Skólablaðið - 01.08.1912, Side 2

Skólablaðið - 01.08.1912, Side 2
114 SKÖLABLAÐIÐ Grundtvig stóð ótti af voldugu nágrönminum, Þjóðverjum, eins og öðruin ættjarðarvinum í Danmörku um þær mundir, og vildi hann, að skóli sinn stæði vel á verði fyrir danskt þjóðerni gegn þeirri hættu, sem því var búin frá Þýskalandi, og á árun- um 1850 til 1868 var hver lýðháskólinn á fætur öðrum stofn- aður, og allir í Orundtvigs anda. Andleg vakning bœndastéttar- innar, aðallega með ræðum og samtölum, var markmiðið. Jafnfraint vakningunni vilja allir þessir skólar nú frœða, fyrst og fremst um móðurmálið, og þá um sögu œttjarðarinnar og landið sjálft, þjóðfélagsskipun og löggjöf En þessi þekking á að leiða til ættjarðarástar og andlegs og efnalegs sjálfstæðis. Vakningarinnar var sannarlega þörf í Danmörku, og skólar þessir hafa unnið ómetanlegt gagn fyrir dönsku þjóðina. En flJri sofa en danskurinn, meðvitundarlitlir um sinn eigin hag og landsins gagn og nauðsynjar. Ekki þóttu þessir skólar gallalausir, síst framanaf. Sumum þótti þeir hásiglt fley en seglfestulítið. Nemendurnir froðubelg- ir með ættjarðarást og sjálfstæði á vörunum, en kollinn tóman af þarflegu mannviti. Má vel vera, að eitthvað hafi verið til í þessu, og má þó með sanni segja, að margir lýðháskólakennarar Norðurlanda hafa verið afbragðsmenn. Til mikillar þekkingar var ekki að ætlast, því skólarnir stóðu eitt ár. Þar sem ekki erheimtuð svo mikil ákveðinandleg vinna og ekki gengið eftir því, að nemandinn sýni við burtför sína frá skólan- um, að hann hafi safnað andlegu > forða, veganesti til lífsgöng- unnará svo stutturn tíma, þá erauðvitaðhætt við, að áhugaútlir nem- endur slái fremurslöku við vinnuna, og láti sér nægja að verða hrifnir af því sem þeir heyra og sjá. En það er auðvitað ekki nóg að vita það, eða trúa því, að feðratungan okkar sé Ijómandi falleg; við verðum að leggja á okkur vinnu til þess að læra að tala hana og rita. Það er heldur ekki nóg að syngja um landið, að það sé fagurt og frítt, og »eg elska yður, þér Íslands fjöll«, ef ekkert er gert fyrir landið, heldur haldið áfram að svifta það fegursta skrúði þess og eyðileggja gæði þess. Þeir, sem sigla í kjölfar annara, eiga hægara með að forð- ast skerin, sem þeir hafa rekið sig á. Enda hafa seinni tíma lýðháskólar sniðið sig betur eftir þörfum tímans. Af þeirra

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.