Skólablaðið - 01.04.1912, Blaðsíða 4
52
SKOLABLAÐIÐ
í raun og veru er hvorki holt né æskilegt að unglinga-
skólum fjölgi óðar en það, að til þeirra geti valist úrvalsmenn,
með kennaramentan, um fram alt.
Mörgum er undarlega gjarnt til að líta svo á, að skólamáf
megi byrja livar sem vera skal og enda hvar sem vill. Þeir
gæta þess ekki, að þar eins og annarstðar verður að byrja á
grundvellinum og byggja upp að neðan. Á grundvelli fræðslu-
laganna frá 1907 á að byggja stofnun unglingaskólanna, og með
tímanum má búast við að nýtilegur lýðháskóli geti orðið til
og starfað til mikillar blessunar. Barnaskólarnir og unglinga-
skólarnir eiga að verða sá jarðvegur, sem hann vex upp úr,
bæði að því er snertir nemendur og kennara.
Vér erum nú ekki komnir lengra en það með lýðfræðslu-
mál vor, að vér eram að leggja grundvöllinn. Leggjum alt kapp
á að gera það sem best, og gefum oss góðan tíma til þess.
En tíminn er samt sem áður kominn til þess að hugsa
fyrir unglingaskólunum, hugsa fyrir því fyrst og fremst að afla
þeim góðra kennara. Þó að mörgum þeirra skóla, sem nú eru
til, sé varla skapaður langur aldur, þá nálgast sá tími óðum að
góður unglingaskóli þarf að vera til í hverri sýslu, skólar sem
ekki einungis miðla nemendum sínum einhverjum fróðleiksmol-
um eða þekkingar, heldur gefa þeim lífsskoðun og trú, sem er
einhvers virði í lífinu.
Lestur.
Eftir Brynleif Tobíasson.
---- Niðurlag.
6. Dagblöð og tímarit.
Tilgangur dagblaðanna er sá að flytja óhlutdrægar fréttir,
utan lands og innan, að flytja greinar um Iandsmál, örfandi og
leiðbeinandi, landslýð til hvatningar, m. m, Tíniaritin flytja að
jafnaði ritgerðir um merk mál, sem við koma öllum sviðum mann-
legs lífs. Munu þau þó of lítið lesin af alþýðu. Benda vil
eg á »Skírni«, »Andvara« og »Eimreiðina«, einkar vel leshæf
rit alþjóð marina. Þjóðvinafélagið um of látið afskiftalaust. Qóð