Skólablaðið - 15.12.1908, Qupperneq 1

Skólablaðið - 15.12.1908, Qupperneq 1
23-2k. bl. Kcmur út tvisvar t mánuöi. Kosiar 2 kr. á ári. bkeykjauík /S. des. Auglýsingaverð: 1 kr. þuml. Afgr. Rcykjavik. /908. Heimilisiðnaóur. Vill ekki einhver taka sig til og telja saman, hve mörg dagsverk glat- ast með því að ungir og gamlir gánga iðjulausir þann tíma árs, sem ekki er kallaður annatími. Sá sem gerði það, ynni þarft verk; hann færði sönnur á það, að íslend- ingar væri auðug þjóð, þar sem hún hefði efni á að kasta burtu svo mikl- um tíma fyrir ekki neitt; eða þá að vjer getum verið auðug þjóð með því að nota allan burtsóaðá tímann til arð- vænlegrar vinnu. Á fámennum sveitaheimilum er ann- ríki árið um í kring; þar er engu dags- verki glatað; þar rekur hver vinnan aðra: voryrkjan, heýskapurinn, haust- vinnan og vetrargegníngarnar; þar er alt af nóg að gera, og þar hafa allir nóg að vihna, ungir og gamlir — segja menn, og það kanh að einhverju-' leyti satt að vera. Látum það gott heita. En svo eru kaupstaðirnir, kauptún- in og sjóþorpin. Par fer þó mikið í súginn af tíma. Par gánga fullörðnir karlmenn stórir og sterkir og heilsuhráustir dag eftir dag og viku eftir viku, óg mánuð eft- ir niánuð iðjulausir; þai* ganga stálp- aðir unglingar, sern lókið hafa skóla- námi (í barnaskóla) í hópum tímunum saman og hafast ekki að, þar gahga börn á skólaaldri tvo þriðju parta dagsins iðjúlaus. — þar er mikill tími og mikill kráftur ónotaður. Þetta almenna iðjuleysi ér orðið svo gamalt og venjulegt, að það er hneykslar ekki lengur. Þáð er ólukkan! Ef það vekti hneyksli að stórir hóp- ar vel vinnandi fólks gangi iðjulausir mikinn hluta ársins, þá væri farið að hugsa um hvort þetta gæti ekki vefið' öðrum vísi, hvort ekki væri hugsan- legt að gera þennari langa tíma að peningum, hvört ekki væri auðið áð- nota þessá miklu krafta til einhvefs. Bindindishreyfingin hefur áorkað það, áð nú hneykslar það hvern mann að sjá drukkna menn slaga þvaðrartdi á alfaravegi. Pað hneykslaði ekki áður. Drykkfumenn fyrirverða sig nú að vera drukknir á almannafæri; þeir gerðu^ það ekki áður. ; • Ef hugsunarhátturinn breyttist svo, að iðjuleysið hneykslaði — þar sem nóg er hægt að hafa fyrir stafni — þá mundu iðjuleysingjarnir líka fara að fyrirverða sig. En það er nú einmitt það, sem flestir afsaka iðjuleysið með, að ekk- ert sje hægt að hafa fyrir stafni, aö enga atvinnu sje að hafa. Ef einhver væri sá, er ekkert verk kynni að vinna, nema að raka og slá, þá væri hann atvinnulaus, nema um heyannatímann; sá sem ekkert gæti gert annað en draga fisk úr sjó, yrði að vera iðjulaus, þegar ekki gefur á sjó; sá sem ekkert gæti lagt á gjörfa hönd annað en að sljetta tún, gæti ekkert haft fyrir stafni, þegar frost er í jörð o. s. frv. Allir geta sjeð, að svona einhæfir menn hlytu að hafa mjög svo stöp- ula atvinnu, enda þó að um ekkert alment atvinnuleysi væri að ræða. En er það ekki sama sagan sem gengur, að menn verða að sitja auð- um höndum af því að þeir eru svo hræðilega einhæfir, svo frámunalega óhæfir til að vinna nema einsíaka verk? Pegar almenn umkvörtun er um atvinnaleysi, þá eru þó venjulega nokkrir menn, sem altaf hafa nóg að gera. Það eru þeir, sem eru öðrnm frem-- ur verklægnir, þeir sem eru fjölhæfir, þeir sern kunna vél til verka, og geta agt margt á gjörfa hönd. Væri ekki æskilegt að sem- flestir væru svo fjölhæfir að þeir gætu sem oftast fengið sjer eitthvað að gera, einkum þegar sú atvinna bregst, sem gefur mestan arðinn, eða sem þéír vinna aðallega fyrir sjer með? í stórborgunnm er þetta merkilegt umhugsunarefni, og afar erfitt við- fangsefiii, en það er líka umhugsun- arefni fyrir smábæina, kaupstaðina, kauptúnin og sjóþorpin fslensku, enda þó að hjer sje oftar. kvartað um vinnu- aflaleysi — eða vinnfólksleysi — en atvinnuleysi. * * '■* f «Skólablaðinu» hefir áður ver- ið minst á það, að nauðsynlegt væri að endurreisa heimiiisiðnaðinn og þvf haldið fram, að beinasti vegupnn til þess væri sá/ að kenna handavinnu öllum unglingum í barnaskólunum. Frá skólunum mundi svo þekkingin á handavinnu breiðast út um allar sveitir landsins. Vjer verðum enn að vera á sömu skoðun: Á unglingunum verður að byrja; í skólunum verður að byrja. Kaupstaðirnir eða káuptúnin eða sjóþorpin verða að byrja. Par eru skólarnir, og þar er hægast um hönd að gera fyrstu tilrauniúa, og — þar er líka mest þörfin, þvi að þar er flest af unglingum, sem væri svo knýjandi nauðsyn að kenna eitthvað til hand- anna. Áður hefir verið vikið að því hjer1 í blaðinu, hver eyðilegging það sje fyrir unglinga að álast upp í iðjuleysi, og hve vel »heimilisiðnar«-kens!a væri til þess fallin að temja agalausa ung- linga, þar sem þess var og minst, hversu margbrotið og handhægt verk- efni væri fyrir hendi hvar sem væri,. til að vera viðfangsefni þessarar kenslu. Ekkert af þessu skal hjer endurtekið, heldur lítilsháttar athugað, hvað þarf að gera til þess að komaþessu nauð- synjamáli af stað. Pað verður að komíjst af stað. Hið fyrsta og nauðsynl^gasta til undirbúnmgs er það, aá úitvegu kenn- ara,. Hann er enginri til ^að svo stöddu, — ekki svo fær í þessari grein, að hann þyrfti ekki að fjiíU komna sig, Nám hans verður landið að kosta, eða nám hennar, því að kvénmað- ur, sem væri náttúraður fyrir þess- konar handavinnu gæti það alteins. Sá karl eða sú kona, sem væri orðin fullnuma í þessu til, þess.að. geta kent vel öðrum, á svo að fá fasta atvinnu, með 4 sæmilegum laun- um eftir því sem kennarar eiga að venjast, við að kenna nemendum kennaraskólans heimilísjðnað. Ef kennaraefnin geta ekki orðið fullnuma meðan þeir ganga í kenn- araskólann, með öllu öðru. sem þar er að læra, þá kemur »framha|ds- mentun kennara« að góðu haldi. Par ætti að v,era árlega námsskeið í þess- ari grein fyrir alla þá kennara, sem vildu. verða færir um að kenna heimi ilisiðnað, Peir ættu að eiga þá tyo mánuði,. sem framhaldsmentunin fer fram, kost á verklegri tilsögn í þess-

x

Skólablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.