Vestri


Vestri - 20.04.1912, Blaðsíða 1

Vestri - 20.04.1912, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kr. H. Jónsaon, ÍSAFJÖRÐUR, :o. APRÍL 1912. 15. tbl. Bergenhus er komið með ósköpin öll af nýjum vörum, þar á meðal flauelf bómullartau í luorgnnkjóla, oftirspurð mjös:, blússu> tau, stakkatau, nærfatnað, sporthúfur og m. fl. Gjörið £yo vel að líta inn strax. I versiun Jéh. Þorstelnssonar. XI. árg. Næsta þing. Það er nú sagt að næsta þing komi ekki saman fyrri en í miðjum júlí. En til skams tíma var búist við að það byrjaði 1. jútí. — Dráttur þessi stafar af því að konungur vor dvelur suður t löndum nú í vor fram í maílok, og siglir því ráðherrann ekki fyrri en seint í maí. En þótt svo sé að enn sé all langt til þingbyrjunar er þó ekki óhklegt, að þingmenn og aðrir þjóðmálamenn fari nú fram úr þessu að leiða hugann að ýmsum þingmálum sem fyrir liggja. Sennilegt er að þingmálafundir verði haldnir einhvern tíma nú í vor áður en mestu sumarannir byrja, og þurfa því kjósendur að fara að hugsa fyrir hverjar óskir þeir hata íram að bera til næsta þings. Eins og kunnugt er liggja fyrir næsta þingi ýms stórmál, ný og götnul. Eitt af þeím málum er skatta- málið, stm neíndin hefir nú verið að unóirbúa síðan á síóasta þtngi. Er vonandi að frumvörp hennar og tillögur verði nú birt sem fyrst, svo menn hafi tíma til að átta sig á því fyrir þingmála- fundina. Þá er stjórnarskrárfrumvarp það er samþykt var á síðasta þingi og gegnir furðu hve litlar Ulöræður hafa um það orðið. — vísu mun það satt, að fáir Uiunu ánægðir með það, og varð °okkurskonar neyðarúrræði Satt>komulags á síðasta þingi. ° ani>aðhvort er nú að gera a S8t‘Ua sig við það, þrátt fyrir þá ‘'nnniarka sem á þvíeiu, eða láta sök | sajtj liggja þar til grundvöllur nýrrar stjórnarbreyt ingar, Stltnbancisiög> geta orðið því samferða. Það mú að vísu telja víst að sambandsmálið verði ekki tekið fyrir á þann hátt, að það verði samþykt á næsta þingi, því það mál verður þjóðin að fá að leggja sérstakan úrskurð á áður. Hitt er líklegt að næsta þing athugi hvort nokkur kostur er á sam- komulagi innbyrðis í því máli, því fyrst er fyrir íslendinga að verða þar á eitt sáttir áður en þeir fara á ný að leita samkomu- lags við Dani um málið. Meðan vér erum sendraðir og ósamþykk- lr * því máli eru öll sundlokuð, °S *ttu því allir góðir íslending- ar að reyna að samþýða svo 1 skoðanir sínar, að hægt væri að taka málið upp á þeim grund velli, sem einhver von er um að hægt sé að leiða það til lykta á. En það er sérstaklega eilt atriði, sem þingmálafundirnir verða að gangast fyrir með áskorununuiQ og eftirdæmi, og það er að koma á betri samvinnu og samkomulagi miili leiðtoga hinna andstæðu flokka í Iandinu. Ultúð sú og ósamlyndi, sem hefir ollað oss svo þungra búsifja bæði síðar og fyr, verður að réna, ef vér eigum að hafa nokkra von uai að þjóð vor nái langþráðu sjálfstæði í stjórnarfari, fram- förum og framkvæmdum. Ósam- lyndisvágestinn verðum vér að kveða niður, ef eitthvað á að vinnash Varla berast svo stjórnmál í tal milli einstakra manna, að okki beri jdfnframt á góma, hve mikil raun þjóð vorti sé að sundurlyndi og flokkadrætti hitina ahugasöm. ustu og afskiftasömustu stjórn málaleiðtoga í Jandinu, og þeir sem sjálfir eru eða hafa verið í eldinum finna ekki siður sviðann en aðrir. En eitt er að sjá og aunað að ráða bót á, og.þaðer því ekki nóg að sjá hættu þá og skaða sem af þessu hefir hlotist, heldur verða ailiraðgera sitt til þess að ráða bót á því framvegis. Því veikari, fámennari og fá- tækari sem þjóðin er, því nauð- synlegra er henni að sem flestir séu samtaka og að sem allra minst af kröftum hennar gangi til þess að strita hver gegn öðrum. Eins og hver sáir mun hann uppskera, og þingið verður ávalt ímynd og eftirmynd þeirra, er kjósa til þess. Ef þeir hafa það eitt í huga, að vinna með frið og eindrægni cg sleppa öllum erjum og eldri brösum og sýna það á þingmálafundunum, mun þingið sigla í sama kjölfar. Þjóð vor er að vísu að mörgu leyti á æskuskeiði, og er því ekki kyn þótt bernskubrekio verði mörg og' ruikil, en hún ætti þó að fara að komast á það þroska stig, að láta ekki úlfúðina glepja það starfið sem mest á ríður. Safnaðir stöndum vér, sundr- aðir föllum vérl Það ættu allir að hafa hugfast. Fjær og nær. Mótorbátur fórstí Vestmanna- eyjum með 6 mönnum aðfaranótt sunnudagsins 14. þ. m. Formaður bátsjns hét Bergsteinn Bergsteins- son. Sk psstrand. í norðanveðrinu 14. þ. m. strandaði fiskiskipið >Rúna« frá Bfldudal á svonefnd- um Arnarnesboða i Dýrafirði, er liggur 40— 50 faðma frá landi.— Mennirnir (10) fóru í skipsbátinn, og Hittu fyrir sér vélarbátinn >Huldu< héðan úr bænum, er lá þar nokkru innar. Var þeim þar tekið eftir bestu föngum og voru þeir þar um nóttina. Morguninn eftir fór >Hulda< þangað er skipið lá, og bjargaði þá föggum háseta og matföngum að miklu leyti og fór með strandmennina til Þing- eyrar. — Skipið sökk skömmu síðar. Skipið var eign h/fP. J. Thor- steinsson & Co. á Bíldudal. Vélarbátur br^tnar. Aðtaranótt sunnudagsinshrepti vélarbáturinn >Sigurfari< úr Hnífsdal allmikið óveður og braut sjó á haDn á leiðinni í land, svo olíuna, sem var á þilfari, tók út. Leitaði báturinn því vestur með seglunum, en myrkur var og moldviðri svo ekki sást til leiðar. Náðu skipverjar loks landi í Krossavík utanvert við Skaga i Dýrafirði, en brutu bátinn í lend ingunni, því stórgrýti var fyrir og brim. Tókst skipverjum þó að bjarga vélinni og farvið öllum og veiðarfærum, en báturinn brotnaði í spón. Eigandi bátsins er Valdemar Þorvarðsson kaupmaður, og var Valdemar sonur hans formaður. Báturinn var óvátrygður. Snæfellsncss- og Hnappadals- sýsla hefir verið veitt Páli Vída- líni Bjarnasyni sýslum. í Skaga- fjarðarsýslu. Húsbrunar. Hús Lárusar Maríssonar bónda á Borg í Skötufirði brann til kaldra kola aðfaranótt þriðjudags- ins 16. þ. m. Fólk bjargaðist út með nauminduna, en allir ina- anhússmunir brunnu. Húsið var vátrygt fyrir 35000 kr., en inn- anhúsmunir óvátrygðir. Verslunarhús í Keflavík við Faxaflóa brann nýlega. Húsið var eign S. Bergmanns, en Vilhj. Chr. Hákonarson rak þar verslun. — Bæði húsið og vörurnar var vátrygt. í landsdóm voru kosnir tveir menn á síðasta bæjarstjórnarfundi og voru kosnir: Sigurðúr Jónsson kennari og Ólafur F. Davíðsson versl.stj. í Reykjavík fór nýlega fram kosning 6 manna í landsdóm; kosnir voru: Sighvatur Bjarnason, Sigurður Briem, Þorleifur H. Bjarnason, Jón Gunnarsson, Guðm. Magnússon prófessor, Þorleifur Jónsson. Islcndingur í Grænlandsfðr Koclis. Vigfús Sigurðsson póstur á A'ftanesi kvað vera ráðinn í ransóknaríör Kochs höfuðsm. á Grænlandi. Þeir kvað ætla að hafa eitthvað af íslenskum hest- um til fararinnar. Hrukknun. Maður datt útbyrðis af vélar- bát í Ságandafirði nú í vikunni, og drukknaði. Hann hét Þor- valdur Jónsson (Jónssouar húsm. hér), ungur efnismaður, '111 Norvcgs fóru nú með >Flóru< lugóltur Jónsson form. og Ólafur Jónsson (trá Garðs- stöðum til þess að kenna Norð- mönnum að verka Labradorfisk Eru þeir ráðnir at fiskikaupmanni einum i Haugasundi og verða 3—6 mánuði.

x

Vestri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestri
https://timarit.is/publication/235

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.