Skólablaðið - 15.10.1909, Side 7

Skólablaðið - 15.10.1909, Side 7
Nýja kvennaskólahúsið í Reykjavík. Húsið er úr steinsteypu, þrílyft; 30V2 al. að lengd, og 18 ál. að breidd. Bakskúr 5s/4><6 álnir. Steinrið úr höggnum grásteini til inngöngu við fordyr, en steinsteipurið við kjallara og bakdyr. Miðstöðvarhitun í öllu hús- inu. í kjallara er: eldhús (7x8 al.), borðstofa (12x8 al.), búr (6x8 al.), þvottahús og baðhús, gufuketilsher- bergi, geymsla og kolahús. Hæð undir loft alin. Á fyrsta lofti eru 4 kenslustof- ur (8xl0al.), kennaraherbergi og fata- geymsla og tveir gangar. Hæð undir loft 5V2 al. Á öðru lofti eru 2 skólastofur og 5 íbúðarherbergi og tveir gangar. Hæð undir loft 5J/2 al. Á þriðja lofti eru 8 íbúðarher- bergi og 2 gangar; þar eru 8 fastir klæðaskápar. Hæð undir loft 4*/4. Á hanabjálka er þurkloft. Vatnsleiðsla er um alt húsið. Út af fyrsta lofti eru steinsteyptir veggsvalir {Mljj^2 al.). Húsið verður gaslíst að öllum lík- indum; en fyrst um sinn er það lýst olíulömpum. Húsið hefir bygt húsasmiður Stein- grimur Guðmundsson, og er það hans eign. Wí fylgir 4680 □ álna lóð, og er með lóðinni og mannvirkjum á henni virt á 76783 krónur. — í því hefir íbúð forstöðukona skól- ans, og ein kenslukona. Alt að 30 námsmeyjar geta átt þar heimavist. Jíenslubók í Dönsku handa byrjendum. EJtir Jón Ófeigsson og Jóhannes Sigfússon. 1. P.ókaverslun Guðm. Gamalíelssonar Rvík. Ekki verður yfir því kvartað, að danskar lestrarbœkur hafi vantað. En þó kemur þessi bók í góðar þarfir, öllum þeim, sem kenna byrjendum Dönsku. Það hefur þótt sittaðhverri þeirra bóka, sem til voru áður, eink- nm þó það, að þær væru óhentugar handa byrjendum, sjerstaklega börn- um og lítt þroskuðum unglingum. Dönskukensla hefir og víða verið lje- leS> alltítt að þeir hafa verið að fást við að kenna þetta mál, sem ekki hafa getað sagt óbjagað orð á því sjálfir, nje heldur verið sendibrjefsfær- ir á því. Engin kenslubók ræð- ur bót á því meini. En mikill mun- ur er það, að kennarinn geti haft góð- an stuðning í kenslubókinni. Einn versti annmarki Dönskukensl- SKÓLABLAÐIÐ unnar hefur verið framburðurinn; enda hafa kenslubækurnar þarlittstoð- að. Höf. ráðgera að gefa út annað bindi af bók þessari síðar. Fyrri parturinn, sem út er kominn, er lOarkir. Hann byrjar á hljóðfræðiságripi, og er það mikilsvert fyrir nemendur — og marga kennara — vegna framburðar- ins, enda þó að það verði ekki »lært« til að byrja með. Þá er málfræðiságrip allítarlegt, og með mörgum og glöggum dæm- um. Pví næst eru leskaflar, sem byrja á auðveldum hversdagssamræðum, og inn í þá fljettað íslenskum greinum sem eru hentugar til munnlegra æfinga og stílagerðar. Nokkrir leskaflar aftar í bókinni, þegar efni fer að þyngjast, eru og í samræðu formi. Aftan við leskaflana er orðasafn, er mun að miklu leyti nægja, svo að nemandinn þarf fyrst í stað ekki að kaupa sjerstaka orðabók. Aftast eru málfræðisheiti og skammstafanir. Prentun og pappír er í góðu lagi, og bókin er seld í dágóðu skólabandi á 1 kr. 50 au. En síðar er ráðgert að bandið verði vandaðra og sterkara. Efnisvalið virðist gott og laðandi. Vjer viljum benda á þessa bók sem einkar hentuga kenslubók við byrjun- arnám í Dönsku. Smávegis. SkóUr í Revkjatn'k. Mentaskólinn; nemendur 100. Barnaskóli Reykjavíkur; nemendur um 800; kennarar um 40. Verslunarmannaskólinn. Um 40 nemendur; von á fleirum. 9 kennarar Kennaraskólinn verður settur fyrsta vetrardag; von á 60 — 70 nemendum. Umsjónarmaður fr«ð$Iumálanna er ný kominn heim úr ferðumHúna- vatns- Skagafjarðar- Eyjafjarðar- og Suður-þingeyjarsýslu. í vor fór hann um Kjósar- og Gullbringu- Borgar- fjarðar og Mýrasýslu- og á tímabilinu 4. til 20. júní fór hann um Vestur- land. Allar þessar ferðir hafa verið farnar til þess að hafa tal af fræðslunefndum og skólanefndum til að leiðbeina um framkvæmd fræðslulaganna. Um leið hafa verið skoðuð skólahús, sem reist hafa verið síðustu ár rneð landsjóðs- styrk. Á þessu svæði voru myndar- legust skólahúsin á Húsavík og Sauð- árkróki, enda mestur styrkur veittur til þeirra (3000 og 1800). fijörtur Snorrason búfræðiskennari verður ekki við kenslu á Hvanneyri í vetur; heilsa hans því 79 miður svo veikluð, að hann verður að fá annan í sinn stað. Búnaðar- skóla kandídat Páll Zófoníasson gegnir starfinu fyrir hann í vetur. tnarðir kennarar. Farkennarar hafa verið 208 síðastlið- inn vetur. Reir hafa kent 2872 börn- um á skólaskyldualdri. Flest hafa verið 8 — átta — kennarar í einum hreppi. Þetta er dýrari kensla en þarf að vera. Betra að launa kenn- urunum betur og hafa þá færri Kocldskóla fyrir ungar stúlkur frá 15. okt. til 1. Maí auglýsa þær Bergljót Lárusdóttir ogLáraLár- usdóttir. Námsgreinar: íslenska, Enska, Danska, reikningur, skrift og hannyrðir. Áhersla lögð á að tala málin. Skipaðir kcnnarar. Tvö föst embætti eru nýstofnuð við barnaskóla Reykjavíkur bæjar. í þau voru þær skipaðar frk. Róra Friðriksson og frk. Laufey Vi 1- hjálmsdóttir. Jónas Jónsson frá Hriflu er skip- aður æfingastjóri við kennaraskólann. Jón Kristjánsson, cand. jur. er skipaður kennari við lagaskólann. Spurningar og svör. Er rjett að kjósa mann í fræðslu- nefnd sem búsettur er í skólahjeraði, þó í sama hreppi sje? * * * Kjósa má hann í fræðslunefnd, ef hann vill taka kosningu; en hann get- ur skorast undan kosningu, ef hann vill. STAFRÓFSKVER Hallgríms Jónssonar kennara hefir meðmæli fjölda kennara og for- eldra. Pað er ódýrasta stafrofskverið eftir stœrð og gœðum. Aðalútsala hjá arinbirni Sveinbjarn- arsyni í Reykjavík, Laugavegi nr. 41 og fæst hjá öllum bóksölum hins íslenska bóksalafélags. Unglirtgosbóli ocrður haldinn í Bcrgstaðastracti 3 i octur. námsgreinar: íslcnsKa, $aga, náttúrufrxði, landafrædi, reikning- ur, Dan$Ka, en$Ka, $öngur og telKn- un. Hen$iutími er 6 mánuðir, frá fyr$ta vetrardegi til $íða$ta vetrar- dag$. Skólagiald fyrir bnern nemanda 20 kr. fyrir oeturinn. 21 Kenslu- stund á oíku. jflsgr. Magnússon.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.