Skólablaðið - 01.09.1910, Qupperneq 11
SKOLABLAÐIÐ
139
Hún er venjulega bygð úr múrsteini, eða steypt ásamt reyk-
háfnum. í reykháfnum eru því tvær rásir, önnur fyrir reyk-
inn, en hin fyrir loft. Á loftrásinni eru tvö op, sem loka
má og opna eftir vild, annað svo sem 6” frá lofti, en hitt
jafnlangt frá gólfi. Um efra opið má hleypa út lofti, ef of
heitt verður í skólastofunni; um neðra opið dregst út óhreint
loft frá gólfinu.
2) Dagbók er ætlast til að kennarinn skrifi í alt það sem honum
þykir nauðsynlegt að muna eða geyma af því, sem daglega
kemur fyrir í skólanum, svo sem um hegðun einstakra barna,
vanrækslur, sjúkdóma o. s. frv; um ýms atriði viðvíkjandi
kenslunni, um heimsóknir foreldra eða vandamanna og hvað
annað sem kennaranum þykir ináli skifta.
Bréfabókin er til þess ætluð að færa inn í hana bréf sem
fara milli skólakennara og annara um skólans mál, t. d.
fræðslunefndar, yfirstjórnar fræðslumálanna og annara — eða
að minsta kosti innihald þeirra bréfa.
3) Th. K/aveness: Vejledning til Brugen af min Forklaring.
Kria Aschehoug & Co. Verð kr. 2,25.
A Tollefsen: Konfattet Haandbog i den kristne Barnelærdom
(for Lærere og Lærerskole elever) Kria. Steenske Forlag. Verð
kr. 1,50.
Erik Nyströrn: Bibelhaandbog, paa Norsk ved Otto Greve.
Kria. Norsk Famíliejournals Forlag. Verð kr. 1,00.
Martensen-Larsen: Historisk Oplysning utn den hellige Skrift.
Gyldendal. ' Verð kr. 2,75.
4) Það er undir því komið til hvers á að nota hann. Upp-
dráttur íslands eftir Björn Gunnlögsen þykir bestur til leið-
beiningar á ferðalögum. Hinn nýi uppdráttur eftir Daniel
Bruun er all skýr, og kostar 2 kr., en upplímdur og á stokk-
um 5 kr. — Uppdráttur Þ. Thoroddsens kostar 5 kr. Eng-
inn þessara uppdrátta er sem hentugastur til skólakenslu, en
notast má við hvern þeirra sem vera skal.