikla óánægju, enda tekur það ekkert tillit til rjettinda Pólverja. E>. 21. ágúst hófst almennt verkfall í Warchau. 1 Kúrlandi hafa einnig orðið 44. tbl. megn upphlaup. Þar hefir verið mynduð herstjórn og B e k m a n hershöfðingja verið fengin alræð- isvöld í hendur. Marokko. Þýzkir bankar hafa útvegað soldáninum þarpeninga- lán. Frakkar eru þessu mjög gramir og þykjast vera illa sviknir af Þjóðverjum, þar sem báðir höfðu verið búnir að ákvarða, að deilumál þeirra út úr Marokko skyldi útkljá á alþjóðafundi. Nýlendur Þjóðverja í Austur- Atríku hafa gert uppreisn (eins og eignir Þjóðverja í Suðvestur- Afríku) og veita þær Þjóðverjum þungar áhyggjur. Blöðin þýzku eru og ærið önug og segja^ að þjóðin sje orðin leið á þessum sífelldu stríðum við nýlendurnar. Bandaríkin. í New Orleans geysar gula drepsóttin. 50-60 manns dóu uaglega eina vikuna. Einn af þeim er drepsóttin hefir orðið að bana, er Chapelle erkibiskup. Norðurtararskipið >Terranova,« sem ameríski auðmaðurinn Zieg- ler hefir gert út, er konflð slysa- laust til Norvegs. Yenezuela er sagt að sje að panta irá Norðurálfunni tundur- báta, fallbyssur og skotfæri fyrir 25 miljónir dollara. Maður, sem nýkominn er frá Caracas, segir, að Castro forseti hafi gefið þá yíirlýsing, að Venezuela ætli að herja á Bandaríkin. Friðarsaniningurinn. 4. þ. m. settust þeir Witte og Komura á rökstóla, til þess að semja um frið, út af austræna ófriðinum. Fundarstaður var valinn Ports- mouth í New Hampshire í Banda- ríkjunum. Roosevelt forseti tók á móti þeim með hinum mestu virktum, svo og allur landslýður. Sjerstaklega var Witte þó fagnað vel. Er svo sagt, að engum út- lending hati verið sýnd þar jafn mikil hylli öðrum en Lafayette, frakkuesku frelsishetjunni rniklu, er meðal ttnnars tók þátt í frelsis- stríði Bandaríkjanna. Hvar sem Witte íór, voru fagnaðarópin yfir- gnaflandi og var honum hvar- vetna sýnd meiri virðing- enn Komura, svo ætla má, að J penum þykt nóg um dálæti Witte. Blaðasendlar og stjórnmálamenn þustu að Witte, strax og hann steig á land, og svalaði liann forvitni þeirra meðprentuðuskjali er hann útbýtti, og var þar í meðal annars þetta: »Næstum allstaðar í Norcurálfu og Vesturheimi gera menn oflítið úr kröptum og auðsuppsprettum Rússlands og herliði þess, og þessi villa á sjer einnig stað meðal rússnesku þjóðarínnar. Osigrar þeir, er Rússland hetir beðið, hafa alls ekki hrekkt veldi því, er það hafði fyrir striðið, og Jap. n hehr ekkt heldur á hinn bóginn efist svo mjög við sigra þá, er það hefir unnið í stríðinu, að Rúss-,

x

Vestri

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vestri
https://timarit.is/publication/235

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.