Skólablaðið - 01.08.1912, Side 11

Skólablaðið - 01.08.1912, Side 11
SKOLABLAÐIÐ 123 18. 19. 20. 17. Skólinn - Vopnafirði Ljósavatni Húsavík Keflavík 500 kr. 400 — 600 — 250 - Síðastliðinn vetur hafa rúml. 3200 börn gengið í heiman- gönguskóla\ af þeim hafa 2800 verið á aldrinum 10—14 ára; um 380 yngri, og rúm 20 eldri. En farskólakenslu hafa notið um 3300 börn alls. Af þeim voru um 170 yngri en 10 ára og 75 eldri en 14 ára. Opinberrar kenslu með styrk úr landsjóði hafa notið sam- tals 6755 börn. Löglegur farskóli (eða eftirlit nreð heimafræðslu) hefur þetta ár verið t 124 hreppum, og heimangönguskólar eru 45 fyrir utan kaupstaðaskólana. 24 hreppum hefur ekki orðið veittur styrkur til barnakenslu síðastl. vetur. í flestum þessara hreppa hefur verið talsvert unnið að barnafræðslu með ráðnum kennurum, en þeir hafa farið á mis við styrkinn af 'því, að skilyrðum fræðslulaganna fyrir landsjóðsstyrk liefur ekki verið fullnægt. Meðal annars hefur fjárveitingin strandað á því, að kennurum hefur verið gold- ið lægra kaup en lög ákveða. Það er slæmur búskapur tyrir hreppinn að spara 24 kr. í kaupi kennarans, og verða fyrir þá sök af 150 til 200 kr. styrk úr landsjóði, Þrír hreppar hafa fengið meiri styrk en 200 kr., sem er há- mark styrks til eins farskóla samkvæmt ákvæði fjárlaganna. En svo verður að líta á, að í þessum hreppum hafi verið haldið uppi tveimur fullkomnuin farskólum, enda tilkostnaður mikill í þeim til barnsfræðslunnar, — jafnvel yfir þúsund krónur fyrir vet- urinn. Um 380 nemendur hafa gengið í unglingaskóla þenna vet- ur; bæði er það, að skólunum hefur fjölgað, — nú orðnir 20 — og svo hafa sumir þeirra verið betur sóttir en áður. Tveir hafa þeir staðið í 12 vikur, en flestir 20 vikur og þar yfir. Margir þessara skóla virðast vera að ná festu, meiri en áður, og uá henni vonandi betur ineð tímanum.

x

Skólablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/236

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.