Skólablaðið - 01.09.1910, Síða 14
142
SKÓLABLAÐIÐ
skólanefndum þær í minni nú undir haustið, þegar skólar fara
að byrja. Auðvitað þarf allrar hinnar sömu varúðar að gæta
þar sem hóp barna er kent í íbúðarhúsum (í farskólum).
1. Það er bannað að hrækja á gólfið í skólahúsinu, h"ort heldur
er í kenslustofu, eða á ganginum, eða skólaforstofu.
2. Hrákadallar eiga að vera í hverri kenslustofu og gangi eða
forstofu. í hrákadöllum á að vera vatn. Hreinsa skal þá
daglega, og gera það, sem úr þeim er tekið, óskaðlegt.
3. Á öllum frístundum á að opna skólastofuna, svo og glugga,
þegar veður leyfir. Og eftir ke.islu skal á hverjum degi
lofthreinsa húsið rækilega.
5. Gólfið í skólastofunni á að hreinsa daglega með því að draga
um það vota tusku. Glugga, skólaborð og bekki, skal og
strjúka með votri tusku á hverjum rnorgni. Einu sinni á
viku á að þvo gólf skólahússins úr sápuvatni, eða sóda. Á
sama hátt á að þvo loft og veggi einu sinni á ári, áður en
skóli byrjar að haustinu.
Gólf eiga öll að vera olíuborin.
Við dyr skólahússins á að vera góð skóskafa.
6. Öll þau áhöld, sem notuð hafa verið til r»stingar, ber í hvert
sinn að hreinsa rækilega eftir að þau liafa verið notuð.
7. Æskilegt er að skólahús séu ekki notuð til samkoma nje
fundarhalda. En ef það er gert, þarf að hreinsa húsið og
áhöld þess rækilega áður en kensla byrjar.
8. í salernum skólans skal gæta hins nresta hreinlætis. • Saur-
indakyrnur skal losa nægitega oft, svo áð þær fyllist eigi
um of.
9. í skólaganginum, eða skólaforstofunni þarf að vera þvotta-
vatn og skálar og handklæði, svo að börnin gcti þvegið sér
þar um höndur, ef þörf gjörist.
Reglugjörð
um
styrktarsjóð handa barnakennurum
hefur stjórnarráðið sett 30. aprílm. þ. á. Þetta er meðal annars
í henni: