Skólablaðið - 15.12.1908, Page 3

Skólablaðið - 15.12.1908, Page 3
SKÓLABLAÐIÐ 91 en Landskankinn. Fyrirhöfnin er mest í fyrstu, en mun borga sig, er tímar líða, ef ekki beinlínis þá óbeiniínis. Rjett er að geta þess að barnaskóla- börnin í Rvík eiga nú í Landsbankanum hátt á annað þús. krónur og eru þó tæp 2 ár síðan aurasjóður þessi myndaðist. Rauðará við Reykjavík Laufey Vilhjálmsdóttir. Laun barnakennara í Danmörku hafa verið bætt að nokkrum mun á þessu ári með lögum, sem komu í gildi 1. apríl í vor er leið. Samkvmt þeim eru byrjendalaun barnakennara í sveit 900 kr.; það er lágmarkið; en skólanefndirnar geta hækkað árslaunin upp í 1400 kr. Byrjendalaun hjálp- arkennara eru 700 kr.; þau getur skólanefnd hækkað upp í 900 kr. En svo kemur launa-viðaukinn, sem borgaður er úr ríkissjóði. Hann er 1000 kr. eftir 20 ára þjónustu. Launa- viðaukarnir eru 5, 200 kr. hver, 4. hvert ár. Launaviðaukar kenslukvenna eru 800 kr. Sveitakskólakennari í Danmörku get- ur því komist upp 2400 kr. laun á ári eftir 20 ára þjónustu, en aldrei minna en 1900 kr. árslaun ef liann starfar í 20 ár. Og kenslukonur fá þannig eftir 20 ára starfsemi við skóla að minsta kosti 1500 kr. árslaun, en geta líka fengið 1700 kr. laun. Hjervið bætist svo ókeypis húsnæði og eldiviður, og ennfremur garðs af- not eða jarðarparts, og eru öll þessi hlunnindi metin 300 kr. í kaupstöðum eru launin auðvitað talsvert hærri, og eru tvenn: hærri og lægri laun eftir þessum niælikvarða: Kennarar: Lœgrilaun Hœrri laun 4 fyrstu árin 1500 kr. 1600 kr. 4 næstu 1700 - 2800 - eftir 20 ár 2800 - 3000 - enslukonur: 4 fyrstu árin 1400 - 1500 - 4 næstu 1500 - 1600 - eftir 20 ár 1900 - 2000 - Petta segja hin nýju launalög Dana. En svo eiga þeir sjer eftirlaunalog, sem bæta mjög hag barnakennaranna. Sam- kvæmt þeim fær kennarinn 50 °/0 af launum sínum ef hann hættir eftir 10 ára þjónustu og 2/3 launanna eftir 20 ára þjónustu. Afleiðing þessara ágætu eftirlaunalaga er sú, að í Danmörku eru menn kennarar á besta aldri, og leggja kennarastarfið niður hlutfalls- lega ungir. Gamlir skröggar þykja heldur ekki hentugir til kennaravinnu. * * * Ekki verður annað sagt en að þessi nýju launalög Dana sjái nokkurnveginn vel fyrir barnakennurunum, enda er mikið heimtáð af þeim. Verkamenn hinnardönsku kennarastjettar eru verðir launanna. Ekki eru þessar tölur settar hjer af freistingu til þess að gera neinn sam- anburð milli íslenskra barnakennara og danskra; það er svo ólíku saman að jafna um margt; en búast má við að leséndum Skólabl. þyki nógu fróð- legt samt sem áður að sjá hversu mikils kennarastarfið er metið með nágrannaþjóðunum. Af vinnulaunum, sem boðin eru, má venjulega sjá nokkurn veginn ljóslega, hversu mikils vinnan er metin. Hjer kemur þó fleira til athugunar, svo sem mentun- arkostnaður kennara stjettarinnar, efna- hagur þjóðainnar o. s. frv. Nýjar bækur. Málfrœðí isl. tungu og helstu atriði sögn hennar í ágripi eftir Finn Jónsson. K-höfn 1908. Kostnaðarmaður Sig. Kristjánsson. Vjer eigum ekki marga afreksmenn, ís- lendingar, á sviði vísindanna. Enda er engin von til þess, um svo fámenna þjóð, að hún leggi lið að mörkum til þess starfa að ryðja mannsandanum útsýn. En þeim ntun þakklátari og ræktarlegri ættum v er að vera þeim hinum fáu, er halda uppi sæmd vorri í þessu efni. Afkastamestur allra núlifandi íslenskra vísindamanna, og orðsælastur með er- lendum þjóðum, er vafalaust prófessor Finnur Jónsson, — þótt lítt hafi landar hans kunnað að meta hann til þessa. Starfsþrekið er aðdáanlegt, og víðsýni hans í fræðigrein sinni að sama skapi. Auk þess er hann hefir leyst af hendi hvert stórvirkið á fætur öðru — nefni eg þar helst til bókmentasöguna tniklu (um 1800 bls. í stóru 8vo), er hann reit á dönsku, og Heimskringluútgáfu hans — rignir árlega úr penna hans mörgnm vís- indalegum ritgerðum, er fela að baki sjer margbrotið rannsóknastarf í ýmsum grein- um norrænna fræða. Um þekking á fornum kveðskap og glöggskygni á eðli og sögu fornísl. handrita má hann telj- ast öndvegishöldur norrænna vísindamanna hú á dögum. þetta margbrotna vísinda- starf hans hefir vitanlega farið fyrir ofan garð og neðan hjá öllum þorra manna hjer á landi. Kunnari eru mönnum alþýðurit próf. Finns. Hann hefir sem sje við og við lagt rannsóknirnar á hilluna og brugðið sjer yfir á annan vjettvang, — tekið að rita fyrir íslenska alþýðu. En þar stend- ur hann óneitanlega feti aftar — enda er það ekki aðalstarfssvið hans. Hann er vísindamaður í húð og hár, og því tamara að láta skyusemina, kaldan rann- sóknaranda, stjórna penna sínum heldur en iistfengi eða tilfinningar. Mönnum þykja alþýðubækur hans þurrur og ólist- næmar, og telja þeim það til lasts. Rjett er nú það, — að nokkru Ieyti. Víst er það kostur á alþýðurithöfundum, að þeir geti ktætt efnið í hjartnæman búning og látið gneista hrjóta úr pennafarinu — svona við og við Pað getur orðið til þess, að dottandi sálir hrökkvi upp og fari að hlusta. Höf. hefir hætt til að virða þetta atriði of mjög að vettugi. En of mikið má að því gera, og galla- tilhneiging er það hjá vísindamanni. Efnisatriðunum sjálfum hættir þá einatt til, sje hófs eigi vandlega gætt, að hverfa til hálfs í glitrandi tíbrá, svo að það sem eftir situr í huga lesandans verður óljóst tilfinningahjóm, en eigi þekking; höf- undurinn seilist inn á starfssvið skálds- ins, og gildi bókarinnar verður fagur- fræðilegs eðlis. Alþýðubækur Finns full- nægja hins vegar þeirri kröfu, er jafnan hlýtur að verða efst á baugi um fræðirit; þær eru einkar áreiðanlegar og greina glögt meginatriði frá aukaatriðum; les- andinn missir aldrei sjónar á mergnum málsins. Sú bók, er próf. Finnur hefir nú sent löndum sínurn fyrir milligöngu Sig- urðar Kristjánssonar, er alivísindaleg og eigi þannig vaxin að efni til, að til skemtilesturs mætti horfa, öðrum en þeim, sem snortnir eru af ást á efninu sjálfu og þrá fróðleik um það. Hún er stremb- in fræðibók, innviðamikil, ekkert al- manna-Ijúffengi; hún hæfir þeim einum. sem öðlast hafa allgóða undirbúnings- þekkingu á málinu og vilja nú hnýsast lengra. En þeim er hún líklega gullvæg handbók. Höf. hefir þar sett saman í eina yfirlitsglögga heild öll þýðingar- mestu atriðin, er vísindamennirnir hafa orðið ásáttir uin til þessa á þeim sviðum, er bókin viðkemur. Smávægilegum ágrein- ingsatriðuin sleppir hann, og um hin, er meira máli skifta, lætur hann þess við getið að á þeim leiki vafi. Allir þelr, er íslensku-kenslu hafa á hendi, hljóta því að verða bók þessari ails hugar fegnir, og víst er eigi fyrir það að synja, sem höf. vonar, að mörgum öðrum full- tfða mönnum, jafnt leikum sem lærðum, muni þykja gaman »að fá skýringar. á helstu atriðum íslenskrar máifræði og sögu þeirra og orðmyndanna.« Til þess að vera námsbók í skólum er hún aptur á móti eigi vel fallin, enda eigi í þeim tilgangi samin. Og jeg get jafn- vel ekki tekið undir þá hógværlegu ágisk- un höfundarins, er hann lætur í veðri vaka að bókina mætti eftir vild nota handa námsmönnum í efstu bekkjum hinna æðri skóla vorra, — — það væri þó helst í efstu bekkjum lærðaskólans, með stakri var- færni af kennarans hálfu. Titill hennar er »málfræði íslenskrar tungu« o, v. frv. I ,En hann ferístóransveignminnihaldbókar- innar. Hún tekur til meðferðar að eins tvö höfuð atriði íslenskrar málfræði, innan vissra takmarka, hljöðfræðina ogorð myndafræðinar hina fyrri nærfelt ein- göngu með tilliti til tornmálsins, hina síðarnefndu eftir málsögniegum rökum frá frumnorrænu til nýíslensku. En orð- myndafræðin, orðaskipunarfræðin ög þýð- ingarfræðin eru látnar utanveltu. Bókin er þannig söguleg málmyndalýsing í ágripi — og ágæt á því sviði. En námsbók í ísl.málfræði þarf að koma víðar við og fara fljótará yfir áhverju eiiistöku

x

Skólablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.