Vestri


Vestri - 20.06.1916, Qupperneq 2

Vestri - 20.06.1916, Qupperneq 2
90 VjESTH:i *3. M. Símíregnir i 14. júní. Einkaskeyti til Mbl., Khöfn 10. júní: 12 nienn hafa bjargast at breska beitiskipinu Hampshire, á timburfleka. Grikkir afvopna nckkurn hluta hers síns, eftir kröfu bandai manna. Rússar hafa handtekið 65,000 Austurríkismenn. Orustunum á vestri vígstöðvunum og suður vígstöðvunum haldið ifram at sama kappi og áður. Einkaskeyti til Mbl., Khöfn 14. júní: Rússar nálgast Cernowi'z og hafa enn handtekið 5,500 Aust* urrikismenn. Þjóðverjar hafa gcrt árásir við Riga og við Pinsk. Einnig hafa þeir gert árásir við Ypres. Italir hata stöðvað framsókn Austurrikismanna. Republikanar hafa valið Hughes sem forsetaeini. 19. júni. Einkaskeyti til Mbl., Khöfn 15. júní: Rússnesk herskip réðust á þýsk kaupför, sem nokkur hjálpar- beitiskip fylgdu í Eystrasalti. Einu hjálparbeitiskipi var sökt og mörgum kaupförum. Þjóðverjar segja að hjálparbeitskipið hafi heitið Hermann og kauptörin, sem sukku, hafi verið sex. Rússar halda áfram innrás sinni í Galizíu, sigri hrósandi. Síðt ustu dagana hata þeir handtekið 114,000 manns. FuDdur verkaraanna í Noregi hefir samþykt að hætta verkfallinu. Ernst Schakleton, suðurheimskautatarinn enski, er nýkominn fram á Nowia Scotia. Skip þeirra félaga sökk í ísnum 20. nóvbr. f haust, áður en þeir náðu landi. Héldu þeir til á ísnum þar til seint í marz, en brutust þá átram eftir ísnum og náðu til Philipsi eyju 24. apr.; vegna þess hve lítið var þar um vistir hélt Schakleton áfram með nokkra menn og náði Nowia Scotia to. maí. Litlu seinna komst hann til hvalveiðastöðvar, sem þar er, og gerði þaðan út leiðangur til þess að bjarga mönnum þeim, er eftir urðu á Philipseyju, en hann varð að snúa aftur vegna fsreks. Schakleton ætlar að gera aðra tilraun til þess að bjarga mönnunum og er ekki úrkula vonar um að það takist, því þeir höfðu vistaforða til 5 vikna. Innlendar símtregnir. 14. júnf. Einkaskeyti til Mbl., Sigiufirði 12, júní: Selveiðaskipið >Vor< sá á föstudagiun Zeppelinsloftfar fljúgandi 14 sjómílur austur af Langanesi. öndvegistíð á Suðurlandi. Sláttur að byrja á túnum í Rvík. 19. júní. Franskt hjálparbeitiskip kom til Rvíkur f morgun. 20,000 krónur innkomnar í Landsspítalasjóðinn. Nýlega var framið innbrot í Söluturninn í Rvík og stolið þaðaa um 100 kr. nema öllu heldur sé. Viðskiftin hafa stórum aukist, og það einnig með þjóð vórri, að1 ýmiskonar óreiða og óvöndun fylgir — því míður — vaxandi viðskiftum og hinni svo nefndu menningu. Ógætnir menn gefa sig í margháttað og svívirðilegt brask. Eyða miklu meiru en efni leyfa. Ganga í ábyrgðir fyrir óspilunar- seggi o. fl. þess háttar. Þeir lenda þar af leiðandi í fjárkrögg- um og dragast þannig niður í svívirðinguna. Þessir menn reyna auðvitað f lengstu lög að >klóra f bakkann<, en slíkt klór lendir á stundum að lokum á framleiðslu hins fróma og ráðvanda manns, er vinnur á búi sínu með ölium heiðarlegleik. Það er hörmulegt ástand að fátæki einyrkinn, sem vinnur á búi sínu fyrir blessuðum barna-. hópnum, skuli ekki geta verið óhultur fyrir klóm fjárglæfranna. En það er hann ekki. Fjárglaefr* ararnir teygja ránsklær sfnar, og það jafnvel oft og einatt fram undan fínustu ytri áferð, og læsa þær fastar í viðskiftalíkama hins heiðarlega, ráðvanda manns og hafa áður en hann veit af hrifsað brott stóra fjárhæð af framleiðslu hans. í hinum almennu viðskiftum vorum höfum við á mörgum stöðum alt ot marga milliliði. Milliliðina eigum við að hata sem fæsta. Þó að þeir séu f alia staði hciðarlegir sem slíkir, þá taka þeir fyrir ómök sin. En svo kemur það olt fyrir, að hinir óþörfu milliliðir taka margfalt meira heldur en fyrirhöfn þeirra nemur. 1 þessum flokki eru hinir óheiðarlegu >hestaprangar> ar< á meðal vor. Þeir taka af framleiðendum oft og mörgum sinnum stóra fjárhæð eingöngu með svikum. Þetta eru samviskm Iaus viðskifti. Þér bændur og búaliðar, sem framleiðið vöruna — hestana. Gætið yðar fyrir þessum svikum. Vitið að þér berið ábyrgð á þvf, að þér látið ekki hvern prakkara, •r að garði ber, hrifsa frá yður og máske mörgum börnum, miður höldnum til fæðu og klæðnaðar, þá lífsbjörg er fjölskylda yðar má ekki án vera. Það er í lófa lagið að koma f veg fyrir þessi sviksamlegu viðskitti. í þeim sveitum — einkum hinum afskektu — þar sem hestar eru aldir upp til sölu, eiga héraðs* menn að kjósa nefnd manna til þess að standa fyrir viðskiftunum út á við, eða á annan fulftryggr an hátt að sjá þvi borgið, að hið rétta og fulla verð, er hinn almenni markaður í landinu gefur fyiir hrossin, lendi hjá framleið< anda. Burt með óvöndunlna, lýgina og svikin úr viðskiftuin vorurn. Króksfjarðamesi, 5. júní 1916. Olafur Eggertmn, Aths. Vestri er samdóma hinum háttv. höf. um, að bændur og aðrir framleiðendur eigi að njóta arðsins af framleiðsluvörum sínum, en finst hann samt óþarf- lega h; rðorður um viðskifta- ástandið yfirleitt. Ritstj. Fjær og nær. I’restabreytingar. SíraKjaitan Kjartansson á Stað í Grunnavfk er settur pi estur á Sandfelli í öræfum í veikindaforföllum sr. Gísla bróður síns, en sr. Magaú« Jónsson á Stað í Aðalvik mun þjóna Grunnavíkur- kalli eftirleiðis. Sr. Páll Sigtuðsson aðstoðan prestur í BoHingarvík hefir sagt upp prestsstöðunni þar, og gerist prestur Gardarsafnaðar í Dakota í Ameríku (sem sr. Magnús Jónsson þjónaði); flytja þau hjón vestur nú bráðlega. BoJvíkingar hóldu þeim fjölment skilnaðarsamsæti 17. þ. m. Laudskjðrið. Framboðsfrestur til landskjörsins var útrunninn 15. þ. m. Sex listar komu tram og allir löglegir taldir af yfir* kjörstjórn. Listarnir eru í þessari röð: A Heimastjórnarlisti, B Þversumlisti, C Alþýðulisti, D >Óháðir< bændur. E Sjálfstæðis stjórnarlisti og F Þingbændalisti. Um nöfnin á listunum hefir áður verið getið í Vestra og hafa lítilfjörlegar breytingar orðið með nöfnin síðan. Þó hafa þversum meun bætt 4 mönnum neðan á lista sinn og er hann nú skipaður 12 mönnum. Eiuuig hefir breyting orðið á lista >óháðra< bænda, þar hefir komið Kristleifur Þon steinsson á Stóra Kroppi í Borg* arfirði, í stað Bened. Guðjónssom ar Moldhaugum. | |Hitfís nærri. Botnvörpuskipið >Jón Forseti<- frá Rvík, sem kom hingað inn á laugardaginn 17. þ. m., sagði mikinn hafís hér niður undan, alla leið norður undir Horn. Goðafo3s varð þó hvergi var við haffs. Skepn uhóld hafa hvarvetna vcrið hin bestu í vor hér í sýsl. unni, og sama segja fréttir úr Barðastrandar og Strandasýslum. Margir að vísu að þrotum komnir með hey. Ætt'rnafn. Jón Halldórsson hreppM jói i á Melgraseyri heflr tekið séi ættai tuifnið F j a 11 d a 1, og skrifai síg framvegis Jón Halldórs* son Fjalldal. Tíðln. Sífeldir norðvestan stormar undanfarið, en þó oft stilt og hlýtt veður hér inn til íjarðanna. ísafjörður. ísleifur heitir nýr vólbátur, sem kom hingað sunnan úr Reykjavík í gætdfig, smiðaður þai af Magnúsi Guðmundssyni skipasmið, fyrir þá Míiguús Tnorberg símstjóra og Guðm. ?. Guðroundsson fonnánn. Bálur þessi er einn af stærstu bátum, sem smíðaður hefir verið hór á landi og gefur hinum útlendu bátum síst, eftir að útliti ogfrágangi, og er sagður einkar traustur og randaður að smíði. Báturinn er um 30 lestir að stærð og kvað koeta um 35 þús. kióDur. , ! 17. Júní leið hjá tilbreytingar* laus, eins og hinir dagarnir. Siður sá, sem kominn var hér á fyrir nokkrum árum, að gera sér eitthvað til hátíðabrigðis, er nú lagður niður og er það leitt. Fánar voru þó dregDÍr á stöng víðasthvar i bænum. Bæjarstjórnarfundur var hald- iun 17. þ. m. Þar var þetta gert: £^1. Lagður fram bæjarreikning* urinn og fylgireikningar hans, með athugasemdum endurskoð- unarmanna; voru þeir úrskurðaðir og samþyktir í einu hljóði. 2. Lögregluþjónsstaðan veitt Guðm. Geirdal með 4 atkv. Jón Bjarnason fékk 3 atkv. 3 seðlar auðir. Fleiri sóttu eigi. 3. Oddviti kosinn til þess að veria skólanefndarmálið af hálfu bæjarins. Vinstrimenn Iétu kosn> inguna afskittalausa. Utan dagskrár var tekið lyrir: 1. Aukaniðurjöfnun. Samþ. að láta aukniðurjötnun fara fram. 2. Markaskrá tyrir bæinn. Samþ. að tela Arngr. Bjarnasyni að safna sauðfjármörkum f bænum og prenta skrána við markaskrá Norður«ísafj.sýsIu.

x

Vestri

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vestri
https://timarit.is/publication/235

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.