Vestri - 25.11.1912, Side 1
ESTRI.
Ritstjóri: Kr. H. Jónsson,
XI. irg.
ÍSAFJÖRÐUR, 25. NOVEMBER
1912.
46. tbl.
Fréttir frá útlöndum.
Aukuat ófiiðarhorfur.
Eins og kunnugt ar hefit Mong-
ólíið sagt sig undan yfirráðum
Kína, og hefir þar verið valinn
konungur og sett á stofn sjáífstæð
stjórn. Var þess getið til að
þetta væri gert að ráði Rússa
og með tilstyrk þeirra. Þetta
hefir nú reynst satt, og hefir
samningurinn verið birtur opin-
berlega. Hafa Rússar lofað
Mongolibúum aðstoð sioni til að
halda uppisjálfstæði þeirra gagn-
vart Kínverjum, en fá afturýms
sérréttindi og hlunnindi.
Kínverjar hafa orðið óðir og
uppvsegir yfir þessum tiltektum
Og hafa sent her norður í Mong-
ólíu og ætluðu að taka borgina
Kobdo, eu Rússar brugðu við
og sendu her til varnar henni.
Er búist við að af þessu kunni
að leiða til ófriðar milli Kínverja
og Rússa.
Þess hefir verið getið í sím-
skeytum að Austurríkismenn og
ítalir hafi hannað Serbum uað
halda liði sínutil Adríahafsins og
allar landvinningar þar, en aftur
á móti er sagt að Rússar styðji
Serba að málum og vilji gjarnan
veita þeim lið. Er litið svo á
að Austurríkismenn og ítalir
ætli sér lönd þessi ef bú »hins
sjúka manns< kemur til skifta,
En það líkar Rússum illa og
vilja fremur unna Serbum þess.
Ef Austurríkismenn og ítalir gera
alvöru úr ógnunum sínum má ef
til vill vænta að Rússar veiti
Serbum og gæti þá farið svo að
ófriðurinn á Balkanskaga yrði að
algerðum Evróp .pfriði.
Það mun líka vaka tyrir Aust-
tirrikismönnum að ef Serbar auka
lönd sín í námunda við Bosniu
°g Herzegovinu, sem Austurríki
kastaði eign sinni á fyrir nokkr-
um árum, geti þaá leitt til þcss
að þeir missi aftur þessi fylki
íbúarnir eru þar flestir Serbar,
og myndu því máske óska að
komast í stjórnarsamband við
fraendur sína.
AfturLá móti er Rússum kapps-
ttiál að strendur Adriahafsias séu
fekki í óvina höndum. Þeim yrði
Það óbætanlegt tjón, et Dardan
eUasundinu yrði lokað fyrir
si8lingum þeirra, því um það
%tja þeir mikið at korni ©g
e^rum vörum frá löndum sínum
vi<5 Svartahafið.
Vlð útvígi Miklagarðs.
í símskeytum í síðasta blaði
er sagt, að her Búlgara sé nú
kominn í námunda við Miklagarð
(Konstantinopel). Hata Tyrkir
haft þar viðbúnað mikinn síðan
stríðið byrjaði og þeir sáu fyrir
ófarir sfnar. En í byrjun ófrið-
arins voru vígi og varnir allar í
lélegu ástandi, Þótt unnið hafi
verið af kappi síðan er enn mörgu
ábótavant, enda skortir Tyrki fé
til slíks viðbúnaðar og fluttu þar
að auki mikið af vígvélum til
Adrianopel í byrjun ófriðarins.
Herskip frá stórveldunum liggja
nú á nötninni í Miklagarði og
eiga þau, eins og áður er sagt,
að vera til verndar kristnum
mönnurn. Enda búast menn við
að kristnum íbúum verði illa vært
í borginni, ef óvinir setjast um
hana, þar sem Tyrkir trúa þeim
illa og eru þar að auki fullir
trúarofsa.
Caiialejas yfirráðherra Spám
verja var skotinn til bana á götu
f Madrid nú nýlega. Morðinginn
haitir Manúel Martin og er talinn
stjórnleysingi.
Canalejas varð yfirráðherra
1910 og þótti mikilhæfur maðúr.
Carcia Prieto er var fjármálai
ráðherra, er nú yfirráðherra.
Símfregnir.
Ófriðurinn á Balkanskaga.
Búlgarar og sambandsríki
þeirra hafa boðið Tyrkjum þá
friðarskilmála, að þeir fái að
halda Miklagarði og dálitlu
landsvæði þar í kring, en láti
aðrar lendur hér í Evrópu af
hönduna.
Tyrkir hafa neitað þeim kost'
um.
Búlgarar komnir að útvígum
Miklagarðs og sestir um borgina.
Á einum stað áttu þeir í alfi
skæðri viðureign við her Tyrkja
og urðu að hörfa til baka aftur.
lijörn Júnsson látinn.
Björn Jónsson fyrrum ráðherra
lést í gær kl. 4 f. m., úr hjarta-
slagi. Hafði legið mjög þungt
haldinn síðan á miðvikudag.
Slys.
Jens Pálsson prófastur meidd-
ist mikið síðastl. miðvikudag.
Ætlaði frá Hafnarfirði og heim
Háttvirta viðskiftamenn mína,
sem ætla að fá sér ný iöt íyrir jólin, advara
eg um að senda pantanir sinar nú þegar, áður
en liátíða-annirnar komast i algleyming.
Virðlngarfylst:
M. Jeppesen,
klæðskcri.
Mikið úrval
af failtpm f3t36ÍDM með læysta verði
oy mikiar biryðir af ttðlllDiilDfDlDDðl.
Mikill afsláttur.
Yerslun Guðríðar Árnadcttur.
að Crörðum ríðandi. Þegar hann
var að fara á bak fældist hóst-
urinn, en síra Jens festi fótinn í
ístaðinu og dró hesturinn hann
nokkra stund þar til hann lesnaði;
en hesturinn stökk heim laus. —
Meiddist síra Jens mjög mikið,
brotnaði viðbeinið og þrjú rif og
lungun skemdust eitthvað svo
blóð gekk upp úr honum og svo
hefir hann fengið lungnahimnu-
bólgu. Hann hefir legið í Hatn-
arfirði síðan og er talið mjög
tvísýnt um lít hans.
Láutaka landssjóðs.
Ráðherra hefir lánast að tá 1
milj. kr. að láni tyrir landssjóðs
hönd með ótrúlegagóðum kjörum,
ekki síst þegar tekið er tillit til
vaxtahækkunar þeirrar sem þá
var að komast á. Helmingur
lánsins kvað vera tekinn hjá
hinu konunglega danska lítsá-
byrgðarfélagi, en hinn helming
urinn hjá Stóra norræna télaginu.
Alþiugistíðiudin.
Prentun á umræðum í efri
deild og sameinuðu þingi lokið,
en ekki búið að prenta nema 4
hefti af umræðum neðri deildar.
ísafoldarprentsmiðja hefir prentun
neðri deildar umræðanna.
Sjðgangur og ofviðri.
í ofviðrinu um daginn hafði
verið sjógangur mikill og ofsarok
á Langanesi sem gerði allimikið
tjón á bátum. húsum og skipum.
T. d. er sagt að á einum bæ
þar hafi sjógangurinn brotið fjós
með 3 kúm; komst aðeins 1
þeirra lifandi af.
2 mótorbátar og 1 uppskipun.
arbátur brotnaði í spón á Þórs-
höín.
Yélarbátur férst á Eyjafirði
nýlega og druknuðu tveir menu.
Formaðurinn hét Guðmundur
Jörundsson úr Hrisey.
Skipströud. Fiskiskipið Sam>
son, eign Ásgeirs kaupm. Péturs'
sonar á Akureyri, rak nýlega
á sker 1 Krossnesbót, þar sem
það lá í vetrarlagi, og sökk.
Annað fiskiskip, Fremad, eign
Snorra Jónssonar kaupm. rak á
norskt flutningaskip og brotnaði
mikið. Eitt norskt flutningaskip
rak í land.
Islcusk orðabúk, sem Jón
Ólafsson ritstjóri hefir verið að
semja, er nú byrjuð að koma
út. Fyrsta hefti sagt fullprenti
að.
Sterling kom hingað 24. þ.
m. Með henni kom Jón H. Sigi
mundsson trésm. og smiðir þeir
er með honum voru í Vestmannai
eyjurn og einhverjir fleiri farþeg.
ar.
Skipið tekur hér talsv«rt af
fiski og ter því ekki fyr en á
miðvikudaginn.