Vestri - 21.09.1912, Síða 1
ESTRI
Ritstjóri: Kr. H. Jónsson,
ÍSA.FJÖRÐUR, 2I. SEPTF.MBHR ,gí2. 37. tbl.
Úíbú Landsbankans
Frá 22. sept. til 12. oktober 1912 verdur
Útbúid opíð til afgreiðslu alla virka daga frá
kl. 10-2 og 4- 5.
Stjórnin.
Nýjar ísS. ágætis
""u r
fást í Edinborg.
Deilan um réttinn.
Síðasta mannsaldurinn, og
meira til, höfum vér verið að
berjast við Dani.
Þótt sá hildarleikur hafi eigi
verið með vopnum háður, hefir
hann kostað oss ærið fé, þraut-
seigju og hugrekki.
Og ekki hefir verið um smá-
muui barist; við höfum barist
fyrir tilveru okkar; rétti okkar
til þess að lifa sjálfstæðu lífi sem
þjóð.
Reyndar hefir oft skeikað frá
settu marki: stundum hefir bar-
áttan orðið að Hjaðningavígum
í landinu sjálfu; stundum hefir
virst ganga aftur á bak.
En alt af hefir réttartilfinningin
vaxið hjá þjóðinni og sótt í sig
veðrið aftur.
Þttta verða menn að hafa hug-
ifast.
Danir hafa ávalt staðið á önd-
verðum meiði. Þeir hafa þumb-
ast við réttarkröfunum; sjaldnast
neitað þeim með öllu, en reynt
að tvístra þeim og eyða, — og
þó látið undan að lokum.
Þetta hefir reynslan kent oss
undanfarið. Og hún er sá lær-
dómur sem á að styðja oss að
því að vinna meira.
Sá mun og hafa verið tilgang-
ur þeirra raanna, sem á síðasta
þingi mynduðu nýjan flokk: til
þess að fá festu á kröfur vorar
gagnvart Döuum, og: þagga
niður Hjaðningavígin innanlands.
Er það hverjum manni ljóst,
að lítil von er um sigur málefnis
okkar meðan slík sundrung er
innanlands um málið og verið
hefir um hrið. En Danir hafa
staðið á móti sem einn maður.
En eiga þessi samtök sér dýpri
rætur ?
Er það markmið þeirra að
vinna þjóðinni til handa óskorað
sjálfstæði?
Því er vandsvarað og reynslan
ein getur úr því skorið að fullu.
En það hyggjum vér ekki ofmælt
að sú sé tilætlunin; hversu húo
tekst er annað mál.
En eins og Danir hafa staðið
í órjúfandi skjaldborg gagnvart
rétti okkar, er það jafn sjálfsagt
að Islendingar stæðu sem einn
maður með kröfum sínum.
Gæti það tekist væri mikið
unnið.
En ekki ber síður hins að gæta,
að leiðtogarnir verði eigi svo
skammsýnir að gera minni kröfur
en svo að þjóðin verði ánægð
með þær.
Því þjóðin má ekki þreytast
láta með að heimta rétt sinn, og
mun ekki gera það. Þrautseigj-
an hefir reynst henni best fram
á þennan dag í deilumálunum við
Dani.
Og vér vonum að sambands-
flokknum nýja takist að sýna svo
mikla rögg af sér í málinu og
halda svo vel fram rétti vorunx
að þjóðinni megi vel líka.
s.
Hafnargerð Rvíkur,
Bæjarstjórn Reykjavíkur hefir
14. þ. m. samþykt svohlj. ályktun
með 11 samhlj. atkv.:
>Bæjarstjórnin samþykkir tilboð
herra verkfræðings N. C. Mon
bergs í Kaupmannahöfn, dags.
17. f. m., að byggja höfn í
Reykjavík fyrir 1510 þúsund
krónur, þó að áskildum rétti til
að taka 1540 þúsund króna til-
boði hans í sama bréfi, ef bæj-
arstjórninni að fengnum nýjum
ýtarlegri upplýsingum þætti það
aðgengilegra.
Hins vegar vill bæjarstjórnin
ekki á þessu stigi málsins sam-
þykkja tilboð hans um byggingu
inuri hafnar við Effersey fyrir
100,000kr. aukaborgun, en óskar
að það tilboð standi fyrst um
sinn <
Loftskeytin eru nú sífelt að
taka undraverðum framförum.
í síðasta blaði var getið um hinar
afanstórfeldu ioftskeytastöðvar
Norðmanna, sem verða munu hin'
ar stærstu íheimioghefirMarconii
félagið tekið að sér byggingu
þeirra. Áætlað er að stöðvar
þessar kosti um 1 milj. kr.
Nýlega voiu og settar skeyta ■
stöðvar á Sandvicheyjunum, sem
eiga að senda skeyti yfir þvert
Kyrrahaf alla leið tii New-York,
og er sú vegalengd meira en 1000
mílur. Þær stöðvar voru reistar
með umbúnaði Vald. Poulsens
htns danska.
Komið hefir til orða að setja
loftskeytastöðvar á íslandi og
Grænlandi.
Eigi mun líða á löngu þar til
öll skip og jafnvel smábátar
verða útbúin loftskeytum. —
Slíkt eru hraðstígar framfarir.
Konungsheimsóknín,
Fullyrt er að konungur vor,
Kristján X., muni heimsækja
land vort í júní eða öndverðum
júltmánuði næsta sumar. Til far.
arinnar verður notað skiptð
Valkyrien, sem er stærst her-
skipa Dana.
Ekki þarf að efa að margt
gott getur af þessari konungs*
heimsókn leitt, eins og áður.
Hún sýnir og ljóslega velvildar'
hug konungs til vor og löngun
til að kynnast landi og þjóð eins
og unt er.
Um hitt þarf og ekki að efast,
að þjóðin muui fagna konuugi
eins og vera ber. Það er ávalt
gott að njóta góðra manna — og
þjóðin mun ekki brjóta af sér
konungshylli sína.
Túninálið vaf lagt í dóm að
endaðri vitnaleiðslu þ. 14. þ. m.
Ekki mun þó dómur í því verða
uppkveðinn að sinni
Þetta er stærsta mál bæjarins
og vekur því áhuga bæjarbúa.
Botnla kcm hingað i dag. Með
henni yar fjöldi farþega: Hr. H. Jóns-
son ritstj., dr. B.iörn Bjarnarson, Karl
Oigeireson yerslunarstj., Carl Proppé
verslunarstj. og frú, Hannes Stephen-
sen yerslunarstj,, frú Hólmfríður Sig-
urðardóttir, ungfr. Fjóla Stefáns, Sig.
Sigurðsson kennari, Sumarl Halldórsson
skógfr., Þoryarður Sigurðsson versl.m.,
Páll Pálsson form., Örnólfur Hálfdáns-
son form., Bjarni Pétursson kennati,
Asgeir I. Asgeirsson kaupm o. fi.
Skipið fer héðan aftur kl. ]j á
morgun.
Albert U. Báátli, sænska
skáldið, er nýlega látinn, nær
sextugur. Hann hefir ritað mikið
um tornsögur vorar á sænska
tungu og þýtt meðal annars
Njálu, Eglu og Grettlu. Doktor
í norrænum fræðum varð hann
fyrir ritgjörð um efnið (kompoi
sitionina í íslenskum ættasög-
um.
Bááth var skáld gott og í
miklum metum í föðurlandi sínu.
í Marokko eru sífeldir smá-
bardagar milli Frakka og inn>
tæddra manna, og ekki búist
þar við spekt fyrst um sinn þrátt
fyrir herafla Frakka. Frakkar
hafa nú velt Mulai Hafid úr soldi
ánstigninni, en veitt honum meira
en J/g milj. kr. í eftirlaun árlega
Eftirmaðnr hans er nefnur Mulai
Jussuf.
Er líklegt að það taki langan
tíma að koma á fuilkominni reglu
í landinu.
Eldfjallið Stroinloli hefir
nýskeð gosið meira en nokkru
sinni áður í mannaminnum.
Sýsluskritarl
Jdh. P. Jdnsson
býr til sainninga at* öllu tagi,
sér um innheimtu á skuldum,
útvegar veðdeildarlán.
PIP Áreiðanleg úg fljót skil,
Vanalega heima kl. 5—6 e. m.
Hafnarstræti 1.