Vestri


Vestri - 25.11.1912, Qupperneq 1

Vestri - 25.11.1912, Qupperneq 1
ESTRI. Ritstjóri: Kr. H. Jónsson, XI. irg. ÍSAFJÖRÐUR, 25. NOVEMBER 1912. 46. tbl. Fréttir frá útlöndum. Aukuat ófiiðarhorfur. Eins og kunnugt ar hefit Mong- ólíið sagt sig undan yfirráðum Kína, og hefir þar verið valinn konungur og sett á stofn sjáífstæð stjórn. Var þess getið til að þetta væri gert að ráði Rússa og með tilstyrk þeirra. Þetta hefir nú reynst satt, og hefir samningurinn verið birtur opin- berlega. Hafa Rússar lofað Mongolibúum aðstoð sioni til að halda uppisjálfstæði þeirra gagn- vart Kínverjum, en fá afturýms sérréttindi og hlunnindi. Kínverjar hafa orðið óðir og uppvsegir yfir þessum tiltektum Og hafa sent her norður í Mong- ólíu og ætluðu að taka borgina Kobdo, eu Rússar brugðu við og sendu her til varnar henni. Er búist við að af þessu kunni að leiða til ófriðar milli Kínverja og Rússa. Þess hefir verið getið í sím- skeytum að Austurríkismenn og ítalir hafi hannað Serbum uað halda liði sínutil Adríahafsins og allar landvinningar þar, en aftur á móti er sagt að Rússar styðji Serba að málum og vilji gjarnan veita þeim lið. Er litið svo á að Austurríkismenn og ítalir ætli sér lönd þessi ef bú »hins sjúka manns< kemur til skifta, En það líkar Rússum illa og vilja fremur unna Serbum þess. Ef Austurríkismenn og ítalir gera alvöru úr ógnunum sínum má ef til vill vænta að Rússar veiti Serbum og gæti þá farið svo að ófriðurinn á Balkanskaga yrði að algerðum Evróp .pfriði. Það mun líka vaka tyrir Aust- tirrikismönnum að ef Serbar auka lönd sín í námunda við Bosniu °g Herzegovinu, sem Austurríki kastaði eign sinni á fyrir nokkr- um árum, geti þaá leitt til þcss að þeir missi aftur þessi fylki íbúarnir eru þar flestir Serbar, og myndu því máske óska að komast í stjórnarsamband við fraendur sína. AfturLá móti er Rússum kapps- ttiál að strendur Adriahafsias séu fekki í óvina höndum. Þeim yrði Það óbætanlegt tjón, et Dardan eUasundinu yrði lokað fyrir si8lingum þeirra, því um það %tja þeir mikið at korni ©g e^rum vörum frá löndum sínum vi<5 Svartahafið. Vlð útvígi Miklagarðs. í símskeytum í síðasta blaði er sagt, að her Búlgara sé nú kominn í námunda við Miklagarð (Konstantinopel). Hata Tyrkir haft þar viðbúnað mikinn síðan stríðið byrjaði og þeir sáu fyrir ófarir sfnar. En í byrjun ófrið- arins voru vígi og varnir allar í lélegu ástandi, Þótt unnið hafi verið af kappi síðan er enn mörgu ábótavant, enda skortir Tyrki fé til slíks viðbúnaðar og fluttu þar að auki mikið af vígvélum til Adrianopel í byrjun ófriðarins. Herskip frá stórveldunum liggja nú á nötninni í Miklagarði og eiga þau, eins og áður er sagt, að vera til verndar kristnum mönnurn. Enda búast menn við að kristnum íbúum verði illa vært í borginni, ef óvinir setjast um hana, þar sem Tyrkir trúa þeim illa og eru þar að auki fullir trúarofsa. Caiialejas yfirráðherra Spám verja var skotinn til bana á götu f Madrid nú nýlega. Morðinginn haitir Manúel Martin og er talinn stjórnleysingi. Canalejas varð yfirráðherra 1910 og þótti mikilhæfur maðúr. Carcia Prieto er var fjármálai ráðherra, er nú yfirráðherra. Símfregnir. Ófriðurinn á Balkanskaga. Búlgarar og sambandsríki þeirra hafa boðið Tyrkjum þá friðarskilmála, að þeir fái að halda Miklagarði og dálitlu landsvæði þar í kring, en láti aðrar lendur hér í Evrópu af hönduna. Tyrkir hafa neitað þeim kost' um. Búlgarar komnir að útvígum Miklagarðs og sestir um borgina. Á einum stað áttu þeir í alfi skæðri viðureign við her Tyrkja og urðu að hörfa til baka aftur. lijörn Júnsson látinn. Björn Jónsson fyrrum ráðherra lést í gær kl. 4 f. m., úr hjarta- slagi. Hafði legið mjög þungt haldinn síðan á miðvikudag. Slys. Jens Pálsson prófastur meidd- ist mikið síðastl. miðvikudag. Ætlaði frá Hafnarfirði og heim Háttvirta viðskiftamenn mína, sem ætla að fá sér ný iöt íyrir jólin, advara eg um að senda pantanir sinar nú þegar, áður en liátíða-annirnar komast i algleyming. Virðlngarfylst: M. Jeppesen, klæðskcri. Mikið úrval af failtpm f3t36ÍDM með læysta verði oy mikiar biryðir af ttðlllDiilDfDlDDðl. Mikill afsláttur. Yerslun Guðríðar Árnadcttur. að Crörðum ríðandi. Þegar hann var að fara á bak fældist hóst- urinn, en síra Jens festi fótinn í ístaðinu og dró hesturinn hann nokkra stund þar til hann lesnaði; en hesturinn stökk heim laus. — Meiddist síra Jens mjög mikið, brotnaði viðbeinið og þrjú rif og lungun skemdust eitthvað svo blóð gekk upp úr honum og svo hefir hann fengið lungnahimnu- bólgu. Hann hefir legið í Hatn- arfirði síðan og er talið mjög tvísýnt um lít hans. Láutaka landssjóðs. Ráðherra hefir lánast að tá 1 milj. kr. að láni tyrir landssjóðs hönd með ótrúlegagóðum kjörum, ekki síst þegar tekið er tillit til vaxtahækkunar þeirrar sem þá var að komast á. Helmingur lánsins kvað vera tekinn hjá hinu konunglega danska lítsá- byrgðarfélagi, en hinn helming urinn hjá Stóra norræna télaginu. Alþiugistíðiudin. Prentun á umræðum í efri deild og sameinuðu þingi lokið, en ekki búið að prenta nema 4 hefti af umræðum neðri deildar. ísafoldarprentsmiðja hefir prentun neðri deildar umræðanna. Sjðgangur og ofviðri. í ofviðrinu um daginn hafði verið sjógangur mikill og ofsarok á Langanesi sem gerði allimikið tjón á bátum. húsum og skipum. T. d. er sagt að á einum bæ þar hafi sjógangurinn brotið fjós með 3 kúm; komst aðeins 1 þeirra lifandi af. 2 mótorbátar og 1 uppskipun. arbátur brotnaði í spón á Þórs- höín. Yélarbátur férst á Eyjafirði nýlega og druknuðu tveir menu. Formaðurinn hét Guðmundur Jörundsson úr Hrisey. Skipströud. Fiskiskipið Sam> son, eign Ásgeirs kaupm. Péturs' sonar á Akureyri, rak nýlega á sker 1 Krossnesbót, þar sem það lá í vetrarlagi, og sökk. Annað fiskiskip, Fremad, eign Snorra Jónssonar kaupm. rak á norskt flutningaskip og brotnaði mikið. Eitt norskt flutningaskip rak í land. Islcusk orðabúk, sem Jón Ólafsson ritstjóri hefir verið að semja, er nú byrjuð að koma út. Fyrsta hefti sagt fullprenti að. Sterling kom hingað 24. þ. m. Með henni kom Jón H. Sigi mundsson trésm. og smiðir þeir er með honum voru í Vestmannai eyjurn og einhverjir fleiri farþeg. ar. Skipið tekur hér talsv«rt af fiski og ter því ekki fyr en á miðvikudaginn.

x

Vestri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestri
https://timarit.is/publication/235

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.