Vestri - 04.07.1916, Page 2
g8
VESTRI
Símlregmr
28. júní.
Einkaskeyti til Mbl., Khöfn 26. júní:
Þjóðverjar hafa tekið Thiauinontþorpið og sækja iram hjá
Fleury.
Rússar sækja fram i Bukowina.
Einkaskeyti til Mb!., Khöfn 27. júní:
Orustan hjá Verdun aldrei jafn æðisgengin og nú.
Italir hafa hafið sókn og hrökkva Austurríkismenn fyrir þeim.
Flugmenn bandamanna hata varpað fjölda spremgikúlna á
Karlsruhe og gert ógurlegt tjón.
Ofriður milli Bandaríkjanna og Mexiko virðist óhjákvæmi*
legur.
Miklar deilur milii jafnaðarmanna í Þýskalandi.
Arabar hata hafið uppreisn og lýst sig óháða Tyrklandi.
1. júlí.
Einkaskeyti til Mb!., Khötn 29. júní.
Italir hata nýskeð unnið mikinn sigur á Austuiríkismönnum,
sem halda óðfluga undan á aliri herlínunni.
Bretar heíja sókn á ýmsum stöðum á vestur vígstöðvunum og
hefir þeim oróið talsvert ágengt.
Símslit milli Bandaríkjunna og Mtxiko væntanieg á hverri
stuudu.
Liebknect, jaínaðarmaðui inn þýski, hefir verið dæmdur í 21/*
árs fangelsisvist.
Prestaskipulögin hafa verið feld í Landsþiuginu.
Innlendar símtregnlr.
28. júnf.
Stjórumálafundur var háður að Bessastöðum s. 1. sunnudag.
Björn Kristjánsson mætti þar og lýsti yfir þingmenskutramboði
sínu, en aðrir buðu sig ekki fram á fundinum. Tillögur voru sami
þyktar, meðal annars móti járnbrautarmálinu og þegnskyldumálinu
Landsstjórnin hefi gefið út opinbera skýrslu um orindrekstur
Sveins Björnssonar alþm., við bresku stjórnina. Gildir samkomulag
þetta til ársloka yfirst. ár. Verð það á ísleuskum alurðum, er ræðir
um í samningi þessum, hefir verið birt öllum lögreglustjórum landsins
og Kaupmannaráði íslauds, og samkomulagið gert með vitorði þess,
en verður ekki birt almenningi. Kaupmanuaráðið hefir framvegis
opua skfitstofu í Reykjavík, sem veitir kaupmönnum og lramleið*
endum upplýsingar um verdið, eianig hefir það umboðsmann í
Lundúnum, Björn Sigurðsson bankastjóra, sem veitir viðskifta*
upplýsingar og greiðir fyrir vöruflutningum. Verðið á vörunum er
frítt um borð á staðnum þar sem þær eru seldar (f. o. b.).
Þess ber að geta að verð vörunnar er lágmarksverð og frjálst
svið til kaupa og söiu meðal band imanna Breta og hlutlausra landa
fyrir utan Norðurlönd og Holland.
Undanþegnar þessu samkomulagi eru vörur sem fara til Amei
riku, en þeim eiga að fylgja vottorð breska konsúlsins í Rvík, og
vörur sem fara eiga til neyslu í Danmörku.
Gegn þessu samkomulagi hefir breska stjórnin gefið vilyrði
tyrir að sjá um útvegun á og greiða fyrir aðflutningum til íslands
á: kolum, salti, steinolíu, veiðarfærum, síldartunnum, kornvörum,
lyfjum allskonar og öðrum vörum, sem ófáanlegar kynnu að verða
annarsstaðar og hagfelt þætti að kaupa frá Bretlandi. Breska
stjórnin lofar því einnig að tryggja íslenskum skipum fljóta og góða
afgreiðslu.
1. júlf.
Mentaskólanum var sagt upp í gær. 31 nemandi gekk upp
tii próls, en 1 þeirra stóðst eigi prófið og 4 veiklust í mislingum
meðan á prófi stód, en þeir ganga upp seinna. Etst við prófið
varð Steinunn Bjarní dóttir (kennara Sæmundssonar); fékk 88 stig,
og er það hæsta einkunn sem fengist hefir síðan reglugerð skóians
var brtytt. — Næstur varð Brynjólfur Stefánsson með 83 stig.
Bi roidarnar í Reykjavík oru að teppast sökuin bensinleysis.
Emar Arnórsson ráðherra er á heimleið með gufusk. »TjaIdi<,
sem cr væntanlegt til Rvíkur þessa dagana.
25 M.
Samkomulag
mn vlðskii'ti ísiands við lircta.
I. Bráðabirgðalög.
Svohljóðaadi bráðabirgðalög
um heimild handa Iandsstjórninni
til ráðstatana til tryggingar að*
flutningum til landsins hefir kon-
ungur staðfest 24. maí s. 1.:
1. gr. Ráðherra íslands veitist
heimild til að setja með reglu*
gerð eðareglugerðumþauákvæði
um verslun og siglingar til og
trá iandinu, sem nauðsynleg
þykja til þess að tryggja aðflutns
inga til þess. í reglugerð má
ákveða sektir fyrir brot á henni
og meðferð máta út af brotum
gegn henni.
2. gr. Lög þessi öðiast þegar
gildi.
II. Begiugcrð um ráðstai'anir
tll að tryggja versiun
laudsins.
Stjórnarráðið hefir 24. þ. m.
gefið út svohljóðandi reglugerð:
Samkvæmt heimild í 1. gr.
bráðabirgðalaga 24. maí þ. á.,
um heimild handa landsstjórninni
til ráðstafana til tryggingar að«
flutningum til landsins, eru hér
með sett eftirfarandi fyrirmæii:
1. gr. Bannað er að flytja út
frá íslandi hverskonar farm eða
farmhluta, í öðrum skipum en
þeim, er í ferð sinni til ákvörð-
unarstaðarins koma við í bretskri
höfn. Þetta gildir þó eigi um
skip, er héðan fara beint til
Ameríku með farm eða farmhluta,
ef ræðismaður Breta hér veitir
samþykki sitt til þess.
2. gr. Aður en skipa ' megi
farmi þeim eða farmhluta, er í
1. gr. segir, út í skip héðan til
útlanda, skal skipstjóri undirrita
Og afhanda lögreglustjóra eða
umboðsmanni hansskuldbindingu
um viðkomu í bretskri höfn, svo
sem í 1. gr. að ofan er fyrir
mælt.
3. gr. Brot gegn ákvæðum
reglugerðar þessarar varðar sekb
um alt að 10 þúsund krónum.
Bæði sá, er út lætur flytja og
skipstjóri, án þess að ákvæðum
2. gr. sé fullnægt, skal sekur
talinn við ákvæði 2. gr.
Skipstjóri, er brýtur, án aiment
óviðráðanlegra atvika, skuldbind-
ingu gefna samkv. 2. gr., skal
sæta sömu sektum.
Skip og farmur er að veði
fyrir sektunum.
4. gr. Sá, er byrjar að skipa
út, án þess að slík skulbinding
sé gefin, sem í 2. gr. segir, skal
sæta sektum frá 200— iooookr.,
og telst bæði sá, er út lætur
skipa, og skipstjóri sekur um
þetta brot.
Skipstjóri, sem án alment óvið*
ráðau’legra atvika brýtur skuld-
bindingí.’ sína, er hann gefur
samkvæ'it 2. gr., skal sæta sekt*
um frá 10000— 100000 krónur.
pá ©r ákveða skal sektir, skal
taka hliðsjón til verðmætis þess,
sem flytja skal eða flutt er í
skip.
5. gr. Með mál út af brotum
gegn reglugerð þessai i skal tara
sem almenn lögreglumál.
Áður en dómari úrskurði sektir,
án þess að mál fari undir dóm,
skal málið borið undir stjórnar-
ráðið.
6. gr. Reglugerð þessi öðlast
gildi þegar í stað.
ígafjörður.
Safnaðarfnndur var haldinn
s. 1. sunnudag. Þar var rætt
um viðhald kirkjugarðsins og
hvernig hann yrði varinn gegu
ágangi sauð' og geitfjár, sem
gerir alla jatna hin mestu speli
i garðinum. Var sóknarnefnd
falið að búa svo um garðinn, að
hann yrði óhultur fyrir búfé.
Þá var samþ. að hækka laun
organleikarans uni 100 kr. (úr
300 upp í 400 kr.) Gjaldkeri
kirkiunnar gaf skýrslu um fjár*
hagsástand hennar; stendur hún
sig báglega efnalega. Vanskil
sóknarmanna á gjöldunum valda
þar nekkru um. Ættu menn
ekki að tregðast við að borga
þetta litla gjald, svo söfnuðurinn
standi eigi f skuld fyrir nauðsyn*
leg útgjöld. Loks var rætt um
bygging nýrrar kirkju. Vildu
sumir að kirkjubygging yrði
hraðað sem unt væri, þó ekki
bygt meðan stríðið og nánustu
afleiðingar þess stæðu yfir, og
vildu láta kjósa nefnd til þess
að gera áætlun um kirkjubygg*
inguna, útvega teikning, athuga
kirkjustæði o. s. frv. Aðrir vildu
byggja kirkju í náinni framtíð,
en alls ekki eins og nú stæðu
sakir með dýrleik á efni og vinnu,
og töldu nefnd óþarfa nú strax.
Nokkrir vildu enga kirkju byggja
á næstu áratugum. Að lokum
var kosin netnd tii þess að at»
huga málið, og létu hinir sem
vildu fresta málinu og þeir sem
voru á móti kirkjubyggingunni
það hlutlaust. Kosnir voru tré*
smiðirnir Jóakim Jóakimsson, Jón
Ólafsson, Jón Sigmundsson og
Guðni Bjarnason, Helgi Sveins'
son útbússtj.. Árni Gísiason yfir-
rnatsmaður og Sig. Þorsteinsson
múrari.
TíAin. Sífelt sólskin og hlý-
viðri urd- nf irið. Grascprettunni
miðarha:gt nframvegria þurkanna
Þetta muu svo vera allstaðar á
landinu.
Aili mjög rýr undanfarið; veld-
ur því beituskortur. Bolvíkingar
og Hnílsdælingar feugu síld hjá
vélsk. »ísafoId< í fyrra dag og
fengu á hana ágætan afla. Sýnir
það að fiskur væri til, ef næg
beitusíld fengist.
Keiiiiarasteður við barna- og
unglingaskóla kaupstaðarins eru
þessar veittar: 1. kennarastaða
Sigurði Kristjánssyni, er hanu
var settur til að gegna í fyrra.
Laun 1200 kr. 2. kennarastaða,
er Sig. Þorvaldssoti hatöi, Hans
Einarssyni cand. Laun 900 kr.
Leikfimiskennarastaðan Haraldi
Guðmundssyni. Laun 800 kr.
Stundakennarar hafa undaníarið
halt leiktímiskensluna á hendi,
en skólanefnd hefir stofuað séri
stakt kennaraembætti i leikfimi;
telur hún kostnaðaraukann við
það mjög lítinn.