Vestri


Vestri - 26.08.1912, Blaðsíða 1

Vestri - 26.08.1912, Blaðsíða 1
Ritstjóri: Kr. H. Jónsson, ÍSAFJÖRÐUR, 26. A G Ú S T 1912. 33* tbi. Símfregnir. 22. ágúst. Frumvarpi um einkasölu á steinolíu vísað frá með rökstuddri dagskrá, og frumvarpið þar með úr sögunni á þessu þingi. Jón Ólafs'-on flytur frumvarp um einkaheimild fyrir stjórnina að panta og útvega steinolíu fyrir kaupmenn og verslunaríélög. Stjórnarskráimálið var til umræðu í n. d. i gær. Samþykt rökstudd dagskrá: að með því ný sambandslög væru ef til vill væntanleg sýndist rétt að fresta stjórnarskrármálinu að sinni. Farmgjaldsfrumvarpið verður væctanlega afgreitt sem lög frá alþingi í dag. Fyrirspurn Valtýs Guðmundssonar um viðskiftaráðunautinn lá fyrir í gær. Langar og heitar umræður, ræða Valtýs mjög ýtarleg. Loks var samþykt rökstudd cagskrá til stjórnarinnar að annast um að ráðunauturinn fylgdi erindisbréfinu og láta athuga vel ferðas kostnaðarreikninga hans. 24, s. m, Lög afgreidd frá alþingi: Breytingar á lögum um rithöfundarétt. Um toll á síldarlýsi o. fl. Um ritsímai og talsímakerfi. Um vörutoll (farmgjald). Breytingar á lögum um Landsbankann, afgreiðslustofa erlendis og bankaútbú á Austurlandi (í stað Seyðisfirði). Um vatnsveitingar í löggiltum kaupstöðum. Breytingar á lögum um lendingarsjóði (2 kr. af hlut). Um bólusetningar. Um fast þingfararkaup alþingismanna og hækkun dagpeninga. Ura yfirsetukvennaskóla í Reykjavík. Avarp til konungs samþykkt fyrir luktum dyrum. Þingsályktunartillaga um að skora á ráðherra að leita sam- komulags við Dani í sambandsmálinu samþ. í sam. þingi með 31 atkv. gegn 4 (Sk., Bj., Bened. og Þorl.), nokkrir þinngmenn voru fjarverandi. Þingsáiyktunartilfaga um að skora á stjórnina að safna skýrsl- um og ransaka fyrir næsta þing hvort tiltækilegt sé að landsjóður taki að sér einkaeölu á steinolíu, samþ. í n. d. Fundir verða haldnir í báðum deildum a mánudagsmorguninn og þingi verður slitið kl. 12. 26. s. m. Alþiugi slitið í dag kl. 12. Lög afgreidd frá Alþingi: Um eftirlit með skipum og bátum og öryggi þeirra. — Um heimild fyrir stjórnina að selja íslensku verslunarfélagi eða íslendingi einkasölurétt á steinolíu. Þingmenn Flúovetninga, Skagfirðinga og Stetán í Fagraskógi fóru í dag með Reykjavíkinni til Borgarness. Aðrir þingmeDn norðan og austan at landi tara með Austra, en þingmenn at Vest- urlandi með Ceres. Ráðherra siglir væntanlega með Botníu 27. n. m. XI. árg. Aukaþingið. Því er nú slitið í dag eins og getið er um í símfregnum í blað- inu. Sjáifsagt eru misjafnir dómar u.m afrek þess. Tíminn hefir verið stuttur og ýms þau mál er það hefir haft með höndum skorti undirbúning. Merkuatu tíðindi á þessu þingi má óefað telja stjót narskiftin. — Ekki svo að skilja að allar líkur vo u til þess að ráðherraskifti yrðu á þinginu. Kristján Jónsson tók það aldrei að sér nema til bráðabirgða, og síðustu kosn- ingar fóru á þá leið að sjálfsagt var að heimastjórnarmaður tæki aftur við stjórninni, og þá var auðvitað engum líklegri á að skipa en H. Hafstein; hann var reyndur í því starfi og hafði rækt það af dugnaði og í fullu samræmi við stefnu þess flokks er studdi hann að völdum. Hitt er meira umvert að hann nú nýtur ekki einungis fylgis alls heimastjórnarflokksins og flestra flokksleysingja á þingi, heldur og einnig meginþorra sjáhstæðis- flokksins. Þegar H. Hafstein lét af völd- um var það tyrir þá sök að meiri hluti þingsins vildi halda aðra leið í sambandsmálinu, tók þvert fyrir alt samkomulag í því máli og samþykti vantraustsyfirlýsingu á ráðherra lyrir störf hans í því. En nú er hann einmitt kjörinn ráðherra og nýtur fylfeis flestra þingmanna at því, að þeir treysta henum allra manna best í því máli. Þetta hefir reynslan kent mönnum á þessum stutta tíma. Annað aðalmál þingsins hefir verið að bæta úr fjárhagsvand- ræðunum. Þar virðast skoðan- irnar hafa verið fremur skiftar, en þó hefir lánast að koma sér saman um leið sem bætir úr bráðustu nauðsyn, og það er aðalatriðið. Hitt hefir minna að segja hvort sú leið reynist svo heppileg að þjóðinnilítist að halda hana tramvegis. En þá koma dagar og þá koma ráð, og mikils er um það vert að ráða bót á því að landið haldi áfram að safna skuldum til fastra árlegra útgjalda. Það mál sem þingið var aðal lega boðað til, stjórnarskrármálið, hefir attur á móti verið látið hvíla sig. Þar sem þingið nær óskift vill taka aftur upp samningsum- leitanir um sambandsmálið hatði það fulla ástæðu til að fresta stjórnarskrármálinu, þar til séð yrði hvort horfur eru á að sam- bandsmálinu verði bráðlega ráðið til lykta. Að því er hin önnur frumvörp þingsins snertir. hafa fæst þeirra neina stórvægilega þýðiagu. Það sem mest er um vert er það, að þetta þing hefir sameinað kraftana til að reyna að ná því takmarki, sem við höfum lengi kept að, en mistum svo hrapal- lega af við næstsíðustu kosning ar fyrir flokkadrætti og sundur- lyndi í landinu. Ný áfengislög í Færeyjum. Ný áfengislög hafa verið sam- þykt fyrir Færeyjar og eru þau að eins endurbætt útgáfa aflög- unum frá 1903, sem heita má að hafi útrýmt allri áfengisnautn í Færeyjum. Aðalatriðið í þeim lögum var atkvæðagreiðslau um áfengis verslun og árangurinn varð sá að hún var bönnuð; örfá atkvæði yfirleitt með áfengissölunni. Síðan hefir áfengi ekki fengist í Færeyjum annarstaðar en í lyfjabúðinni Örfáir pöntuðu sér áfengi frá útlöndum. Effersöe þingmaður Færeyinga hefir átt tal um þetta atriði við danskan blaðamann, og segir að lögin frá 1903 hafi aðeinsverið tilraun, en þau hafi reynst rnjög vel og unuið mikið gagn. Amlmaðurinn í eyjunum hefir safnað skýrslu frá öllum embætt- ismönnum og sveitarstjórnum í eyjunutn, og öllum ber þeim saman um að áfengisnautn hafi þverrað mjög og að sjóskaði, sem svo oft átti sér stað áður, því sjómenn höfðu áfengi með sér á sjóinn, hafi ekki kornið fyrir síðan vegna áfengisnautnar. Einnig hefir nautn víns og brennivíns minkað. Áður var drukkið um 4,28 iítrar á mann, en nú að eins i,iB lítri, minsta vín- nautn í Norðurálfunni. Auðvitað hefir við og við átt sér stað launsala, en þó svo lítið að þess hefir ekki gætt. Eftir- litið hefir verið lagt í hendur alþýðunnar og sjaldan verið sektað fyrir brot. Nýju lögin taka strangara á brotum og miða að því að koma í veg fyrir að launsala geti átt sér stað. Af nýmælum í lögunum má nefna bann gegn að panta áfengi hjá umferðasölum, og ákvæði um eftirlit á þeim stöðum sem veittir eru á óáfengir drykkir. Við hátíðahöld og gestaboð hefir áfengis sjaldan verið neytt, það hefir aldrei verið siður í Færeyjum að geta ekkirent niður bita, nema skola hann niður með víni eða öli. t Wllllain Booth, yfirforingi Hjálpræðishersins andaðist 20. þ. m. Míðstjórn sambandsflokksins skipa: Jón Magnússon, Jón Ólats- son, Þorsteinn Gíslason, Ágúst Flygenring, Sigurður Hjörleifsson Jens Páísson og Guðm. Björns- son. Hcimastjómarflokkurinn held- ur áfram að vera til og hafa verið kosnir f miðstjórn hans: Jón Þorláksson, Jón Magnússon, Egg- ert Claessen, Jón Ólafsson, Ágúst Flygenring, Guðmundur Björns- son og Þorsteinn Gíslason.

x

Vestri

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vestri
https://timarit.is/publication/235

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.